Börn og menning - 01.09.2012, Qupperneq 30

Börn og menning - 01.09.2012, Qupperneq 30
30 Börn og menning Lestrarhvatningarverkefni IBBY Árið 2005 tókst IBBY á hendur fyrsta eiginlega lestrarhvatníngarverkefni sitt. Byrjað var á því að leggja áherslu á yngstu börnin enda margsannað að með því að lesa fyrir börnin allt frá unga aldri geta foreldrar haft áhrif á lestraráhuga og -fæmi barnanna síðar á ævinni. IBBY gaf út myndabókadagatal sem hannað var af Áslaugu Jónsdóttur og gefið í alla leikskóla á landinu. Tólf myndir prýddu dagatalið, ein fyrir hvern mánuð, frá tólf frábærum íslenskum myndskreytum sem hafa glatt ungu börnin okkar um árabil og gert þau handgengin bókum. Þann 2. apríl 2007 varð Sigrún Eldjárn fyrsti handhafi Sögusteins, heiðursverðlauna IBBY á íslandi. Það veitti okkur kærkomið tækifæri til að hvetja sérstaklega til lesturs á bráðskemmtilegu bókunum hennar Sigrúnar um Kugg. Úr varð bókadagatal 2008, hannað af Önnu Þóru Árnadóttur, sem IBBY gaf öllum þriðjubekkjum í grunnskólum landsins. Næsti handhafi Sögusteinsverðlaunanna var Kristin Steinsdóttir. Hún veitti þeim viðtöku 2008 og ári síðar færði IBBY skólabókasöfnum grunnskólanna veggspjaldið Söguslóð að gjöf. Það var hannað af Áslaugu Jónsdóttur sem fékk þá frábæru hugmynd að gera veggspjaldið jafnframt að borðspili þar sem þátttakendur þurfa að svara spurningum úr bókum Kristínar til að komast í mark. Hallbera Fríður Jóhannesdóttir Það er mánudagsmorgunn og ég opna dyrnar að skólabókasafninu. Loftið er dálítið þungt en lyktin er góð. Lykt af bókum. Ég opna tölvuna mína og fer inn ( Gegni. Um leið kemur fyrsti nemandinn inn á safnið og í kjölfar hans koma fleiri krakkar sem þurfa nýja bók að lesa. Tveir strákar koma sér fyrir við borð inni ( horni og byrja að vinna verkefni. Fljótlega mætir stuðningsfulltrúi og sest hjá þeim. Fjóra krakka úr unglingadeildinni vantar bók með málsháttum. Ég aðstoða þá við að finna bókina og geng úr skugga um að þeir viti hvernig eigi að nota hana. Það fylgir þeim notalegur kliður og ég heyri að þeir eru að ræða málsháttinn: „Blindur er bóklaus maður". Kennara vantar bækur sem tengjast Egyptum til forna og ég þarf að panta vinnubækur í ensku hjá Námsgagnastofnun. Annarbekkur þarf bók um geimverur og ég man eftir bók Sigrúnar Eldjárn um Bétvo sem ég las fyrir mín eigin börn fyrir tuttugu árum. Ég kemst að því að ungi kennarinn þekkir ekki Bétvo og því fagna ég að bókin

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.