Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.04.2021, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 20.04.2021, Qupperneq 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —7 6 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 2 0 . A P R Í L 2 0 2 1 w v HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 · www.volkswagen.is/id3 Verð frá 4.490.000 kr. Rafmagnaður ID.3 Drægni að þínum þörfum! Hvert ertu að fara? #NúGeturÞú MENNING Ólafur Egill Egilsson opnar Konungsbók fyrir grunn- skólakrökkum meðal annars með my ndasög um og bíómy ndum þannig að þau geti haft gagn og gaman af dýrgrip sem þjóðin hefur haft til varðveislu í hálfa öld og verður efnt til hátíðar af því tilefni. Árnastofnun fékk Ólaf til þess að leikstýra og skrifa handrit hátíðarinnar. Steiney Skúladóttir er sögumaður. „Meginstefið í þess- ari dagskrá er kannski að segja við krakkana: Þetta er ykkar bók. Þetta er ykkar Konungsbók sem við varð- veitum en allur heimurinn á hana og það er um að gera að nota hana og njóta hennar,“ segir Ólafur. – þþ / sjá síðu 26 Ólafur túlkar Konungsbók eftir sínu höfði DÓMSMÁL Ekkert verður af sáttum í að minnsta kosti tólf af þeim átján málum sem eru til meðferðar hjá Mannréttindadómstól Evrópu (MDE) og byggja á sömu máls- ástæðum og Landsréttarmálið. MDE setti málin í sérstakt sáttaferli skömmu fyrir áramót. Í erindum, sem ríkislögmanni og kærendum málanna bárust frá dómstólnum af því tilefni, kom fram að næðust ekki sættir í mál- unum færu þau til hefðbundinnar efnismeðferðar og dómsálagningar á grundvelli fyrirliggjandi dóma- fordæmis. Er þar vísað til niður- stöðu yfirdeildarinnar í Lands- réttarmálinu sem kveðinn var upp 1. desember síðastliðinn. Var frestur til að ná sáttum upp- haflega veittur til 16. mars en ríkis- lögmaður staðfesti við Fréttablaðið um miðjan síðasta mánuð að óskað hefði verið eftir lengri fresti til að ná sáttum í sautján af átján málum. Hinn framlengdi frestur rennur út fyrir hádegi í dag. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, sem fer með fyrirsvar í tólf af þeim sautján málum sem tekin voru til sáttameðferðar, staðfestir að sátta- umleitunum sé lokið án árangurs og hann hafi gert dómstólnum við- vart um það fyrir hönd umbjóð- enda sinna. Hann gefur þó ekki upp á hverju hafi strandað í sáttaumleitunum vegna skilyrðis um trúnað sem um þær gildi. Embætti ríkislögmanns vildi ekki svara fyrirspurn Fréttablaðs- ins um málið í gær þar sem frestur- inn væri ekki liðinn. Um er að ræða sakamál í öllum tilvikum sem eru því marki brennd að hafa verið dæmd í Landsrétti af einhverjum hinna fjögurra dómara sem ekki voru skipaðir í samræmi við lög þegar skipað var upphaflega í réttinn haustið 2017. Meðal þeirra mála sem um ræðir er mál Jens Gunnarssonar, fyrrver- andi rannsóknarlögreglumanns, sem dæmdur var fyrir brot í starfi og dæmdur í f immtán mánaða fangelsi. – aá Engar sættir í fjölda MDE-mála Íslenska ríkið náði ekki sáttum í minnst tólf málum sem eru til meðferðar hjá Mannréttindadómstól Evrópu og eru af sömu rót og Landsréttarmálið. Þau verða nú dæmd á grunni hins nýja dóms yfirdeildar. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, hæstaréttar­ lögmaður Eldgosið við Fagradalsfjall á Reykjanesskaga hefur nú varað í einn mánuð. Í gær var ekki mikið skyggni yfir svæðið en þó nóg til að fanga fegurðina. Ekki gýs lengur úr nyrsta gígnum sem opnaðist á annan dag páska en að öðru leyti er gosið og hraunrennsli nokkuð stöðugt og ekki margar vísbendingar um að hætti að gjósa í bráð. Sjá síðu 8 FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.