Fréttablaðið - 20.04.2021, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 20.04.2021, Blaðsíða 2
Reyndi á þolinmæðina í bið eftir skimun Júlía K. Björke, framkvæmdastjóri MýSköpunar, með vöruna. Með frekari þróun er jafnvel hægt að framleiða bláa spirulinu. MYND/HELGI A. ALFREÐSSON NÝSKÖPUN „Þetta er einstakur stofn héðan úr Mývatni og svolítið merkilegt að geta ræktað upp eitt- hvað sem á uppruna sinn hér og nýta orkuna úr jarðhitanum,“ segir Júlía K. Björke, framkvæmdarstjóri MýSköpunar, en fyrirtækinu tókst í vikunni að búa til spirulinuduft úr örþörungum úr Mývatni. Á heilsa.is segir að spirulina sé þekkt sem ein næringarríkasta fæða sem völ er á. Hún þrífst í heitum, sólríkum löndum eins og Mið- og Suður-Ameríku og Afríku. MýSköpun fékk nýverið 13,5 milljóna króna styrk úr Matvæla- sjóði og þá er í gildi samningur við Landsvirkjun um rafmagn og hita en nóg er af því í Mývatnssveit. Júlía segir að verkefnið sé búið að vera í gangi í þó nokkur ár. Arn- heiður Almarsdóttir stýrði því áður með það að markmiði að rannsaka hvort það væru einhverjir þörungar sem væri hægt að nýta til manneldis í Mývatni. Eftir fjölmargar sýna- tökur tókst að finna annars vegar spirulinu en einnig chlorellu. Báðir þörungar þurfa mikið vatn og hita og vilja vaxa í aðstæðum sem eru ansi langt frá íslenskum veruleika, eða 30-35 gráðum. „Við nýtum jarðhitann hér í Bjarnarf lagi, við þurfum vel upp- hitað hús og mikið rafmagn því þetta er eiginlega eins og gróðurhús í vatni. Báðir þörungarnir, spirulina og chlorella, eru þannig þörungar að þeir fjölga sér á ógnarhraða ef þeim líður vel.“ Júlía, sem er uppalin í Reykjavík og er jarðefnafræðingur og jarð- hitasérfræðingur, flutti ásamt eigin- manni sínum Helga Arnari Alfreðs- syni í sveitina árið 2013. Hún segir að þegar hún var fengin í verkefnið hafi hún lítið þurft að hugsa sig um. „Ég er með mikinn áhuga á fjölnýt- ingu á jarðhita, hvernig eigi að nýta hliðarafurðirnar því eins og staðan er í dag eru Íslendingar aðeins að nýta um 50 prósent af hitanum. Það er þessi háhitagufa sem er nýtt og það er alltaf verið að leita leiða til að nýta hinn helminginn.“ Þörungarnir eru ræktaðir í gömlu Kísiliðjunni í Bjarnarf lagi og er markmiðið að framleiða spirulinu- duft í fæðubótarefni og halda svo áfram í vöruþróun. „Þetta er fyrsta íslenska spirulinan og þá þarf ekki að f lytja hana inn þannig að það er miklu minna kolefnisspor. Þannig að þetta er þá orðin mjög umhverf- isvæn og næringarrík fæða. Þetta er ennþá þróunarverkefni þó að við séum byrjuð að fram- leiða. Verkefnið hefur verið rekið á rannsóknarstyrkjum hingað til en núna er kominn grundvöllur fyrir því að skila einhverju fjármagni inn en halda samt áfram þróun- inni. Stefnan er allavega sú að koma með vöru á markað á þessu ári,“ segir Júlía. benediktboas@frettabladid.is Rækta spirulinu með örþörungum Mývatns MýSköpun hélt upp á stóran áfanga í liðinni viku þegar fyrsta spirulinuduftið var tilbúið úr ræktun fyrirtækisins í Bjarnarflagi í Mývatnssveit. Stefnt er að því að koma með vörur á markað á þessu ári en um leið halda áfram þróun. Við nýtum jarð- hitann hér í Bjarnar- flagi, við þurfum vel upp- hitað hús og mikið rafmagn því þetta er eiginlega eins og gróðurhús í vatni. Júlía K. Björke framkvæmdarstjóri MýSköpunar Kauptu næluna á blarapril.is Einhverfa er alls konar Ég á erfitt með að tilfinningar Löng röð myndaðist fyrir utan skimunarstöðina við Suðurlandsbraut í gær en margir voru boðaðir í skimun eftir smit síðustu helgar þar sem 44 greindust með COVID. Sóttvarnalæknir sagði á upplýsingafundi í gær að skoðað yrði næstu daga hvort herða þurfi aðgerðir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN MENNING Ný nefnd, eða starfshóp- ur, Íslendinga og Dana verður kynnt í vikunni. Samkvæmt menntamála- ráðuneytinu er verið að ganga frá formsatriðum skipunarinnar. Á miðvikudag verður hálf öld frá því að skinnhandrit Flateyjarbókar og Konungsbókar eddukvæða voru afhent í Reykjavíkurhöfn. Við tók 26 ára vinna við að skipta hand- ritunum milli Íslendinga og Dana. Lilja Alfreðsdóttir hefur lýst því yfir að hún vilji fá afganginn til baka, alls um 1.400 handrit. Þetta ítrekaði hún meðal ann- ars í viðtali við danska dagblaðið Kristelig Dagblad á laugardag. „Ég geri mér grein fyrir því að hand- ritin hafa mikla þýðingu fyrir bæði lönd,“ sagði hún. Þann 25. september á síðasta ári skilaði starfshópur ráðherra til- lögum að því hvernig staðið yrði að viðræðunum við Dani. Sú greinar- gerð hefur ekki verið gerð opinber og í desember úrskurðaði úrskurð- arnefnd um upplýsingamál gegn blaðamanni sem krafðist þess að fá greinargerðina afhenta. Í svari við fyrirspurn Frétta- blaðsins segir Kristrún Heiða Hauksdóttir, upplýsingafulltrúi menntamálaráðuneytisins, að gögn starfshópanna verði gerð opinber að verkefninu loknu. – khg Tilkynna um nýja nefnd um skiptingu handrita Lilja vill afganginn af handritunum heim. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KÓPAVOGUR Bæjarstjórn Kópavogs hefur ákveðið að hætta að veita stjórnmálaf lokkum auglýsinga- styrki. Var þetta samþykkt sam- hljóða á fundi í síðustu viku. Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjar- fulltrúi Pírata, benti í vetur á ójafn- ræði sem ríkti milli f lokkanna. Aðeins Sjálfstæðisflokkurinn gefur reglulega út prentað málgagn og gat reglulega sótt um auglýsinga- styrk frá bænum. Þá voru reglurnar hvergi skrifaðar og ný stjórnmálaöfl ekki upplýst um þær. „Ég er mjög ánægð með þetta,“ segir Sigurbjörg. „Það eru reglur um styrki sem miðast við gengi í kosningum. Ég veit ekki hvort þeir styrkir verði hækkaðir á móti en ef það verður gert verður það gegn- særra og sanngjarnara.“ Í svari við fyrirspurn Sigurbjargar kom í ljós að Sjálfstæðisflokkurinn fékk 80 prósent af heildargreiðslun- um og var eini f lokkurinn sem fékk styrk árlega. Tvisvar var styrkurinn hærri en leyfilegt var. – khg Bærinn hættir að veita styrki Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjar- fulltrúi Pírata. MYND/AÐSEND 2 0 . A P R Í L 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.