Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.04.2021, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 20.04.2021, Qupperneq 4
Þannig liggur fyrir að engar fram- kvæmdir á stofnbrautum muni klárast á yfirstand- andi kjörtímabili. Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðismanna Við finnum fyrir aukinni eftirspurn gagnavera. Hörður Arnarson, forstjóri Lands- virkjunar jeep.is UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 35” BREYTTUR 33” BREYTTUR ÓBREYTTUR JEEP® GRAND CHEROKEE TRAILHAWK – VERÐ FRÁ: 11.690.000 KR. • 3.0 V6 250 HÖ. DÍSEL, 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING • 570 NM TOG • HÁTT OG LÁGT DRIF • RAFDRIFIN LÆSING Í AFTURDRIFI • LOFTPÚÐAFJÖÐRUN AÐ FRAMAN OG AFTAN • HLÍFÐARPLÖTUR UNDIR VÉL, KÖSSUM OG SKIPTINGU • BI-XENON LED FRAMLJÓS MEÐ ÞVOTTAKERFI • RAFDRIFIN OPNUN Á AFTURHLERA ALVÖRU JEPPAR - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF JEEP® GRAND CHEROKEE BREYTTIR OG ÓBREYTTIR • ÍSLENSKT LEIÐSÖGUKERFI • BAKKMYNDAVÉL MEÐ BÍLASTÆÐAAÐSTOÐ • FJARLÆGÐASKYNJARAR AÐ FRAMAN OG AFTAN • BLINDHORNSVÖRN ALLAR BREYTINGAR UNNAR AF BREYTINGARVERKSTÆÐI ÍSBAND SAMFÉL AG Samtök áhugafólks um spilafíkn (SÁS) hafa lagt fram kæru til úrskurðarnefndar um upplýsingamál vegna synjunar dómsmálaráðuneytisins á beiðni um aðgang að gögnum sem borist hafa ráðuneytinu frá rekstrarað- ilum spilakassa hérlendis er varða úrbætur og spilakort. Samtök áhugafólks um spilafíkn hafa kallað eftir því að spilakössum á Íslandi verði lokað. Rekstraraðilar spilakassa hérlendis, Íslandsspil og Happdrætti Háskóla Íslands (HHÍ), hafa svarað því kalli með umræðu um spilakort sem virka þannig að spilarar spili með fyrir fram greidd- um spilakortum. Þannig megi stjórna betur þeim fjárhæðum sem spilað er fyrir. Í erindi sendu frá SÁS til dóms- málaráðuneytisins í febrúar er óskað eftir umræddum gögnum sem og öðrum erindum sem ráðu- neytinu hafa borist frá leyfishöfum er snúa að rekstri spilakassa. Í svari frá dómsmálaráðuneyt- inu sem dagsett er þann 22. mars kemur fram að á umræddu tíma- bili hafi ráðuneytinu borist erindi bæði frá Happdrætti Háskólans og Íslandsspilum. Neitað var að af henda gögnin á grundvelli þess að þau innihaldi upplýsingar er varði mikilvæga fjárhags- og við- skiptahagsmuni. Dómsmálaráðuneytinu er veittur frestur til 26. apríl næstkomandi til að skila umsögn um kæruna og koma með frekari rökstuðning fyrir ákvörðuninni. Þá hefur SÁS einnig óskað eftir því að úrskurðar- nefndinni verði innan sama frests afhent gögnin sem kæran lýtur að. – bdj Kæra synjun ráðuneytisins um aðgang að gögnum Alma Hafsteinsdóttir, formaður SÁS, lagði fram kæruna fyrir hönd samtakanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR REYK JAVÍK Tillaga að hámarks- hraðaáætlun Reykjavíkur var sam- þykkt í skipulags- og samgönguráði í síðustu viku og vísað til borgar- ráðs. Eyþór Arnalds, oddviti Sjálf- stæðismanna, er ósáttur við tillögur meirihlutans en Eyþór segir að laus- lega megi reikna með að tillögurnar muni kosta rúma átta milljarða króna á ári. „Mér finnst þessar tillögur afar illa ígrundaðar og kostnaðurinn við að koma þeim í framkvæmd er vanreiknaður svo um munar. Fram kemur í áliti, sem verk- fræðiprófessorinn emeritus Jónas Elíasson og umferðarverkfræðing- urinn Þórarinn Hjaltason gerðu, að áætla megi lauslega samfélagslegan kostnað við aukningu á ferðatíma vegna hraðlækkananna um 8,2 milljarða króna á ári,“ segir Eyþór. Um umhverfisáhrifin segir í áliti Jónasar og Þórarins: „Mæld rykmengun mun lækka eitthvað á þeim götum þar sem hraðinn lækkar. Munurinn jafnast f ljótlega út vegna dreifingar í loftinu vegna iðustreymis.“ „Þessar tillögur koma á sama tíma og ljóst er að tímarammar um Borgarlínu munu ekki standast og ljóst er að framkvæmdir við hin ljósastýrðu gatnamót við Bústaða- veg og Arnarnesveg þar sem mikill umferðarþungi er muni ekki klárast á þessu ári eins og áætlað var. Þannig liggur fyrir að engar stórar framkvæmdir á stofnbrautum muni klárast á yfirstandandi kjörtíma- bili. Það væri skiljanlegra ef þessar tillögur kæmu fram þegar ferlið við Borgarlínu væri komið lengra og framkvæmdir á stofnbrautum væru lengra á veg komnar,“ segir borgar- fulltrúinn. – hó Kostnaður við hraðalækkun átta milljarðar ORKUMÁL Landsvirkjun mun ekki byggja nýjar virkjanir til þess að mæta orkuþörf gagnaveranna, sem eru nýtt að langstærstum hluta til þess að grafa eftir rafmynt. „Við finnum fyrir aukinni eftir- spurn gagnavera,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, aðspurður um hvort pressa sé á að útvega meiri orku fyrir gagna- verin. Verð rafmynta hefur rokið upp á undanförnum mánuðum sem valdið hefur því að sífellt f leiri sækjast eftir því að kaupa og grafa eftir rafmynt. „Þó við höfum verið að selja orku til gagnavera hefur þetta aldrei haft áhrif á f járfestingarákvarðanir okkar,“ segir hann. Ástæðan sé sú að þetta er svo illfyrirsjáanlegur markaður. „Þegar við byggjum virkjanir förum við í langtímasam- band með ábyrgðum við ákveðna viðskiptavini.“ Á sama tíma og Bitcoin og aðrar rafmyntir ruku upp í verði minnk- aði eftirspurnin eftir afurðum eins og áli og kísil. En nú hefur orðið breyting. Hörður nefnir álverið Rio Tinto sem dæmi, sem samið var við í upphafi árs. „Rio Tinto keyrðu niður afköstin á síðasta ári vegna minni eftir- spurnar en hafa verið að snúa þessu við og eru að verða komnir í full afköst,“ segir hann. „Það sama gild- ir um aðra viðskiptavini. Álverð, kísilverð og f leira hefur verið að hækka mikið.“ Sú raforka sem seld hefur verið til gagnaveranna var að hluta orka sem ekki hefur verið hægt að nýta til stóriðnaðar. Þegar þetta snýst við verður minna til skiptanna. Hörður telur að gagnaverin eigi mikla framtíð fyrir sér og mikil- vægt sé fyrir Ísland að fá stóru þekkingarfyrirtækin hingað. „Raf- myntagröfturinn styrkir þessa starfsemi við að koma undir sig fótunum og borga ákveðnar fjár- festingar,“ segir hann. „En ég held að f lestir geri sér grein fyrir að það sé mjög óvíst hvort gröfturinn verði með þessum hætti til framtíðar. Ég held að það sé mikilvægt að draga úr orkuþörfinni og veit að aðilar eru að leita leiða til þess að svo geti orðið.“ kristinnhaukur@frettabladid.is Ekki áformað að byggja upp virkjanir fyrir gagnaverin Þrátt fyrir aukna eftirspurn eftir gagnaverum, aðallega til þess að grafa eftir rafmynt, mun Landsvirkjun ekki byggja virkjanir til að mæta henni. Forstjóri Landsvirkjunar segir stórnotendurna vera að komast aftur í full afköst eftir að dregið var úr þeim á síðasta ári vegna áhrifa sem kórónaveirufaraldurinn hafði. Genesis Mining er meðal þeirra gagnavera sem grafa eftir rafmynt. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Eyþór Arnalds gagnrýnir áform um hraðalækknir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON skýrslu innri endurskoðanda um nokkur verkefni borgarinnar. skýrslu innri endurskoðanda um nokkur verkefni borgarinnar. Eyþór Arnalds 2 0 . A P R Í L 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.