Fréttablaðið - 20.04.2021, Side 6

Fréttablaðið - 20.04.2021, Side 6
Ég á frekar von á því að það verði rólegheit á næstunni, að minnsta kosti þangað til vorar og ég fer að laga girðingar. Hreggviður Hermannsson, ábúandi á Langholti 1 Við höfum tjáð rúss- neskum stjórnvöldum hver afstaða Bandaríkjanna sé. Kraftur, traust og árangur Hringdu núna 520 9595 Helgi Jóhannes Jónsson Sími: 780 2700 DÓMSMÁL Héraðsdómur Suður- lands sýk naði á miðvikudag Hreggvið Hermannsson af því að hafa lokað aðkeyrslu sinni með vír. Hreggviður, sem er ábúandi á Lang- holti 1 í Flóahreppi, hefur staðið í deilum við nágranna sína um nokk- urra ára skeið. Samkvæmt skýrslum lögreglunnar hefur lögreglan í 22 skipti haft afskipti af lokunum Hreggviðs, milli 13. desember árið 2017 og 29. janúar ári seinna, en hann segist hafa lokað veginum í að minnsta kosti tífalt f leiri skipti og að heimsóknir lögreglu telji vel á fjórða hundrað. Hreggviður kom fyrir stórum steinum beggja vegna við veginn, boraði króka inn í þá og strengdi vírinn á milli. Hann hefur deilt við nágranna sína, Fríði Sólveigu Hann- esardóttur og Ragnar Val Björgvins- son, um ákveðna landspildu. Fríður vitnaði um að í hvert skipti sem veg- inum var lokað hefði hún kallað til lögreglu. Hreggviður vitnaði um að hann hefði ávallt merkt lokunina með glitmerkjum eða veifum. Lögfræðingur Vegagerðarinnar bar vitni fyrir dómnum og staðfesti bréf þess efnis að vegurinn væri ekki á skrá. Á þeim grundvelli var Hreggviður sýknaður. Á sama tíma voru tekin fyrir önnur mál á hendur Hreggviði. Var hann sýknaður af því að hafa tekið samlokusíma af Fríði með þeim afleiðingum að hún marðist á fingri en þá var hann handtekinn og látinn dúsa inni í 8 klukkutíma. Hreggviður var hins vegar sak- felldur fyrir að hafa keyrt niður tvo girðingarstaura og grafið upp plast- rör sem til stóð að setja rafmagns- kapla í og fyrir umferðarlagabrot. Var Hreggviður samanlagt dæmdur til þess að greiða 100 þúsund króna sekt, tæplega 147 þúsund með vöxt- um í bætur og 2 milljónir af launum lögmanna. „Ég er mjög sáttur við þann hluta dómsins sem ég var sýknaður af,“ segir Hreggviður. „Hinum ákæru- liðunum verður áfrýjað.“ Hann segist ekki eiga von á því að fá afsökunarbeiðni frá lögregl- unni þrátt fyrir öll þessi tilhæfu- lausu afskipti. Þessi málabunki er ekki einu mál Langholtsfólks á undanförnum árum. Árið 2018 var Hreggviður dæmdur í mánaðarfangelsi fyrir að snúa upp á handlegg Fríðar og þjófnaði á sófa og staurum. Ragnar Valur var dæmdur í hálfs árs skil- orðsbundið fangelsi árið 2019 fyrir að keyra á Hreggvið. Lögreglustjór- inn á Suðurlandi hefur áður verið úrskurðaður vanhæfur í málum tengdum Langholti vegna tengsla starfsfólks ákærusviðs, og var það því Lögreglustjórinn í Vestmanna- eyjum sem lagði fram ákærurnar sem dæmt var í í síðustu viku. Hreggviður segist ekki hafa sett vírinn upp aftur, umferðin hafi minnkað það mikið og róast milli bæjanna. „Ég á frekar von á því að það verði rólegheit á næstunni, að minnsta kosti þangað til vorar og ég fer að laga girðingar,“ segir Hreggviður. kristinnhaukur@frettabladid.is Endurtekin afskipti lögreglu af nágrannaerjum ástæðulaus Lögreglan á Suðurlandi hafði enga ástæðu til þess að hafa afskipti af vír sem Hreggviður Hermannsson, ábúandi á Langholti 1, setti upp á aðkeyrslu til að stöðva átroðning á landi sínu. Vegurinn var ekki á skrá samkvæmt lögfræðingi Vegagerðarinnar í síðustu viku. Málaferli við nágranna halda þó áfram. Hreggviður segist hafa sett vírinn upp í hundruð skipta. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI BANDARÍKIN Lögmenn lögreglu- mannsins Dereks Chauvin f luttu lokaræðu sína í gær fyrir kvið- dómendur en jafnvel er búist við úrskurði yfir honum í dag. Chauvin kraup á hálsinum á George Floyd í rúmar níu mínútur svo Floyd missti meðvitund og lést á sjúkrahúsi skömmu síðar. Flestar borgir Bandaríkjanna búa sig undir hvernig bregðast skuli við fái Chauvin mildan dóm en búist er við gífurlegum mótmælum um gjörvallt landið fari svo að Chauvin sleppi með skrekkinn. Búðareigendur í Minneapolis, þar sem Chauvin starfaði, hafa byrgt fyrir glugga sína. Washington Times segir til dæmis að NBA ætli að fresta leikjum verði Chauvin dæmdur til vægrar refs- ingar. Hann á yfir höfði sér 40 ára dóm verði hann dæmdur sekur. – bb Dómurinn gæti kveikt mótmæli Réttarhöldin hafa staðið yfir í hart- nær þrjár vikur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY RÚSSLAND Stjórnarandstæðingur- inn Alexei Navalní hefur verið færður úr fangelsi yfir á sjúkrahús fyrir fanga sem staðsett er austur af Moskuborg. Vaxandi áhyggjur eru af heilsu- fari Navalnís en grunur er um að rússnesk stjórnvöld hafi byrlað honum eitur á síðasta ári. Fram kom í yfirlýsingu sem fangelsismála- stofnun Rússlands sendi frá sér í gær að Navalní væri á gjörgæsludeild á sjúkrahúsinu. Þar segir enn fremur að ástand Navalnís sé stöðugt og hann sé undir reglulegu eftirliti lækna. Navalní hefur verið í hungur- verkfalli síðan 31. mars en hann krefst viðunandi læknismeðferðar og skoðunar hlutlauss læknis. Aðstandendur Navalnís eru ekki sammála fyrrgreindum yfirlýs- ingum rússneskra stjórnvalda um heilsufar hans. Þeir segja að Navalní sé í lífshættu þessa stundina en hætt sé við því að hann fái nýrnabilun eða hjartaáfall. Vaxandi spenna er í samskiptum Bandaríkjanna og Rússa. „Við höfum tjáð rússneskum stjórnvöld- um hver afstaða Bandaríkjanna sé. Þá höfum við tilkynnt stjórnvöldum í Kreml að Rússar verði dregnir til ábyrgðar á alþjóðlegum vettvangi veiti þeir Navalní ekki viðeigandi læknismeðferð,“ segir Jake Sullivan, öryggisráðgjafi Bandaríkjastjórnar, í samtali við CNN. – hó Vaxandi spenna vegna alvarlegs ástands Navalnís FÓTBOLTI Aleksander Ceferin, for- seti Evrópska knattspyrnusam- bandsins, UEFA, var ómyrkur í máli þegar hann ræddi Ofurdeild Evrópu á blaðamannafundi í gær. Áform tólf félaga um stofnun Ofurdeildarinnar voru kynnt á sunnudagskvöldið en í gær kynnti UEFA nýtt fyrirkomulag sem verður á Meistaradeild Evrópu. Orð Ceferin staðfestu þann grun sem knattspyrnuáhugamenn hafa haft um að það andi köldu milli for- setans og forráðamanna félaganna sem standa að baki Ofurdeildinni. „Þessir snákar og lygarar hafa sagt við mig að þeir styðji fyrirhug- aðar breytingar á Meistaradeildinni en gengu svo á bak orða sinna,“ segir Ceferin sem beindi orðum sínum að Andrea Agnelli, forseta Juventus, og Ed Woodward, stjórnarformanni Manchester United. Ekki liggur fyrri hvert fyrirkomu- lag verður á keppnum sterkustu félaga Evrópu. Forsetar UEFA og FIFA hafa sagt að þeir sem leika í Ofurdeildinni megi ekki keppa í mótum á vegum sambandanna. – hó Forseti UEFA var hvassyrtur 2 0 . A P R Í L 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.