Fréttablaðið - 20.04.2021, Síða 10

Fréttablaðið - 20.04.2021, Síða 10
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is Við höfum ekkert við hertar aðgerðir að gera ef fólki finnst þær ekki gilda um sig. Ef vantar að styrkja lagastoð undir sótt­ kvíarhótel, þá styrkjum við lagastoð undir sótt­ kvíarhótel. Nú þegar sól fer loks hækkandi á lofti og hitastigið fylgir með, sumardagurinn fyrsti er handan við hornið og bjart­sýnustu Íslendingarnir eru farnir að huga að sumarfrísplönum, þá erum við enn og aftur minnt á hversu viðkvæmt ástandið er. Í tæplega hálft ár hafa ekki greinst eins margir smitaðir og í fyrradag og eru allar líkur á að við höfum ekki séð fyrir endann á þessu nýjasta bakslagi. Undir eins heyrast raddir um að nú þurfi að rífa aftur í hand­ bremsuna og herða enn á ný á aðgerðunum sem verið var að slaka örlítið á. Þeim sem kalla undir eins eftir hertum aðgerðum má benda á að þessi stóru smit urðu þegar við einmitt bjuggum við hertar aðgerðir. Smittilfellin eru einfald­ lega að koma fram núna, tveimur vikum síðar og má rekja þau til tveggja einstaklinga. Tveggja einstaklinga sem fóru óvarlega eftir að hafa komið til landsins og átt að vera í fimm daga sóttkví fram að seinni sýnatöku. Vegna annars þeirra eru nú um eitt hundrað fjöl­ skyldur innilokaðar milli vonar og ótta. Reglurnar voru til staðar en þessir einstaklingar virtu þær ekki. Þar stendur hnífurinn í kúnni! Við höfum ekkert við hertar aðgerðir að gera ef fólki finnst þær ekki gilda um sig. Við erum kannski ekki agaðasta þjóð heims og að sjálfsögðu er þetta orðið drulluþreytandi allt saman en við hljótum að geta virt þessar augljósustu reglur varðandi sóttkví og haldið áfram að leggja áherslu á persónulegar sóttvarnir. Vitandi að ef ekki þá skerðist frelsið enn frekar og þó að lífið hafi ekki beint gengið sinn vanagang hér á landi undanfarið þá búum við við meira frelsi en flestar aðrar þjóðir. Og við bara hljótum að geta látið okkur hafa það að dvelja á hótelherbergi í fimm daga að lokinni utan­ landsferð. Öll vitum við af reglum um heimkomu­ smitgát svo það er erfitt að vorkenna þeim sem velja að ferðast að þurfa að framfylgja þeim. Í mínum huga er hóteldvöl lúxus og ef það að slaka aðeins á frá amstri hversdagsins, lokaður inni á herbergi sem upphaflega var hannað fyrir borgandi ferðamenn í leit að notalegheitum, í þægilegu rúmi, með bullandi nettengingu, þykka sæng og úrval sjónvarpsstöðva, þegar fínustu veitingastaðir eru farnir að stunda heim­ sendingar, er svona agaleg refsing, ætti fólk bara að halda sig alfarið heima. Með því að framfylgja reglum um sóttkví við komu til landsins, hvort sem það er gert heima við eða á hóteli, verjum við náungann og stuðlum að því að samfélagið geti verið virkt. Þeir, sem er sama þó að hundrað fjöl­ skyldum sé nú gert að loka sig af dögum saman, hafa ekki verið innilokaðir með smábarn allan sólarhring­ inn og mögulega þurft að sinna vinnu með. Þeir foreldrar þiggja án efa nokkurra daga einveru á hótelherbergi að því loknu! Skammgóður vermir Aðalfundur ÍSTEX hf. verður haldinn miðvikudaginn 21. apríl 2021, kl. 17:00. Dagskrá 1. Almenn aðalfundarstörf samkvæmt 15. grein samþykkta félagsins. 2. Heimild aðalfundar fyrir félagsstjórn til kaupa á eigin hlutabréfum. 3. Þróunarmál og hönnun. 4. Önnur mál, löglega upp borin. Ársreikningur er til sýnis á skrifstofu í Mosfellsbæ og er sendur hverjum þeim hlutahafa sem þess óskar. Í samræmi við fyrirmæli stjórnvalda til að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveiru verður fyllstu varúðar gætt. Hægt verður að skrá sig á istex.hf@istex.is eða í 566 6300 til að fylgjast með fundinum rafrænt. Umboðsmenn þurfa að leggja fram dagsett og skriflegt umboð. Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent frá skrifstofu félagsins að Völuteig 6 í Mosfellsbæ á fundardag. Mosfellsbæ, apríl 2021. Stjórn ÍSTEX hf. Þjóðaróráð Kórónaveiran var eðli sínu sam- kvæmt ekki lengi að ná vopnum sínum og fjöldi tilfella smits rauk upp á sunnudaginn. Fingrum var því að vonum bent í ýmsar áttir á Facebook í gær. Helga Vala Helgadóttir, þingman Sam- fylkingar, skilaði meðal annars smitskömminni: „27 ný smit og ríkisstjórn þar sem Sjálfstæðis- flokkurinn hefur neitunarvald gagnvart nauðsynlegum sótt- varnaaðgerðum. Er það ráðlegt kæra þjóð?“ Þá sagðist Illugi Jök- ulsson seinþreyttur til vandræða áður en hann spurði „en er ekki kominn tími til að við hættum að trúa því að ríkisstjórnin sé að leysa þetta vel?“. Voff! Miklu fleiri ítrekuðu kröfuna um að stjórnvöld skytu loku fyrir lekann á landamærunum. Blaðamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson viðraði þó áhyggjur af öðru viðlagi sem einnig ómar hátt. „Einhver jólasveinn for- smáir reglur um sóttkví og þá rjúka málsmetandi menn upp geltandi og hafa til marks um að þar hafi sannast að ríkisstjórnin hafi verið á hárréttu róli með að brjóta lög og sneiða að borgara- legum réttindum með frelsis- sviptingum. Gaman að þessu, eða þannig.“ Bubbi Morthens svaraði honum að bragði með kröfu um að að landinu yrði ein- faldlega „kloss lokað“. toti@frettabladid.is Árangur Íslands í sóttvörnum hefur verið svo góður að eftir hefur verið tekið. Með samstilltu átaki hefur okkur tekist að haga málum þannig að áhrif heimsfaraldurs á daglegt líf fólks hafa verið minni hér en víða. Mörg voru því farin að líta sumarið hýru auga; það yrði hægt að lifa enn frjálsara lífi hér en við þó gerum í dag. Til að svo megi verða þarf að tryggja að sótt­ varnir séu áfram eins og best verður á kosið. Við þurfum að huga að persónulegum sóttvörnum, nota grímuna, halda skilgreindri fjarlægð og þvo okkur um hendur, spritta og virða samkomutak­ markanir. Það sama á við um landamærin; við verðum að hafa þær reglur þar við lýði sem tryggja sem bestar sóttvarnir. Sóttkvíarhótel er ein af þeim aðferðum sem talin var nauðsynleg til að tryggja sem bestar sóttvarnir. Reglugerð um það reyndist ekki hafa lagastoð og því var fallið frá skylduvist í sóttkvíar­ hóteli. Þess í stað treystum við á að fólk sem kemur yfir landamærin virði allar reglur um sóttkví; líka nýju og strangari reglurnar sem voru settar eftir úrskurð um sóttkvíarhótel. Eins og dæmin sanna þarf ekki nema örfá tilvik um að reglur séu ekki virtar í hvívetna, kannski bara eitt, til að smit breiðist út. Ég er einfaldur maður og horfi til einfaldra lausna. Ef vantar að styrkja lagastoð undir sótt kvíarhótel, þá styrkjum við lagastoð undir sóttkvíarhótel. Ávinningurinn af slíku er ótvíræð­ ur; við hljótum öll að vilja að hægt sé að slaka enn frekar á klónni innanlands. Átt frjálsara sumar. Frekar en að herða reglur aftur. Í löngu og viðamiklu verkefni getur það gerst að á lokametrunum verði löngunin til að ljúka verkefninu öllu öðru yfirsterkara. Við megum ekki falla í þá gryfju með COVID. Það er jafn mikilvægt núna og fyrir ári síðan að huga vel að öllum sótt­ vörnum. Sýnum skynsemi í sóttvörnum. Sýnum skynsemi í sóttvörnum Kolbeinn Óttarsson Proppé þingmaður Vinstri grænna ? 2 0 . A P R Í L 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.