Fréttablaðið - 20.04.2021, Page 12

Fréttablaðið - 20.04.2021, Page 12
Íslendingar búa við góða heil-brigðisþjónustu í alþjóðlegum samanburði. Hér ríkir almenn sátt um mikilvægi þess að tryggja öllum jafnt aðgengi að heilbrigðis- þjónustu óháð efnahag, sem er vel. Hingað til má segja að þetta aðgengi hafi verið tryggt eftir mismunandi leiðum. Nú virðist heilbrigðisráð- herra, í einbeittri andstöðu sinni við einkarekstur í heilbrigðiskerfinu, stefna því aðgengi í hættu. Samningar við sjálfstætt starfandi sérgreinalækna runnu út árið 2018 og hefur ekki náðst að semja síðan þá. Umræddir sérfræðilæknar eru barnalæknar, háls-, nef- og eyrna- læknar, hjartalæknar og allt þar á milli. Í millitíðinni hefur verið stuðst við tímabundnar reglugerðir ráð- herra um endurgreiðslufyrirkomu- lag á kostnaði. Nú hefur heilbrigðis- ráðherra kynnt nýja reglugerð, sem miðar að því að koma í veg fyrir að sjálfstætt starfandi sérgreinalæknar rukki viðbótargjald fyrir þjónustu sína. Læknar hafa hins vegar bent á að vandamálið kristallist í því að ráðherra ákveði einhliða eininga- verð sem taki ekki mið af raunkostn- aði þjónustunnar og deilt er um hvort það hafi fylgt verðlagsþróun. Þetta er ástæða þess að læknar hafa talið sig þurft að rukka viðbótar- gjald svo þjónustan standi undir sér. Í stað þess að uppfæra gjaldskrána svo hún mæti raunkostnaði hefur ráðherra ákveðið, meðvitað eða ómeðvitað, að leggja grunn að tvö- földu heilbrigðiskerfi. Þetta eykur líkur á að hér á landi verði ekki boðið upp á tiltekna þjónustu enda muni hún ekki standa undir sér, eða þá að hún verði einvörðungu í boði án greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga. Þar með mun almenningur bera hærri kostnað sem getur beinlínis skert aðgengi lágtekjuhópa að heil- brigðisþjónustu. Með öðrum orðum: Þeir sem geta borgað hafa þannig meira val um læknisþjónustu en þeir sem hafa minna milli handanna. Allir græða Best væri ef heilbrigðiskerfið veitti fyrsta flokks þjónustu með öruggum hætti og án tafa, með þarfir sjúkl- ingsins í huga. Þannig gætu sjúkling- ar fengið þá heilbrigðisþjónustu sem þeir þurfa á viðráðanlegu verði, óháð því hvert rekstrarform veitenda þjónustunnar er. Sem kaupandi heilbrigðisþjónustu ber hinu opin- bera að beita sér til að ná fram sem bestu kjörum og tryggja betri gæði og hámarksskilvirkni í heilbrigðis- kerfinu. Á þar ekki að breyta neinu hvort það veitir þjónustuna sjálft eða mótar ramma utan um hana og úthýsir henni með einum eða öðrum hætti. Gott dæmi um hvernig sjúkling- urinn hefur verið settur í forgang eru úrbætur sem gerðar voru á fjár- mögnunarlíkani heilsugæslustöðva, en fjármagn fylgir einstaklingnum nú í þá heilsugæslu sem hann velur sér, óháð rekstrarformi hennar. Í þjónustukönnun heilsugæslu- stöðva á höfuðborgarsvæðinu, sem Maskína framkvæmdi fyrir Sjúkra- tryggingar Íslands, kom fram að mest ánægja væri með einkareknar heilsugæslustöðvar. Samt sem áður er þjónusta þeirra hvorki dýrari fyrir sjúklinginn né hið opinbera. Allir tapa Hér á landi gætir misskilnings og jafnvel fordóma gagnvart einka- framtaki í heilbrigðisstarfsemi, einkum í tengslum við greiðslu- þátttöku einstaklinga. Þannig hefur því verið haldið fram að hagnist fyrirtæki eða einstaklingur á starf- seminni sé hún þar af leiðandi dýrari fyrir kaupandann. Þetta er ekki rétt – umrædd þjónusta er í flestum til- fellum mun hagkvæmari. Niðurstað- an er því ódýrari og betri þjónusta til neytenda. Í heilbrigðiskerfinu hefur borið á því að sjúklingar séu fluttir úr landi í hinar ýmsu aðgerðir með gríðarlegum kostnaði, í stað þess að samið sé við innlenda einkaaðila með auknu hagræði fyrir sjúkling- inn og hið opinbera. Ef vel er staðið að gerð slíkra samninga skiptir engu hvort þjónustan sé framkvæmd á vegum hins opinbera eða einkaaðila enda er upphæðin sem fylgir sjúkl- ingnum í báðum tilvikum sú sama. Herferð gegn fjölbreyttum rekstr- arformum í heilbrigðiskerfinu mun að óbreyttu leiða til verri nýtingar fjármuna og þar með verri þjónustu við landsmenn. Hún ýtir einnig undir spekileka með því að fæla frá sérfræðinga á sviðinu. Heilbrigðis- ráðherra á ekki að leysa einn vanda, þann að hafa ekki náð samningum, með því að búa til annan og verri. Nema markmið og lausn ráðherrans sé tvöfalt heilbrigðiskerfi með einka- reknum sjúkratryggingum. Ráðherra á rangri leið Agla Eir Vil- hjálmsdóttir lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands Þegar við nokkrir félagar úr Sa m f yl k i ng u n n i h it t u m Håkan Juholt, fyrrverandi leiðtoga sænskra jafnaðarmanna og sendiherra, fyrir hartnær ári síðan til að ræða við hann um jafnaðar- stefnu og jafnaðarstarf, bað hann okkur um að ímynda okkur að Sam- fylkingin hyrfi af yfirborði jarðar. Síðan skyldum við spyrja okkur sjálf að því hvort það breytti ein- hverju fyrir Ísland. Ef við kæmumst að því að það breytti engu ættum við að íhuga að finna okkur annað áhugamál. Þessa spurningu ættu jafnaðar- menn alltaf að hafa í huga. Hvers vegna þurfum við jafnaðarmanna- f lokk? Hvers vegna þarf fólkið á Íslandi, eða mikill meiri hluti þess, sósíaldemókratíska hreyfingu? Það er sama spurningin og: Hvers vegna þurfum við verkalýðshreyfingu og samtök launafólks? Við þurfum jafnaðarmanna- flokk vegna þess að launafólk þarf á hreyfingunni að halda. Við þurfum jafnaðarmannaflokk vegna þess að það þarf að bæta kjör venjulegs vinnandi fjölskyldufólks. Við þurfum jafnaðarmannaflokk vegna þess að núverandi ríkisstjórn skilur ekki, eða vill ekki skilja, þarfir og hagsmuni fjölskyldna, atvinnulausra, innflytjenda, ungs fólks, öryrkja og ellilífeyrisþega. Håkan Juholt sagði annað: Hann sagði að við þyrftum að gera það sem skiptir venjulegt fólk máli í þess daglega lífi. Og hann bætti við, sem dæmi: Þið eigið að setja upp sumar- búðir fyrir börn sem eru heima hjá sér allt sumarfríið vegna þess að foreldrar þeirra hafa ekki efni á neinum ferðalögum. Ég segi við ykkur, íslenskt jafn- aðarfólk: Hvers vegna ekki? Hvers vegna vinnum við ekki þörf sam- félagsverkefni, skiptum máli í dag- legu lífi venjulegs fólks? Á ekki Kvennahreyfing Sam- fylkingarinnar að bjóða erlendum konum í kaffi og spjall til dæmis mánaðarlega, konum sem eru ein- angraðar og kynnast ekki íslenskum konum eða eiga enga íslenska vini? Eigum við ekki að hringja reglu- lega í félaga okkar sem komnir eru á efri ár, sem alveg eins er líklegt að fái fáar hringingar, eru ekkjur eða ekklar, búa ein, eru einmana eða börnin hringja sjaldan? Hvers vegna ekki? Ég nefndi hringingar. Við höfum verið að hringja undanfarnar vikur í félaga okkar í f lokknum, spjalla um komandi alþingiskosningar og fá fólk í sjálf boðaliðavinnu. Þar höfum við einmitt fundið fyrir þörf eldra fólks fyrir samtöl, gamals jafn- aðarfólks sem man tímana tvenna úr verkalýðsbaráttunni og hefur ánægju af samtali við yngra flokks- fólk. Ein gömul kona á Suðurnesjum sem Ragna forseti UJ hringdi í síð- astliðinn laugardag sagði við hana að sér fyndist hún verða ung í annað sinn bara við það að ung kona úr f lokknum hringdi í sig til að tala um pólitík og aðstæður fólks í sinni heimabyggð. Eitt af mínum símtölum hefur ekki vikið úr huga mér. Ég talaði við einstæða, f jögurra barna móður sem hafði misst vinnuna, á leið að selja íbúðina vegna þess að hún réði ekki við af borganirnar, var í harki með íhlaupavinnu og fannst niðurlægjandi að skrá sig á atvinnuleysisbætur, þrátt fyrir að hafa greitt skatta og skyldur árum og áratugum saman. Við eigum að haga komandi kosningabaráttu þannig að þessi einstæða móðir segi við sjálfa sig: Það borgar sig fyrir mig að kjósa Samfylkinguna. Vegna þess að hún trúir því í hjarta sér að við munum ekki unna okkur hvíldar fyrr en aðstæður hennar, og tugþúsunda annarra, hafa batnað. Vegna þess að við meinum það sem við segjum og gerum það sem við meinum. Vegna þess að fólk treystir okkur. Gera það sem skiptir venjulegt fólk máli í þess daglega lífi. Tala um það sem skiptir venjulegt fólk máli í þess daglega lífi. Berjast fyrir breytingum sem skipta venjulegt fólk máli í þess daglega lífi. Og við þurfum einlægt að spyrja okkur: Skiptum við máli fyrir venjulegt fólk í þess daglega lífi? Aðal pólitískur ráðgjafi formanns breska Verkamannaflokksins, Cla- ire Ainsley, skrifaði bók sem kom út árið 2018 og heitir The New Work- ing Class, How to win hearts, minds and votes, eða Nýja verkalýðsstétt- in, hvernig á að vinna hjörtu, hug og atkvæði. Fyrir utan áhugaverð- ar pælingar um þau gildi sem við eigum að tala um, fjölskyldu, sann- girni, vinnusemi og heiðarleika, þá segir hún á blaðsíðu 153 að stjórn- málaflokkar geri sig oft seka um að tala við sjálfa sig, gerandi ráð fyrir að þeirra hugmyndaheimur skipti kjósendur meira máli en hann gerir í raun og veru. Kjósendur hafa ekki áhuga á stjórnmálaf lokkum, þeir hafa áhuga á sér, sínum aðstæðum og kjörum. Íslenskt jafnaðarfólk: Við skulum hafa þetta í huga á þeim mánuðum sem fram undan eru, fram að kosn- ingunum í september. Við skulum haga starfi okkar og athöfnum, gjörðum og skilaboðum þannig að launafólk sjái hag sínum best borgið með því að greiða jafnaðarmönnum atkvæði sitt. Við skulum sýna það í verki að við erum verð atkvæðanna. Við skulum berjast með orði og athöfnum, í bæjum og sveitum, á fundum og samkomum, á götum og í verslunarkjörnum, heima hjá okkur og á Austurvöllum Íslands. Við skulum aldrei gefast upp! Einmitt: venjulegt, vinnandi fjölskyldufólk Kjartan Valgarðsson formaður framkvæmda- stjórnar Sam- fylkingarinnar Græn svæði eru eins og víta-mínsprauta fyrir framtíðina og hafa mikil áhrif á fram- tíðarlýðheilsu borgarbúa. Mikil- vægt er að standa vörð um réttinn til leiks og hreyfingar fyrir börn.“ Þetta var birt á vef Reykja- víkurborgar sama dag og gröfu var komið fyrir við Vatnshólinn á Rauðar árholti. Þar er verið að grafa upp grænan hverfisgarðinn á Sjó- mannaskólareitnum. Einnig er vitnað í grein eftir Katrínu Karlsdóttur skipulags- verkfræðing með meistarapróf í umhverfissálfræði sem birtist í Fréttablaðinu 29. ágúst 2019. „Fyrir börn sem lifa við græn svæði og fá þessa náttúru inn í sitt daglega líf hefur þetta áhrif á hreyfiþroska, félagsþroska og andlegan þroska. Það eru minni líkur á að börn sem alast upp nærri grænum svæðum þrói með sér geð- ræn vandamál.“ Þetta er í algjörri andstöðu við það sem er að gerast á Sjómanna- skólareitnum. Ég tel þéttingu borgarinnar af hinu góða. En því þéttari sem borgin verður, þeim mun mikil- vægari eru grænu svæðin. Þétt- ingin á Sjómannaskólareitnum er ekki nema 10% af þeirri þéttingu, 1.300 íbúðir, sem lögð er á hverfið í heild á árunum 2010-2030. Byggja á fyrir sjónlínur Sjómannaskólans og umhverfis Vatnshólinn, hverfis- vernd virt að vetthugi. Listaverkinu Saltfiskstöflun eftir Sigurjón Ólafs- son er stefnt í hættu sem og öðrum menningarminjum. Er Klambratún ekki nóg? Það er tún fullorðinna. Þangað fara börn ekki fylgdarlaus. Túnið er umlukið stórum umferðargötum, og þar er alls konar fólk á ferli. Klambratún er þó frábær almenn- ingsgarður. Þar fá börn hins vegar ekki svalað ævintýraþörfinni. Sjómannaskólareiturinn hefur segulmagnað aðdráttaraf l. Er upp- spretta ævintýra og iðar því af lífi árið um kring. Þar njörvar ekki hin ferhyrnda manngerða veröld niður ímyndunaraf lið sem er ómissandi hluti af barnæskunni. Þegar þessi græni reitur fer undir malbik, líkt og móinn handan Kennaraháskól- ans, er ekkert eftir fyrir börnin í hverfinu nema steypt skólalóðin sem þegar telur fæsta fermetra per nemanda á landinu. Á tímum tækninnar þar sem börn eru matreidd af áhorfsefni og geta fundið svör við öllu með Google að vopni, er mikilvægt að ýta undir að þau virki ímyndunar- af lið sitt, því þannig ef list sjálfs- traust og sjálfsálit þeirra. Brýnt er að skapa svæði, aðstæður og stundir þar sem börn þurfa að beita eigin sköpunarkrafti og elta eigið ímyndunaraf l þangað sem það leiðir þau. Cas Holman, leikfanga- og leik- svæðahönnuður, segir nauðsynlegt að meta gildi gleði og mikilvægi leiks á mótunar- og þroskaárum barna. Hún segir þar nauðsyn frjálsa útileiksins bera hæst. Til- gangur þess að leika sér úti er ekki annar en að útileikurinn leiðir leik- inn áfram og tímaskynið hverfur. Það er hlutverk okkar fullorðna fólksins að hvetja börn til að elta forvitni sína eins langt og hún leiðir þau, með ímyndunaraf lið og sköpunarkraftinn að vopni. Það ef lir hugrekki þeirra og sjálfstæði. Útileikur með vinum ef lir einn- ig munnleg samskipti, gagnkvæma virðingu og traust fyrir náungan- um sem er í raun grunnforsenda þess að mannkynið lifi af. Sam- hliða leikur, leikur í gegnum tölvu og textasamskipti eru orðin vanda- mál meðal ungmenna í dag. Svip- brigði sjást ekki og því átta ung- menni sig ekki á því hvort það sem þau skrifa er viðeigandi eða ekki. Á skjánum falla múrar mannlegra samskipta, tjáskipta og nándar. Hvers vegna eruð þið Íslendingar svona góð í öllu? Er spurning sem ávallt dynur á okkar fólki sem er að skara fram úr um allan heim, á öllum sviðum mannlífsins; íþrótt- um, listum, tækni, viðskiptum og svo framvegis. Jú, að mínu mati er það vegna þess að við erum börn náttúrunnar, börn frelsisins. Alin upp við það gagnkvæma traust að fá að vera frjáls úti að kanna hvað umhverfi okkar hefur upp á að bjóða. Við erum alin upp við hlíðina, hraunið, sjóinn, dalinn, móann, Vatnshólinn og víðar. Við þurftum sjálf að finna hætturnar, skapa ævintýrin, finna áferðina á mosanum, þekkja lyngið, þefa af jurtunum og róta í moldinni. Allt er þetta hluti af því sem nútímasamfélagið syrgir. Sem barn í náttúrunni ertu í núvit- und, finnur lykt, jafnvel bragð af lyngi. Heyrir fuglasöng, lækjar- nið og sérð allt það sem stormandi nútímamaðurinn er að fara á mis við í amstri hversdagsins. Tölvur og snjalltæki eru að ræna frítíma æskunnar, þroskanum sem fylgir útileiknum. Hingað kom ástralskur sál- fræðingur 2019 að rannsaka hvers vegna börn á Íslandi væru meira úti en í öðrum löndum. Niðurstaðan var einföld: Hér er óspillt náttúra í göngufæri barna. Frelsið og nátt- úran toga börnin út. Útivera stuðlar að betri heilsu; lýðheilsu, geðheilbrigði og hreysti. Vatnshóllinn og nærumhverfi hafa þennan togkraft. Börn ganga inn í sinn eigin töfraheim. Stökkva steina á milli. Fara í feluleik í skóg- inum. Tína jurtir og bjóða upp á te. Rúlla niður grænar hlíðar Vatns- hólsins er vora fer. Er vetrar breyt- ist hóllinn í sleðabrekku. Fjölskyld- ur leggjast niður á hólnum, horfa á stjörnurnar og norðurljósin. Hver áramót safnast hverfið saman uppi á Vatnshólnum, engin brenna þörf. Í Vatnshólnum má heyra hjarta hverfisins slá og þannig á það að vera um ókomna tíð. Reykjavík er græn borg og vill vera það Sunna Dögg Ásgeirsdóttir vöruhönnuður 2 0 . A P R Í L 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R12 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.