Fréttablaðið - 20.04.2021, Blaðsíða 15
ALLT
K Y N N I NG A R B L A Ð
ÞRIÐJUDAGUR 20. apríl 2021
Ólafur Sigurðsson er eigandi Varmáss sem hefur fært nýjustu framfarir og tækni inn í skóla, stofnanir og fyrirtæki landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hjálplegir róbótar sem sýna
menn, hluti, staði og málefni
Rafeindavirkjameistarinn Ólafur Sigurðsson í Varmás hefur fært íslenskum skólum og
fyrirtækjum mörg tækniundrin sem öll hafa gert þeim lífið auðveldara og skemmtilegra. 2
Góður svefn er
mikilvægur!
HVERNIG
SVAFST ÞÚ?
Síðasti dagur vetrar er á morgun.
Sannkallaður gleðidagur í lífi
íslensku þjóðarinnar sem kveður
þar með kaldari daga og brosir mót
blíðu og hækkandi sól.
Margir hafa fyrir sið að kveðja
veturinn með gleðskap í góðra
vina hópi, enda er hefðin að fagna
fyrsta degi sumars með elstu
hátíðum íslenskrar menningar.
Og þótt kórónaveiran þvælist
fyrir fjölmennum samfundum í
ár má vel eiga glaða stund í sínum
innsta hring og njóta vel í mat,
drykk og sumarvísum, eða jafn-
vel vetrarljóðum til heiðurs Vetri
konungi og hans fagra vetrar-
ríki. Þá hafa sumir boðið sínum
nánustu í sérstakt sumardagskaffi,
með sumarlegum hnallþórum
og íslensku kaffimeðlæti eins og
fagurskreyttum brauðtertum,
flatkökum, pönnukökum og
nýsteiktum kleinum.
Gott frost fyrstu sumarnóttina
Samkvæmt íslenskri þjóðtrú er
sagt að það boði gott sumar ef
vetur og sumar frjósa saman.
Dugar þá mörgum að fylgjast með
hitamælinum hina fyrstu sumar-
nótt, hvort mælirinn fari undir
frostmark, en margir setja út disk
með vatni til að sjá að morgni
sumardagsins fyrsta hvort vatnið
hafi frosið um nóttina.
Sumardaginn fyrsta ber alltaf
upp á fimmtudag í lok apríl eða
fyrsta fimmtudag eftir 18. apríl.
Hann er fyrsti dagur hörpu, sem er
fyrstur hinna sex sumarmánaða,
samkvæmt gamla tímatalinu.
Hann var einnig kallaður yngis-
meyjadagur á árum áður.
thordisg@frettabladid.is
Konungur kvaddur
Vertu sæll, gamli góði vetur!