Fréttablaðið - 20.04.2021, Page 46
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Fimmtíu ár verða í vor liðin frá því að Danir af hentu Íslendingum Konungsbók eddukvæða og Flateyjarbók til varð-veislu. Þessi tímamót
gefa Árnastofnun tilefni til þess að
bjóða grunnskólakrökkum á hand-
ritaheimkomuhátíð sem verður
streymt frá Hörpu að morgni síðasta
vetrardags.
„Það er einhver grunnmannlegur
sannleikur í þessum sögum öllum og
þessum boðskap. Það er allt í þessu,“
segir leikarinn Ólafur Egill Egilsson
sem Árnastofnun fékk til þess að
leikstýra og skrifa handrit hátíðar-
innar sem er hugsuð til þess að „færa
börnunum handritin“ með því að
kynna fyrir þeim mesta dýr-
gripinn, Konungsbók eddu-
kvæða.
„Meginstefið í þess-
ari dagskrá er kannski
að segja við krakkana:
Þetta er ykkar bók.
Þetta er ykkar Konungs-
bók sem við varðveitum
en allur heimurinn á
hana og það er um að gera
að nota hana og njóta
hennar,“ segir Ólafur
Egill og bætir við að
hann haf i skemmt
sér konunglega við að
setja dagskrána saman
ásamt Steineyju Skúladóttur sem
einnig er sögumaður.
Stigið inn í Goðheima
Ólafur Egill segir sín fyrstu kynni
af Konungsbók hafa verið í gegnum
hinar vel þekktu, dönsku teikni-
myndasögur um Goðheima. „Fyrir
mér var innihald Konungsbókar
eddukvæða einhvern veginn alltaf
mjög áþreifanlegur og lifandi heim-
ur í krafti þessara teiknimynda-
sagna. Fullur af skemmtilegum og
skrýtnum ævintýrum og ótrúlegum
karakterum. Ég var alveg heillaður.“
Í kjölfarið fylgdu síðan hlutverka-
spil, kvikmyndir og allt mögulegt
annað sem leiddu hann lengra inn í
goðheimana. „Það er auðvitað orðið
miklu meira um þetta í seinni tíð.
Vísindaskáldskapur og fant-
asíur eru gríðarlega vin-
sælar í dag og þar eru
eddukvæðin auð-
vitað alger lykill.
Útgangspunktur
okkar Steineyjar
varð dálítið að
finna hvar snerti-
f lötur krakka á
grunnskólaaldri er
við þessar sögur og
sagnir.
Þau eru til
dæmis ekki að
fletta upp í ljós-
mynduðu útgáf-
unum af hand-
ritunum, eða lesa lærðar ritgerðir
en þau kveikja á sögunum sjálfum,
söguefninu, persónunum, gríninu
og dramatíkinni. Það er það sem
við erum svolítið að leggja áherslu
á í þessari dagskrá. Að þetta er
skemmtilegur og heillandi heimur.“
Karl fer í kjól
Ólafur Egill segir þau hafa gert sér
góðan mat úr dægurmenningunni
með því að safna saman efni úr bíó-
myndum, tölvuleikjum og ýmsu
öðru sem klippt var saman í ansi
magnaða stiklu.
„Svo leikum við Þrymskviðu,
sem er ein af skemmtilegustu og
aðgengilegustu sögunum og er
náttúrlega bara frábær eins og
þær allar. Ég meina, það er alltaf
gaman að góðum kynusla og að
þrumuguðinn Þór skelli sér í kjól
til að endurheimta hamarinn sinn
er bæði klassískt minni og síungt,“
segir Ólafur Egill og veltir upp
spurningum um hvaða lærdóm
megi draga af þessu neyðarúrræði
Þórs sem alla jafna er karlmennsk-
an holdi klædd.
„Jú, maður þarf auðvitað að vera
opinn fyrir því að prófa nýja hluti.
Skella sér jafnvel í kjól. Það getur
verið lausn á málunum. Að víkja
frá stöðluðum hugmyndum um
kyn og kyngervi. Svo á maður líka
að passa upp á hamarinn sinn og
svo er náttúrlega óboðlegt að ætla
að skipta á manneskju, eða gyðju,
ástargyðjunni Freyju, og hamri.
Hámark hlutgervingarinnar. Þetta
er allt, held ég, boðskapur sem á enn
við og krakkarnir eiga auðvelt með
að tengja við.
Nýtt samhengi
Sjálfum finnst mér þessi sagna-
heimur svo óendanlega skemmti-
legur og ég vona bara að það komist
til skila. Í dagskránni fara Steiney og
meðleikarar hennar á f lug og leika
sér með þennan síkvika sagnaarf
sem býður upp á endalausa túlk-
unarmöguleika,“ segir Ólafur Egill
sem nálgaðist sagnaarfinn af ákveð-
inni virðingu.
„Okkur þykir vænt um þessar
bækur. Þær eru mikilvægar og dýr-
mætar en að virða þær þýðir ekki að
þær séu svo háhelgar og heilagar að
það sé ekki hægt að taka þær aðeins
í sundur og setja í nýtt samhengi og
endurtúlka þær eins og við gerum.“
RÚV og ruv.is streyma dag-
skránni sem hefst klukkan tíu á
miðvikudagsmorgun.
toti@frettabladid.is
Þrumuguðinn fer í
skólann í kjól Freyju
Ólafur Egill Egilsson opnar Konungsbók fyrir grunnskólakrökkum
með myndasögum og bíómyndum þannig að þau geti haft gagn og
gaman af dýrgrip sem þjóðin hefur haft til varðveislu í hálfa öld.
Ólafur Egill segir Konungsbók svolítið eins og Agnes biskup, Ævar vísindamaður og fleiri hefðu skrifað bók saman.
Hún sé spennubók, grínbók. „Og svo eru Hávamálin auðvitað nokkurs konar sjálfshjálparbók.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Þór í brúðarkjól í myndasögunni
Hamarsheimt úr Goðheima-
flokknum sem opnaði Ólafi Agli
ungum leið inn í Konungsbók.
Marvel-hetjurnar Loki og Þór eru
þekktustu fulltrúar Konungsbókar í
kvikmyndaheiminum.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
TAX
FREE
ÖLL HEILSURÚM*
* Taxfree tilboðið jafngildir 19,35% afslætti
og gildir á öllum heilsurúmum nema frá
Simba. Afslátturinn er af dýnum, botnum
og fótum. Gildir ekki ofan á önnur tilboð eða
af sérpöntunum. Að sjálfsögðu fær ríkissjóð-
ur virðisaukaskatt af söluverði. Afsláttur inn
er alfarið á kostnað Dorma.
www.dorma.is
VEFVERSLUN
ALLTAF
OPIN
SKRÁÐU ÞIG Á
PÓSTLISTANN
Fáðu blað dagsins
sent rafrænt
2 0 . A P R Í L 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð