Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.04.2021, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 20.04.2021, Qupperneq 46
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Fimmtíu ár verða í vor liðin frá því að Danir af hentu Íslendingum Konungsbók eddukvæða og Flateyjarbók til varð-veislu. Þessi tímamót gefa Árnastofnun tilefni til þess að bjóða grunnskólakrökkum á hand- ritaheimkomuhátíð sem verður streymt frá Hörpu að morgni síðasta vetrardags. „Það er einhver grunnmannlegur sannleikur í þessum sögum öllum og þessum boðskap. Það er allt í þessu,“ segir leikarinn Ólafur Egill Egilsson sem Árnastofnun fékk til þess að leikstýra og skrifa handrit hátíðar- innar sem er hugsuð til þess að „færa börnunum handritin“ með því að kynna fyrir þeim mesta dýr- gripinn, Konungsbók eddu- kvæða. „Meginstefið í þess- ari dagskrá er kannski að segja við krakkana: Þetta er ykkar bók. Þetta er ykkar Konungs- bók sem við varðveitum en allur heimurinn á hana og það er um að gera að nota hana og njóta hennar,“ segir Ólafur Egill og bætir við að hann haf i skemmt sér konunglega við að setja dagskrána saman ásamt Steineyju Skúladóttur sem einnig er sögumaður. Stigið inn í Goðheima Ólafur Egill segir sín fyrstu kynni af Konungsbók hafa verið í gegnum hinar vel þekktu, dönsku teikni- myndasögur um Goðheima. „Fyrir mér var innihald Konungsbókar eddukvæða einhvern veginn alltaf mjög áþreifanlegur og lifandi heim- ur í krafti þessara teiknimynda- sagna. Fullur af skemmtilegum og skrýtnum ævintýrum og ótrúlegum karakterum. Ég var alveg heillaður.“ Í kjölfarið fylgdu síðan hlutverka- spil, kvikmyndir og allt mögulegt annað sem leiddu hann lengra inn í goðheimana. „Það er auðvitað orðið miklu meira um þetta í seinni tíð. Vísindaskáldskapur og fant- asíur eru gríðarlega vin- sælar í dag og þar eru eddukvæðin auð- vitað alger lykill. Útgangspunktur okkar Steineyjar varð dálítið að finna hvar snerti- f lötur krakka á grunnskólaaldri er við þessar sögur og sagnir. Þau eru til dæmis ekki að fletta upp í ljós- mynduðu útgáf- unum af hand- ritunum, eða lesa lærðar ritgerðir en þau kveikja á sögunum sjálfum, söguefninu, persónunum, gríninu og dramatíkinni. Það er það sem við erum svolítið að leggja áherslu á í þessari dagskrá. Að þetta er skemmtilegur og heillandi heimur.“ Karl fer í kjól Ólafur Egill segir þau hafa gert sér góðan mat úr dægurmenningunni með því að safna saman efni úr bíó- myndum, tölvuleikjum og ýmsu öðru sem klippt var saman í ansi magnaða stiklu. „Svo leikum við Þrymskviðu, sem er ein af skemmtilegustu og aðgengilegustu sögunum og er náttúrlega bara frábær eins og þær allar. Ég meina, það er alltaf gaman að góðum kynusla og að þrumuguðinn Þór skelli sér í kjól til að endurheimta hamarinn sinn er bæði klassískt minni og síungt,“ segir Ólafur Egill og veltir upp spurningum um hvaða lærdóm megi draga af þessu neyðarúrræði Þórs sem alla jafna er karlmennsk- an holdi klædd. „Jú, maður þarf auðvitað að vera opinn fyrir því að prófa nýja hluti. Skella sér jafnvel í kjól. Það getur verið lausn á málunum. Að víkja frá stöðluðum hugmyndum um kyn og kyngervi. Svo á maður líka að passa upp á hamarinn sinn og svo er náttúrlega óboðlegt að ætla að skipta á manneskju, eða gyðju, ástargyðjunni Freyju, og hamri. Hámark hlutgervingarinnar. Þetta er allt, held ég, boðskapur sem á enn við og krakkarnir eiga auðvelt með að tengja við. Nýtt samhengi Sjálfum finnst mér þessi sagna- heimur svo óendanlega skemmti- legur og ég vona bara að það komist til skila. Í dagskránni fara Steiney og meðleikarar hennar á f lug og leika sér með þennan síkvika sagnaarf sem býður upp á endalausa túlk- unarmöguleika,“ segir Ólafur Egill sem nálgaðist sagnaarfinn af ákveð- inni virðingu. „Okkur þykir vænt um þessar bækur. Þær eru mikilvægar og dýr- mætar en að virða þær þýðir ekki að þær séu svo háhelgar og heilagar að það sé ekki hægt að taka þær aðeins í sundur og setja í nýtt samhengi og endurtúlka þær eins og við gerum.“ RÚV og ruv.is streyma dag- skránni sem hefst klukkan tíu á miðvikudagsmorgun. toti@frettabladid.is Þrumuguðinn fer í skólann í kjól Freyju Ólafur Egill Egilsson opnar Konungsbók fyrir grunnskólakrökkum með myndasögum og bíómyndum þannig að þau geti haft gagn og gaman af dýrgrip sem þjóðin hefur haft til varðveislu í hálfa öld. Ólafur Egill segir Konungsbók svolítið eins og Agnes biskup, Ævar vísindamaður og fleiri hefðu skrifað bók saman. Hún sé spennubók, grínbók. „Og svo eru Hávamálin auðvitað nokkurs konar sjálfshjálparbók.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Þór í brúðarkjól í myndasögunni Hamarsheimt úr Goðheima- flokknum sem opnaði Ólafi Agli ungum leið inn í Konungsbók. Marvel-hetjurnar Loki og Þór eru þekktustu fulltrúar Konungsbókar í kvikmyndaheiminum. Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði TAX FREE ÖLL HEILSURÚM* * Taxfree tilboðið jafngildir 19,35% afslætti og gildir á öllum heilsurúmum nema frá Simba. Afslátturinn er af dýnum, botnum og fótum. Gildir ekki ofan á önnur tilboð eða af sérpöntunum. Að sjálfsögðu fær ríkissjóð- ur virðisaukaskatt af söluverði. Afsláttur inn er alfarið á kostnað Dorma. www.dorma.is VEFVERSLUN ALLTAF OPIN SKRÁÐU ÞIG Á PÓSTLISTANN Fáðu blað dagsins sent rafrænt 2 0 . A P R Í L 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.