Fréttablaðið - 20.04.2021, Side 48
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
BAKÞANKAR
Við þorpið þar sem ég bý liggur langur göngustígur meðfram umferðargötu og á
lágsléttu sem lumar vart á nokkru
sem augað vill gæla við. En þar
sem þetta er göngustígur hópast
fólk þarna unnvörpum í útivistar-
göllunum sínum. Þessi smekkleysa
mannfjöldans kemur sér vel fyrir
mig sem get farið grímulaus um
sjaldfarinn slóðann sem liggur
gegnum skóga og ólífurakra, undir
klettahömrum í djúpum dal,
hlustað á söng fuglanna og gleymt
því að fjórhjóla-amstur hafi nokk-
urn tímann verið fundið upp.
Maður þarf ekki að vera lærður
til að sjá að meirihlutanum eru oft
mislagðar hendur þegar kemur að
smekk og dómgreind, um það vitna
bæði kosning Donalds Trump og
vinsældir Aerosmith. Og nú er
það lenska að fá sem mestar upp-
lýsingar á sem skemmstum tíma,
sjá myndband sem sýnir augna-
blikið þegar kötturinn stekkur á
skugga sinn, fallegustu mörkin á
færibandi, lesa þrumandi fyrir-
sagnir eða spakmæli í fáum orðum,
stunda samskipti í símskeyta-
formi, borða tilbúna rétti og fá
drátt án viðreynslu og viðkynn-
ingar. Vissulega eru þetta girni-
legir skyndibitar en hins vegar er
hitt hollara að skella skollaeyrum
við þessu öllu, grípa þykka bók
og gleyma sér við lestur tímunum
saman, finna söngheftið og fylgjast
með heilli óperu, sjá alla tónleika
Led Zeppelin í Madison Square
Garden eða gleyma sér á endalausu
vinaspjalli með einhverjum sem
hefur ekki einu sinni samrekkt
neinum frægum.
Er mannskepnan orðin að
neysluvargi nú þegar hún lifir
lífinu eins og það væri niðursoðinn
nýlenduvarningur? Svar óskast í
handhægum umbúðum.
Neysluvargur
í véum
GLÆSILEGAR
GJAFIR FYRIR
BRÚÐHJÓNIN
KYNNTU ÞÉR VINSÆLA
GJAFABRÉFIÐ OKKAR
LISTHÚSINU LAUGARDAL s. 581 2233
BALDURSNESI 6, AKUREYRI s. 461 1150
OPIÐ virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 12-16
UMBOÐSAÐILAR Húsgagnaval, Höfn í Hornafirði
og Bara snilld, Egilsstöðum | svefnogheilsa.isBALDURSNES 6 – AKUREYRI VERSLUN & OUTLET – LISTHÚSIÐ – REYKJAVÍK
UM FJÓRÐUNGUR LANDS-
MANNA SEFUR Á DÝNU
FRÁ SVEFN & HEILSU*
*Samkvæmt könnun frá Gallup.
KYNNTU ÞÉR VÖRUÚRVALIÐ
OG VERSLAÐU Í RÓLEGHEITUM
Á VEFVERSLUN OKKAR
GERIÐ GÆÐA- OG VERÐSAMANBURÐ
FJÖLBREYTT ÚRVAL AF
RÚMFÖTUM
EITT MESTA ÚRVAL LANDSINS
AF HEILSUDÝNUM
MIKIÐ ÚRVAL AF SÆNGUM
BY BRINKHAUS
Ve
rð
b
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
in
ns
lá
tta
rv
ill
ur
o
g/
eð
a
br
ey
tin
ga
r.
MARKAÐURINN.IS
NÝR VETTVANGUR
VIÐSKIPTALÍFSINS
Nýr og endurbættur markaðurinn.is
er kominn í loftið með öllum helstu
upplýsingum úr fjármálaheiminum.
• Gengi hlutabréfa í rauntíma
• Gengi gjaldmiðla
• Daglegar viðskiptafréttir
• Nýjasta tölublað Markaðarins