Börn og menning - 2019, Síða 19
Af hverju?
Vangaveltur um vísindi, börn og vísindabækur
Líf Magneudóttir
Síðastliðna áratugi hefur orðið
mikil breyting í útgáfu vísinda-
bóka á Íslandi fyrir ungt fólk.
Það á ekki aðeins við um efn-
istök og viðfangsefni sem vissu-
lega úreldast með nýrri þekk-
ingu og framförum heldur líka
framsetningu þeirra og nálgun
við unga fólkið sem býr við örar
samfélagsbreytingar. Þegar ég
ber saman þær vísindabækur
sem ég ólst upp við og bækurnar
sem standa börnunum mínum til boða fyllist ég dálítilli
öfund. Auðvitað hafði ég ekki þennan samanburð þegar
ég var krakki en þrátt fyrir það var úrvalið af vísinda-
bókum ekki sérlega fjölbreytt eða ríkulegt. Áhuginn
var þó til staðar og ég las bækur eins og Svona erum
við eftir Joe Kaufmann sem ég held að flestir á mínum
aldri (fæddir á áttunda áratug síðustu aldar) þekki vel
og hafi verið til á hverju heimili. Joe Kaufmann skrifaði
líka bækurnar Svona er heimurinn, Svona eru dýrin og
Svona er tæknin og ég sökkti mér ofan í þær allar enda
voru þær skemmtilega fram settar, textinn ekkert of
flókinn og myndirnar sniðugar. Þegar ég fermdist fékk
ég Heimurinn okkar – vísindi og mannlíf nútímans, sem
kom út árið 1983 í íslenskri þýðingu. Þetta var fimm
binda safn um ýmislegt, tækninýjungar, jarðfræði, listir
og menningu, íþróttir og samgöngur (sem er nokkuð
hressileg samsetning) og þótt bækurnar hafi verið ríku-
lega myndskreyttar voru þær
samt meira eins og kennsluefni.
Ég sýndi þeim því lítinn áhuga
þó að mér þætti innihaldið
áhugavert því ég hef ávallt verið
forvitin um heiminn, náttúruna
og tilurð og tilvist mannsins,
eins og svo margir krakkar. Ég
held þó að þar með séu þær
upptaldar, vísindabækurnar sem
voru í bókahillunum mínum,
fyrir utan gamlar kennslubækur
sem mamma átti, til dæmis um forsöguleg dýr, og eru
líklega týndar og tröllum gefnar fyrir löngu. Og það
er kannski ágætt því að þessi grein á ekki að fjalla um
vísinda- og fræðibækur æsku minnar og fortíðar heldur
ætlaði ég að fjalla um fáeinar af vísindabókum Vísinda-
Villa og Sævars Helga sem hafa komið út undanfarin ár.
Á mínu heimili búa fjögur börn á aldrinum 6 til 18
ára og þau eiga ógrynnin öll af bókum, þar á meðal
hvers kyns vísinda- og fræðibækur, bæði þýddar og eftir
íslenska höfunda. Bækur eftir Vísinda-Villa og Sævar
Helga eru í meirihluta af þeim bókakosti enda hafa þeir
verið afkastamiklir undanfarin ár.
Vísindabækur Villa
Vilhelm Anton Jónsson, sem fullorðið fólk þekkir bet-
ur sem sem Villa naglbít en unga fólkið sem Vísinda-
Þegar ég ber saman
þær vísindabækur
sem ég ólst upp við og
bækurnar sem standa
börnunum mínum
til boða fyllist ég
dálítilli öfund.