Fréttabréf Ættfræðifélagsins - Nov 2020, Page 2
2http://www.ætt.is
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2020
aett@aett.is
Útgefandi:
© Ættfræðifélagið
Ármúla 19, 108 Reykjavík.
= 588-2450
Veffang: http://www.ætt.is/
Netfang: aett@aett.is
Kennitala: 610174-1599
Reikningsnúmer: 0536-26-8050
Ritnefnd Fréttabréfs:
Guðfinna Ragnarsdóttir
= 848-5208
Magnús Grímsson
= 899-8831
Ritstjóri Fréttabréfs:
Guðfinna Ragnarsdóttir
Laugateigi 4, 105 Reykjavík
= 848-5208
gudfinnamr@gmail.com
Ábyrgðarmaður:
Benedikt Jónsson
for mað ur Ætt fræði fé lags ins
Prófarkalestur:
Magnús Grímsson
Umbrot:
Þórgunnur Sigurjónsdóttir
Efni sem óskast birt í blaðinu
berist ritstjóra á rafrænu formi
(tölvupóstur/viðhengi)
Prentun: GuðjónÓ
***
Fréttabréf Ættfræði-
félagsins er prentað í 450
eintökum og sent öllum
skuldlausum félögum. Verð
í lausasölu er 800 kr. Allt
efni sem skrifað er undir
nafni er birt á ábyrgð
höfundar. Annað er á
ábyrgð ritstjórnar.
Ættfræðinnar ýmsu hliðar
Það einkennir sjálfsagt lesendur Fréttabréfsins að horfa á ættfræð-
ina frá mörgum hliðum. Við rekjum ættir okkar nú orðið með aðstoð
Íslendingabókar, svo spáum við í nöfnin í ættinni, rekjum í kvenlegg
og karllegg, rekjum eftir búsetu og nöfnum, teljum prestana eða lausa-
leiksbörnin, og rekjum okkur saman við hina og þessa, fræga og ófræga.
Við kortleggjum sjúkdóma og hæfileika, skapgerð og ótal margt fleira.
Möguleikarnir eru margir og ótrúlega spennandi.
Gaman væri að heyra frá lesendum um hvernig þeir hafa leikið sér að
ættfræðinni. (ritstjóri)
Guðfinna Ragnarsdóttir:
Leikur að ættfræði
Búseta
Ég set hér til gamans kort þar sem ég rakti búsetu forfeðra minna í sjö
ættliði á tímabilinu 1650 til 1950. Þar kom skýrt í ljós að þeir hafa lengst
af búið á sömu þúfunni. Ég sé að allt frá
1650 eru ættir mínar alfarið á vesturhluta
landsins, enginn forfeðra minna hefur kom-
ist austur yfir Þjórsá og enginn austur að
Eyjafirði. Föðurættin hefur ekki einu sinni
komist upp í Hvalfjörð! en haldið sig alfar-
ið á Reykjavíkusvæðinu og Ölfusinu í
sjö ættliði, í 300 ár!!! Enda er ég gegnum
Jón afa minn Reykvíkingur í 10. lið, óslit-
ið! Vík, Örfirisey, Skildinganes, Beiðholt,
Bústaðir, Rauðará, Kleppur, Laugarnes,
Vegamót..., svo er Ingveldur amma mín af
Reykjakotsættinni í Ölfusinu.
Guðfinnur afi minn er alfarið úr Húnavatnssýslunni og Sigurbjörg
amma mín úr Dalasýslunni.
Ég hefði getað bætt við nokkrum ættliðum á kortið, en það gekk ekki
með forfeður Sigurbjargar ömmu minnar sem bjuggu við Breiðafjörðinn,
öld fram af öld, því þar var ég farin að stinga títuprjónunum mínum aftur
og aftur í sama gatið! Úr Breiðafirðinum, matarkistunni miklu, flutti
nefnilega enginn!!
Vissir þú?
☛ Vissir þú að margan vanda þurftu valdsmenn landsins að kljást við
fyrir daga DNA-prófa? Hversu skyldi ákveða barni faðerni, þeg-
ar kona nefnir þar til tvo menn, er báðir reynast jafn líklegir. Kona
ein í Önundarfirði, Gróa Jónsdóttir, átti eitt sinn hlut að slíku máli
seint á 17. öld. Það varð ráð dómaranna að skipa hinum tilnefndu
barnsfeðrum báðum að annast barnið til sjö ára aldurs, en þá skyldu
skynsamir menn segja til um í ætt hvors mannsins það líktist frem-
ur, og á þá sá mannanna, er faðir þess telst, að greiða hinum allan
þann kostnað er hann hefur haft af því.