Fréttabréf Ættfræðifélagsins - nov. 2020, Síða 8
8http://www.ætt.is
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2020
aett@aett.is
Á bréfinu sést vel hve annt Kristínu er um fóstur-
soninn, sem jafnframt er barnabarnið hennar. Hún
kallar drengina Badda litla og Valda litla, samt eru
þeir orðnir 13 og 14 ára gamlir. Kristín á mörg yngri
barnabörn, en þetta lýsir vel væntumþykju hennar til
drengjanna.
Mjög áhugavert er að sjá samfélagslýsinguna.
Kristín talar um tvö brúðkaup, annað haldið heima
hjá þeim hjónum og þykir henni ekkert sjálfsagðara
en að veislan hafi staðið fram undir morgun. Fólk
kunni greinilega að skemmta sér og notaði hvert
tækifæri sem gafst. Menntaþörfin hefur einnig verið
sterk og þegar tækifæri bauðst að ráða siglda konu
eins og Össurlínu í kennslu þá hafa þau hjón ekki hik-
að. Kenndi hún drengjunum, og jafnvel fleiri börn-
um, þegar farskólinn var starfræktur á Brjánslæk.
Össurlína Guðbjartsdóttir var frá Patreksfirði og hafði
flust til Vesturheims árið 1910 en aftur heim árið 1916
og ílengdist um nokkurra missera skeið hjá Bjarna og
Kristínu.
Aftur ekkja
Sunnudaginn 16. mars 1930, þegar Bjarni var aðeins
62 ára gamall, varð hann bráðkvaddur. Hann var við
skyldustörf á hestbaki á leið á milli bæja til að skíra
barn. Hann skilaði sér ekki og þegar að var gáð fannst
hann örendur. Sagt var að skugga hefði dregið yfir
sveitina þegar Bjarni dó, svo mikil var sorg og eftirsjá
sóknarbarnanna, því Bjarni var afar vel liðinn prestur
og prófastur í sveitinni. Eitt það sérstakasta sem ligg-
ur eftir Bjarna er Dánarskrá, en það er skrá yfir alla
þá sem létust í sókninni hans. Skráði hann það helsta
um viðkomandi sem honum þurfa þótti, svo sem
dánar orsök, fæðingarstað, nöfn foreldra, eiginkonu
og barna, ef þau voru til staðar. Dánarskrá Bjarna er
hægt að finna inni á heimasíðu sem Barðstrendingar
halda úti. bardastrondblog.wordpress.com.
Ótímabært andlát Bjarna hefur verið mikið áfall
fyrir Kristínu, sem þá var orðin öldruð kona, um
áttrætt. Hefur hún varla átt von á því að lifa mann
sinn og verða ekkja í annað sinn. Hvort Kristín hélt
kyrru fyrir á Brjánslæk, eða dvaldist annars staðar
síðustu æviár sín, er ekki vitað, en líklegt er að hún
hafi haldið sig á Brjánslæk enda orðin rígfullorðin
kona og ekki líkleg til að leggja á sig mikil ferðalög.
Kristín lést þann 8. maí 1937, þá 87 ára gömul. Hún
hvílir í kirkjugarðinum á Brjánslæk við hlið Bjarna
Símonarsonar seinni manns síns.
Heimildir
Um Jón Sigurðar Vídalíns Jónssonar, bróður
Kristínar Jónsdóttur
https://baekur.is/bok/000306940/3/210/Islenzkar_
aeviskrar_fra
um Jón Sigurðsson föður Kristínar
https://baekur.is/bok/000306940/3/210/Islenzkar_
aeviskrar_fra
Manntal 1855
https://is.wikipedia.org/wiki/
Sigur%C3%B0ur_m%C3%A1lari
Sigurður Guðmundsson Málari, hönnun skautbún-
ings
https://baekur.is/bok/000228526/3/403/Ur_byggdum
um ætt Þorvaldar Stefánssonar í Hvammi
Norðurárdal
https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1247138/
um kirkjuna á Brjánslæk
https://timarit.is/page/5631561#page/n15/mode/2up
um æviágrip Benedikts Gröndal
https://timarit.is/page/2281089#page/n2/mode/2up
minningargrein um Bjarna Símonarson í Lögréttu
https://skemman.is/bitstream/1946/17778/1/fri-
mann_benediktsson_ma_ritgerd_5_mai_2014.pdf
um Össsurlínu og vesturför hennar
Brjánslækur á Barðaströnd. Kristín Jónsdóttir og Bjarni
Símonarson létu reisa kirkjuna árið 1908 og steinhúsið
árið 1912. Steinhúsið var það fyrsta í sveitinni.
Steingrímur Þórðarson
kt. 020651-2299
Lynghvammur 2A, 220 Hafnarfjörður
Netfang: steingrimur51@gmail.com
Sturla Frostason
kt 220656-3069
Drápuhlíð 43, 105 Reykjavík
Netfang: stulliflug@hotmail.com
Sveinn Magnússon
kt. 121248-3289
Suðurgata 20, 101 Reykjavík
Netfang: sveinn.magnusson@gmail.com
Ægir Ællertsson
kt. 280746-3049
Birkiberg 16, 221 Hafnarfjörður
Netfang: aegirellertsson@gmail.com
NýIR FéLAGAR