Fréttabréf Ættfræðifélagsins - nov. 2020, Síða 18

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - nov. 2020, Síða 18
18http://www.ætt.is Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2020 aett@aett.is fór í gegnum bréf móðursystkina minna, að ég rakst óvænt á svarið. Svarið Svarið birtist í bréfi frá Soffíu Gestsdóttur til Óskar Guðfinnsdóttur móðursystur minnar, skrif- að í Stykkishólmi 30. apríl 1940. Ósk og Soffía voru frænkur að öðrum og þriðja, Sigurbjörg, móðir Óskar, og Soffía voru, eins og að ofan greinir, systradætur og uppeldissystur. Mikill samgangur var milli Staðarfells og Litla-Galtardals alla tíð. Magnús Zofanías, bróðir Óskar, ólst upp hjá Soffíu og manni hennar, Magnúsi Friðrikssyni, og bar nöfn þeirra Staðarfellshjónanna. Hann og Gestur sonur þeirra drukknuðu í sama slys- inu 2. október 1920, fyrir sléttum hundrað árum. Ósk dvaldi sjálf oft á Staðarfelli. Soffía, og maður hennar, Magnús Friðriksson, Ósk Guðfinnsdóttir frá Litla-Galtardal, móðursystir mín, 2. frá vinstri, ásamt systrum sínum Björg, Pálínu og Hólmfríði. Það var í bréfi til Óskar árið 1940 sem svarið leyndist. Sigurbjörg Guðbrandsdóttir, amma mín, ásamt Guðfinni Björnssyni afa mínum. Hún var fædd 1875 og fór nokkrar bæjarleiðir á hestbaki aðeins þriggja nátta. voru þegar bréfið er skrifað, flutt í Stykkishólm og höfðu gefið ríkinu jörð sína Staðarfell undir hús- mæðraskóla. Soffía lést árið 1946, tæplega áttatíu ára gömul. Ég skal alveg viðurkenna að mér vöknaði um augu þegar ég las þetta fallega bréf. Kæra Ósk mín ………… Jeg er nú svo oft ein hjer heima á daginn, Magnús er þá til og frá og þá er ég svo oft í einverunni að hugsa um mína gömlu vini og vandamenn og rifja upp mart frá fyrri dögum og reini þá að láta hugann dvelja sem lengst við líflegustu endurminningarnar frá fyrstu tíð aldrei minnist ég þess að hafa á æfinni lifað í annari eins eftirvæntingu og þegar ég var níu ára gamalt barn þá var það sem foreldrar mínir sóttu mömmu þína út að Holti í Hvammssveit þá þriggja nátta gamla, eg hlakkaði svo mikið til að sjá lítið barn, en svo þegar ég sá hana varð ég svo alveg hissa hvað hún var lítil og langt mundi verða þangað til ég gæti leikið mér við hana, alt er nú um það að hugsa hjá börnum á þessum árum. Nú er mamma þín orðin 65 ára en jeg 74 svo langt er yfir að líta síðan þetta var og mart hefur á daga okkar drifið sem eðlilegt er og ekki til neins að rifja upp, það eru auðvitað blett- ir blómum settir víða á okkar lífsleið sem vert er að geyma í huganum, eins og best er að gleyma því erf- iðara, alltaf styttist nú tíminn sem eftir er og það er bara gott að vera núna að enda við að lifa þegar allt er í þessum voðaósköpum í þessum heimi...... Guð varðveiti ykkur öll þín Soffía Gestsdóttir Þuríður Vigfúsdóttir, f. 1827, fóstra ömmu minnar og móðursystir. Hún gekk hjá öllum undir heitinu Þuríður „mamma“.

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.