Fréttabréf Ættfræðifélagsins - nóv. 2020, Blaðsíða 22

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - nóv. 2020, Blaðsíða 22
22http://www.ætt.is Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2020 aett@aett.is Stefáns Sveinssonar á Dalgeirsstöðum, Helga og Jósafat. Steinunn dó 2. okt. 1846 66 ára. Haustið eft- ir kvæntist Helgi í annað sinn. Seinni kona hans var Guðrún Guðmundsdóttir frá Skarfshóli, Bárðarsonar frá Arnarhóli í Eyrarsveit, Bárðarsonar. Var Helgi þá orðinn hálfsextugur, en Guðrún 23 ára. Þau eign- uðust einn son, Guðmund fæddan 1849. Helgi dó 31. júlí 1851. Guðrún ekkja hans hætti búskap og fór sem vinnukona að Króksstöðum, en giftist aftur 1853 Guðmundi Björnssyni frá Galthól. Meðal barna þeirra var Helgi, faðir Daníels í Litla- Hvammi. Þriðji maður Guðrúnar var Aron föðurbróð- ir Jónasar á Húki. Þau dóu bæði 1903. Börn Helga Björnssonar • Jón, fæddur 1822, dáinn 1866. Móðir Sigríður Bjarnadóttir. Jón kvæntist 1845 Guðrúnu Árnadóttur Björnssonar frá Þóroddsstöðum. Þau voru bræðrabörn. Ýmist bjuggu eða voru í hús- mennsku á ýmsum stöðum bæði í Miðfirði og Víðidal. Litlu eftir dauða fyrri manns síns gerð- ist Guðrún ráðskona hjá ekkjumanni, Jónatan Jónatanssyni Ólafssonar frá Brekkulæk. Jónatan þessi byggði fyrstur á Aðalbreið 1856. Guðrún giftist svo Jónatan og bjuggu þau á parti af Húki. Þau dóu bæði 1903. • Guðfinnur, f. 1822, sonur Steinunnar, kvæntist Jóhönnu Hólmfríði, dóttur Steins Bergmanns og Agnesar systur Magðalenu á Haugi. Agnes dóttir þeirra var amma Björns Guðfinnssonar prófess- ors. • Gísli, f. 1824, sonur Steinunnar, kvæntur Katrínu Sveinsdóttur úr Stafholtstungum. Bjuggu í Víðidal. Áttu einn son sem Þorsteinn hét. • Jósafat sonur Bóthildar Markúsdóttur, fæddur 1829. Kvæntist Jóhönnu Davíðsdóttur. Þau áttu Jónas og Ragnheiði Elínu. • Helgi, sonur Bóthildar, fæddur 1831 dó á 1. ári. • Guðmundur sonur Guðrúnar, fæddur 1849, kvænt- ist Sigurlaugu Helgu Stefánsdóttur frá Spena. Bjó síðast í Tjarnarkoti. Dó 1918. Helgi á Litla-Bakka er í kirkjubókum talinn „skikkanlegur og vel læs og þótti góður verkmaður“ Steinunn „vel að sér,“ „dáindiskvenndi.“ Fortíðarblik Allur þessi fróðleikur var mér kærkominn, þótt mér þætti nú nóg um kvennamál þessa forföður míns, sem átti sex börn með fjórum konum, þar af tvö framhjá, þá Jósafat og Helga. Ég sá seinna að það voru aðeins tveir og hálfur mánuður milli Guðfinns langalangafa míns og Jóns hálfbróður hans. Þær hafa greinilega gengið þarna samtímis með bumbuna út í loftið, hús- móðirin, hún Steinunn formóðir mín, og vinnukonan Sigríður! Ástæða þess að ég hafði sérstakan áhuga á Helga voru nöfnin í ættinni, ekki síst nafnið mitt, því ég var svo lánsöm að vera skírð nafni úr ættinni, Guðfinna, eftir Guðfinni Björnssyni afa mínum. Guðfinnur, son- ur Helga og Steinunnar, fyrstu konunnar hans, var afi afa. Þar við bætist að sá Guðfinnur, afi afa, flutti vest- ur á Fellsströnd, ásamt konu sinni Jóhönnu Hólmfríði. dóttur Barna-Steins, um 1775 og heyrði ég þaðan af honum margar sögur. Yngri dóttur sína, sem hét Steinunn, eftir móður Guðfinns, konu Helga, höfðu þau Guðfinnur og Jóhanna Hólmfríður misst aðeins viku gamla, en yngri dóttirin Agnes fékk nafn eftir móðurömmunni. Þessi nöfn hafa síðan gengið eins og rauður þráður í ættinni: Guðfinnur, Hólmfríður, Steinunn, Agnes... og gera enn. En enginn Helgi! Ég sé ekki að neitt barna hans hafi skírt eftir honum. Yngsti sonur hans, sem dó tæplega mánaðar gamall, var sá eini sem fékk nafn föður síns, Helgi Helgason. Guðfinnur Helgason og Jóhanna Hólmfríður kona hans létust bæði vestur á Fellsströnd, hjá einkadótt- urinni Agnesi og börnum hennar, og eru jörðuð hlið við hlið í gamla kirkjugarðinum á Staðarfelli. Stór legsteinn er yfir Guðfinni Helgasyni með máðri en þó læsilegri skrift. Á hverju ári heimsæki ég ættarslóðir mínar fyrir vestan og tek þá oftast barnabörnin með til þess að tengja þau sögunni og rótum sínum. Þar fá þau líka verðugt verkefni við að lesa á legsteinana! Ættrakningin Ragnhildur Ingvarsdóttir f, 2008 Björg Juto f. 1972 Guðfinna Rgnarsdóttir f, 1943 Björg Guðfinnsdóttir f. 1912 Guðfinnur Björnsson f. 1875 Agnes Guðfinnsdóttir f. 1850 Guðfinnur Helgason f. 1822 Helgi Björnsson f. 1797 Frændsystkinin Ragnhildur, Ylfa Salóme, Erik Bjarki og Kjartan Orri við legstein Guðfinns. Milli þeirra og forföðurins, sem undir steininum hvílir, eru um tvö hundruð ár.

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.