Rit Mógilsár - 2000, Síða 6
6
Tilraunin er á tveim tilraunastöðum á Suðurlandi, Kollabæ í
Fljótshlíð og á Markarfljótsaurum, og á einum stað á Norðurlandi,
Végeirsstöðum í Fnjóskadal. Í tilrauninni eru notaðar sitkagreni-,
stafafuru- og birkiplöntur, en á Norðurlandi er rússalerki notað í
stað sitkagrenis. Jarðvegur á tilraunasvæðinu á Végeirsstöðum
reyndist vera mun blautari en gert hafði verið fyrir í upphafi og stóð
vatn í sumum rásum vorið eftir. Því eru niðurstöður hennar vart
marktækar og verða ekki teknar með í þessari skýrslu.
4 EFNI OG AÐFERÐIR
4.1 TILRAUNALÝSING
Tilraunirnar eru á þrem stöðum; a) í landi Voðmúlastaða á
Markarfljótsaurum, b) í landi Skógræktar ríkisins, Kollabæ í
Fljótshlíð og í landi Háskólans á Akureyri að Végeirsstöðum í
Fnjóskadal (1. mynd). Tilraunin á Markarfljótsaurum stendur á
gróðurlausri og skjóllausri malarsléttu u.þ.b. 500 m norðan
vegarins að gömlu Markarfljótsbrúnni (63°40.158'N og 20°
00.554'V) í um 60 m.h.y.s. Kollabæjartilraunin er um 8 km frá
Markarfljótsauratilrauninni, milli víðiskjólbelta á hæðarkolli ofan við
Tunguskóg (63°44.758'N og 20°03.205'V) í um 110 m.h.y.s.
Jarðvegur er dæmigerður fokjarðvegur / móajarðvegur, þakinn
með þykkum grámosa og grösum mill i þúfna.
Végeirsstaðatilraunin er á hjalla ofan Végeirsstaða, í brekkurótum
(65°48.876'N og 17°53.098'V). Jarðvegur er breytilegur innan
svæðisins, að ofan er jarðvegur myndaður af skriðu, þ.e. grýttur
móajarðvegur, en neðan til blandast hann mýrarjarðvegi. Á öllum
tilraunastöðum var einskeraplógur (skógræktarplógur) notaður við
jarðvinnslu. Gróðursetning og áburðargjöf fór fram 26.-29. júní
1998. Á Markarfljótsaurum og í Kollabæ var hin svokallaða geispa
(Potti-Putki) notuð við gróðursetninguna og var gróðursett í botn
plógrásarinnar. Á Végeirsstöðum reyndist hinsvegar illmögulegt að
nota geispuna vegna mikillar seigju í jarðvegi, svo venjulegur 100
cm3 gróðursetningarstafur var notaður. Vegna bleytu í sumum
rásanna á Végeirsstöðum varð að gróðursetja plönturnar í hliðar
plógrásar í stað botns hennar.