Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2017, Blaðsíða 6
Byrjum á deginum í dag: Hvað er að
gerast í þinginu næstu daga og vikur?
Þingið fór í sumarfrí um mánaðamótin
maí/júní. Það þýðir þó ekki að þingmenn
séu almennt farnir í frí þá, því í júní eru
fastanefndir þingsins enn að störfum og
nóg að gera þar. Júlí er sumarfrí að mestu
leyti og í ágúst hefst svo undirbúningur
næsta þings.
Þú situr núna á þingi fyrir Viðreisn en
hafðir áður haft afskipti af Alþingi
þegar þú varst aðstoðarmaður
heilbrigðisráðherra 2007–2009. Geturðu
sagt aðeins frá því hvaða væntingar þú
hafðir til þingsetunnar áður en þú varst
kjörin á þing og hver raunveruleikinn
er eftir að hafa starfað á þingi í nokkra
mánuði? Hvað er það sem almenningur
gerir sér ekki grein fyrir um þingið?
Úff, ég gæti haft mjög mörg orð um
væntingar vs. raunveruleika. Staðreyndin
er sú að þau tæpu tvö ár sem ég starfaði
sem aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra
fyrir um tíu árum síðan gáfu mér dýrmæta
innsýn í opinbera stjórnsýslu. Eins
fékk ég góða tilfinningu fyrir samspili
löggjafarvalds og framkvæmdavalds. Sem
aðstoðarmaður ráðherra hafði ég hins
vegar lítið af þingstörfunum sjálfum að
segja og kom t.d. sjaldan í þinghúsið á
þessum árum.
Ákvörðun mína um að bjóða mig fram
til þings fyrir Viðreisn bar mjög skjótt að.
Ég er ein þeirra fjölmörgu sem höfðu
um töluvert skeið unnið að stofnun nýs
frjálslynds jafnréttissinnaðs stjórnmálaafls
hægra megin við hina hefðbundnu
pólitísku miðlínu. Í maí 2016 varð draumur
okkar að veruleika þegar við stofnuðum
Viðreisn formlega en það var ekki fyrr
en undir lok ágústmánaðar sem ég tók
endanlega ákvörðun um að hella mér út
í stjórnmálin af fullum krafti. Þær vikur
og mánuðir sem fylgdu í kjölfarið snerust
eingöngu um Viðreisn, stefnumálin
og svo sjálfa kosningabaráttuna. Allar
hugleiðingar um sjálft þingstarfið biðu
þar til eftir kosningar og ég stóð frammi
fyrir þeim veruleika að vera þingmaður.
Hanna Katrín Friðriksson var fréttamaður hjá Morgunblaðinu í næstum tíu ár
og er með BA-gráðu í heimspeki og hagfræði frá Háskóla Íslands. Hún flutti með
eiginkonu sinni til Bandaríkjanna um aldamótin 2000 þar sem hún lauk MBA-prófi
frá University of California Davis. Hún hefur starfað sem aðstoðarmaður ráðherra,
verið stundakennari í Háskólanum í Reykjavík og Háskólanum á Bifröst og unnið
fyrir Icepharma og Eimskip. Hún tók þátt í stofnun stjórnmálaaflsins Viðreisnar og
hefur setið á þingi fyrir flokkinn frá hausti 2016, þar sem hún hefur meðal annars
beitt sér fyrir jafnlaunavottun og málefnum hinsegin eldra fólks.
Jón Kjartan Ágústsson tók viðtalið.
6