Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2017, Page 8

Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2017, Page 8
nema af því að við töldum stefnumálum okkar betur borgið innan hans en utan. Hvað myndir þú segja við ungt fólk sem hefur efasemdir um þátttöku í stjórnmálum og opinberri umræðu? Fyrir fólk sem hefur áhuga á umhverfinu í kringum sig liggur þátttaka í stjórnmálum beint við. Sumir vilja vera í baklandinu, aðrir í framlínunni, þar verður hver og einn að finna sinn stað. Besta leiðin til að tryggja að skoðanir þínar og baráttumál komist á dagskrá er að halda þeim sjálf/ sjálfur/sjálft á lofti. Og þó að oft þurfi að kyngja málamiðlunum þá er það staðreynd að margt gott þokast áfram; það eru mikil tækifæri til að koma hlutum í verk á þingi. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á stjórnmálum í sinni víðustu mynd, samfélaginu og fólki almennt. Flestir minna nánustu vina hafa lengi þóst vita að ég myndi á endanum hella mér út í slaginn. Og þeir höfðu rétt fyrir sér. Þú hefur tjáð þig á þinginu um málefni hinsegin eldri borgara. Hvernig er staðan í þessum málaflokki og hvert vilt þú sjá hann stefna? Hvernig myndir þú vilja eldast sem hinsegin eldri borgari á Íslandi? Í grófum dráttum má kannski segja að hinsegin eldri borgarar séu birtingarmynd þess breytta veruleika sem við stöndum frammi fyrir sem þjóðfélag þegar kemur að málefnum eldri borgara. Það er fráleitt að koma fram við eldra fólk eins og um einsleitan hóp sé að ræða. Við vitum að það vantar mikið upp á fagþekkingu á málefnum eldra hinsegin fólks, sem kom t.d. skýrt í ljós í nýlegri starfsáætlun um málefni eldri borgara, þar sem ekki var minnst einu orði á hinsegin fólk. Ég bind miklar vonir við samstarfshóp Samtakanna ‘78 um þessi málefni og lofa að beita mér eins og ég mögulega get fyrir úrbótum. Það er sárara en tárum taki ef hinsegin fólk á erfitt með að fóta sig, t.d. á öldrunarheimili, vegna þess að þar skortir alla þekkingu og skilning. Við þurfum að fylgja réttindabaráttunni eftir alla ævina; það er skelfileg tilhugsun ef eldra hinsegin fólk telur sig eiga þann kost skástan að fara aftur í felur. Ég er ekkert frábrugðin öðrum að því leyti að ég vil fá að halda í sjálfsákvörðunarrétt minn og eldast eins og ég hef lifað. Stolt og á eigin forsendum. Þú ert menntuð í heimspeki, hagfræði og með MBA-próf og hefur starfað m.a. sem fréttamaður og framkvæmdastjóri. Hvernig liggja þessir þræðir saman og hvenær á þessu skeiði fórstu að gera þér grein fyrir að þú laðaðist að konum? Ég er hreinlega ekki viss um að það sé til ákveðið svar við því hvernig þessir þræðir liggja saman. Ég hef fjölbreytt áhugamál og hef alltaf gert mér far um að uppfylla einhverja þörf eða svala forvitni frekar en að standa í einhverri framtíðarhönnun. Kannski liggja þessir þræðir akkúrat saman núna í þingmennskunni. Það er allavega ljóst að flest það sem ég hef fengist við í gegnum tíðina og sú þekking og reynsla sem ég hef viðað að mér gagnast mér þar. Einfalda svarið við spurningunni um hvenær ég gerði mér grein fyrir því að ég laðaðist að kvenfólki er að það var þegar ég varð ástfangin af núverandi konunni minni, Ragnhildi Sverrisdóttur, veturinn 1993–1994. Við höfðum þá unnið saman um nokkurra ára skeið sem blaðamenn á Morgunblaðinu og héldum raunar áfram að starfa þar saman einhver ár eftir að samband okkar hófst. Voru einhverjar lesbíur eða hommar í þínu nánasta umhverfi sem voru fyrirmyndir á tímabilinu þegar þú varst að koma út? Nei, ekki í allra nánasta umhverfi. Ég þekkti reyndar lesbíur í stærri kunningjahópnum. En það var þó frekar þannig að ég vissi af hinsegin fólki en að ég þekkti beinlínis til þess. Sýnileikinn var nú fjarri því að vera jafnmikill fyrir aldarfjórðungi og núna; gleðigangan byrjaði t.d. ekki fyrr en 1999. Skiptir það máli að vera opinber lesbía á þingi? Hvað finnst þér um þá fullyrðingu að kynhneigð skipti ekki máli heldur einungis einstaklingurinn og málefnin? Sýnileiki skiptir gríðarlegu máli; hann er frumforsenda upplýsingar og samræðu og á honum hefur barátta Samtakanna ‘78 byggt frá upphafi. Ég upplifi ekki fordóma af neinu tagi á þingi og greini ekki hvort einhver blæbrigði sé að finna í því hvernig samstarfsfólk mitt ávarpar mig miðað við aðra. Það er frekar að fólk fagni fjölbreytileikanum á meðal þingmanna. Þingið á auðvitað að endurspegla þjóðfélagið. Hérna áður fyrr var þingið mjög langt frá því að endurspegla nokkuð annað en miðaldra karlaklíku en núna hefur orðið mikil breyting þar á. Ég er stolt af því að vera einn liturinn í þeim regnboga. Kyn skiptir máli, kynhneigð skiptir máli, kynvitund skiptir máli. Við eigum ekki að ímynda okkur að það sem skilgreinir einstaklinga á ákaflega persónulegan hátt skipti engu máli. Við eigum hins vegar að tryggja að fólki sé ekki mismunað á grundvelli þessa munar. Við erum ólík en höfum öll sama rétt. Hefurðu þurft að taka þátt í umræðum um málefni hinsegin fólks; málefni sem jafnvel gætu einungis snert við þér en ekki öðrum þingmönnum? Hvernig tilfinning er það? Málefni hinsegin eldra fólks snertu auðvitað við mér, þótt ég hafi ekki náð þeim virðulega aldri að falla í þeirra hóp. Núna í vor var svo samþykkt þingsályktunartillaga Svandísar Svavarsdóttur o.fl. um jafnræði í skráningu foreldratengsla en sú tillaga er einfaldlega liður í því að gera hinsegin foreldra jafnsetta öðrum foreldrum. Ég rifjaði upp af því tilefni að ég þurfti á sínum tíma að gefa konu minni leyfi til að stjúpættleiða dætur okkar svo hún teldist líka móðir þeirra. Ég gerði mér grein fyrir að ég var sú eina í þingsalnum sem hafði þessa reynslu að baki; ég var glöð að geta deilt henni og ég varð enn glaðari þegar þingið samþykkti tillöguna einróma. Þegar ég fæddi tvíburadætur okkar Ragnhildar, Elísabetu og Margréti, árið 2001 vorum við í staðfestri samvist, sem var eins og menn muna eins konar hjónabandslíki samkynhneigðra á þeim tíma. Þrátt fyrir það taldist Ragnhildur ekki sjálfkrafa vera annað foreldrið. Ég þurfti náðarsamlegast að veita henni leyfi til þess að stjúpættleiða stelpurnar okkar. Þessari stjúpættleiðingu fylgdu ítarleg viðtöl hjá Barnavernd og heimsóknir fulltrúa Barnaverndar heim til okkar til þess að kanna hvort heimili konunnar sem var að ættleiða væri í lagi. Þetta var óneitanlega nokkuð sérstök upplifun, enda var þetta sama heimili og ég bjó á og dætur okkar tvær. Þetta var svolítið undarlegt, vandræðalegt, stundum fyndið, en á köflum óttalega nöturlegt. Við þökkuðum oft okkar sæla, ég og konan mín, fyrir að vera þó orðnar það gamlar og reyndar að við gátum staðist þetta án þess einfaldlega að finnast þessar móttökur nærri því óbærilegar. Ég ætla þó að taka fram, svo það sé yfir allan vafa hafið, að starfsmenn Barnaverndar voru ekkert nema elskulegheitin. Þar á bæ þurftu menn einfaldlega að takast á við þá staðreynd að dætur okkar höfðu fæðst annarri konunni af tveimur í staðfestri samvist og enginn faðir var nefndur til sögunnar. Barnaverndin hér í Reykjavík hafði ekki á þeim tíma þurft að kljást við svonalagað áður, enda voru lög sem heimiluðu stjúpættleiðingar barna fólks í staðfestri samvist aðeins ársgömul þegar þetta var. Þar vorum við í fararbroddi, svo því sé til haga haldið, en Ísland var annað landið í heiminum á eftir Danmörku til að lögfesta þann rétt. 8

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.