Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2017, Page 13
HINSEGIN KONUR
Í TÓNLIST
QUEER ICELANDIC WOMEN IN MUSIC
FRÆÐSLUVIÐBURÐUR
Stúdentakjallaranum,
miðvikudaginn 9. ágúst kl.18:30.
Aðgangur ókeypis.
The Student Cellar, University of
Iceland, Wednesday 9 August at 6:30
p.m. Free admission.
Á þessum viðburði munu nokkrar hinsegin konur koma saman
og ræða tónlistarbransann út frá mörgum hliðum. Skiptir máli
að vera hinsegin? En að vera kona í bransanum? Er ekkert mál að
koma út? Spurningum verður svarað af Alison MacNeil (Kimono),
Hildi Þóru (Stelpur rokka), Ísabellu Leifsdóttur (óperusöngkonu),
Kiddu rokk (Rokkslæðunni), Lovísu Elísabetu Sigrúnardóttur
(Lay Low), Natalie Gunnarsdóttur (DJ Yamaho) og Sigríði Eir
Zophaníasardóttur (Hljómsveitinni Evu). Útvarpskonan Halla Þórlaug
Óskarsdóttir stýrir umræðum. Viðburður fer fram á ensku.
At this event a few queer female musicians will talk about their
experiences of the music industry. Does being queer matter?
What about being a woman in the industry? Radio host Halla
Þórlaug Óskarsdóttir will ask the tough questions! Event in english.
TRANS BÖRN OG
UNGMENNI Á
ÍSLANDI
TRANS CHILDREN AND TEENS IN ICELAND
FRÆÐSLUVIÐBURÐUR
Stúdentakjallaranum, miðvikudaginn
9. ágúst kl. 12:00. Aðgangur ókeypis.
The Student Cellar, University of
Iceland, Wednesday 9 August at 12
p.m. Free admission.
Hver er staða trans barna og ungmenna á Íslandi? Hvaða
stuðningi þurfa þau á að halda og hvernig er tekið á móti
þeim í íslensku skólakerfi? Fulltrúar frá Trans Íslandi munu
fjalla um baráttu trans fólks og réttarstöðu trans barna og
ungmenna. Sigríður Birna Valsdóttir, ráðgjafi Samtakanna
‘78, og Ragnheiður Jóna Laufdal Aðalsteinsdóttir, kennari
við Vatnsendaskóla,verða með erindi. Viðburður fer fram
á íslensku.
What is the situation of trans children and youth in Iceland?
What kind of support do they need and how does the
school system accommodate them? Members of Trans
Iceland will discuss the trans movement and the legal
situation of trans children and youth. Event in Icelandic.
PARIS 05:59:
THÉO & HUGO
BÍÓ / FILM SCREENING
Stúdentakjallaranum,
miðvikudaginn 9. ágúst kl. 21:30.
Aðgangur ókeypis.
Student Cellar, University of Iceland,
Wednesday 9 August at 9:30 p.m.
Free admission.
Theo og Hugo eiga saman rafmagnaða stund á
kynlífsklúbbi í París en það sem byrjaði sem skyndikynni
vindur fljótt upp á sig og verður að einhverju sem gæti
fylgt þeim alla ævi. Þessi krassandi mynd vann Teddy-
áhorfendaverðlaunin í Berlín 2016 og hefur farið sigurför
um heiminn á kvikmyndahátíðum. Að sýningunni lokinni
verða pallborðsumræður þar sem rætt verður um hvaða
tabú eru ennþá til staðar í hinsegin kvikmyndum, og um
stöðu hinsegin kvikmynda á Íslandi.
Theo and Hugo share an electric moment in a Paris sex
club, but that fleeting moment soon spirals into something
that can change their lives forever. This provocative film
won the Teddy audience award at the 2016 Berlinale. After
the screening, there will be a panel discussion about taboo
subjects in queer films, as well as the status of queer cinema
in Iceland.
13