Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2017, Page 14

Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2017, Page 14
ÍSLENSK HINSEGIN KLASSÍK, TÓNLEIKAR QUEER ICELANDIC CLASSIC, CONCERT Iðnó, Vonarstræti 3, miðvikudaginn 9. ágúst kl. 20:00. Aðgangseyrir: 1.500 kr. Pride- passi gildir. Iðnó, Vonarstræti 3, Wednesday 9 August at 8 p.m. Admission 1.500 ISK. Pride Pass valid. Hinsegin tónskáld í tónlistarsögunni hafa vakið athygli fyrir lagræna nálgun í tónlistarsköpun sinni og á síðustu öld sneiddu mörg þeirra framhjá tilraunastarfseminni sem þá ríkti. Sum af þekktustu tónskáldum síðustu aldar voru samkynhneigð og má þar nefna Frakkann Poulenc og Bandaríkjamennina Barber, Copland og Bernstein. Poulenc er þekktur fyrir hnyttnar og hugmyndaríkar laglínur og bandarísku hommarnir voru í lykilhlutverki þegar kom að því að skapa hetjutónlistina sem við þekkjum flest úr Hollywood-kvikmyndum. Á þessum tónleikum verður kastljósinu beint að tónlist íslenskra hinsegin tónskálda í fyrsta sinn og þeirri spurningu velt upp hvort hinsegin tónskáld eigi sér einhverja sérstaka rödd. Throughout music history, queer composers have stood out for their melodic approach. Some of the 20th century’s leading composers were gay, such as France´s Poulenc and Barber, and Copland and Bernstein from the U.S. Tonight, we will put the spotlight on LGBTQI Icelandic composers. What is their unique voice? How do they stand out from their counterparts? KYNVILLT KLAMBRATÚN FUN AND FAIRIES AT KLAMBRATÚN Klambratúni, miðvikudaginn 9. ágúst kl. 17:00. Aðgangur ókeypis. Klambratún by Kjarvalsstaðir, Wednesday 9 August at 5 p.m. Free admission. Fjórða árið í röð mun gleðin taka völd á Klambratúni þegar Íþróttafélagið Styrmir býður upp á leiki, keppni og grill. Um er að ræða útiskemmtun með pokahlaupi, reipitogi, blaki og boltum þar sem hinsegin fólk og aðrir furðufuglar munu etja kappi. Íþróttafélagið Styrmir er hinsegin íþróttafélag þar sem allir eru velkomnir, alltaf, og allar íþróttir líka. Ekki er nóg með að Styrmir sé hinsegin félag opið öllum heldur býður félagið einnig upp á pylsur og með’í! Sjáumst á Klambratúni. Who doesn‘t have a little fairy inside? Queer sport group Styrmir will host the outdoor fun, and compete with other queer groups. Everyone is welcome to come and join in, children, teens and adults. To keep everyone extra happy, the members of Styrmir will barbeque at Klambratún. Come and join the fun! 14

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.