Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2017, Side 18
HÝRIR
HÚSLESTRAR
QUEEREADS
Stúdentakjallaranum, föstudaginn 11.
ágúst kl. 17:00. Aðgangur ókeypis.
The Student Cellar, University of
Iceland, Friday 11 August at 5 p.m.
Free admission.
Bókmenntaviðburður Hinsegin daga sló enn og aftur í
gegn á síðasta ári og hefur fest sig rækilega í sessi sem einn
skemmtilegasti viðburður ársins. Aðdáendur glæpasagna
geta glaðst því lesið verður upp úr óútkominni bók Lilju
Sigurðardóttur, Búrinu, sem mun koma út um næstu jól. Þá
mun skáldið Kristín Ómarsdóttir lesa upp úr verkum sínum,
en hún hefur gefið út ljóð, smásögur, skáldsögur og leikrit,
og önnur valin hinsegin skáld stíga á stokk. Ýmislegt mun
koma á óvart í ár en töluvert miklar líkur eru á spennandi
leynigesti sem mun ekki svíkja áhorfendur. Viðburður fer
fram á íslensku
Reykjavik Pride invites you once again to enjoy a poetic
Friday afternoon of Icelandic literary readings and
performances. Poet Kristín Ómarsdóttir will perform and
there will be a dramatic reading from the unpublished
book Búrið by Lilja Sigurðardóttir. In addition to that a
selection of queer poets will perform – and be prepared
for a surprise guest. Event in Icelandic.
Ljóðasamkeppni
Ertu inni í ljóðaskápnum? Áttu örsögur í skúffunni
sem þrá að verða sýnilegar? Núna er rétti
tíminn til að opna sig því Hinsegin dagar efna
til ljóðasamkeppni í samstarfi við Sirkústjaldið,
vefrit um listir og menningu. Hinsegin skáld, jafnt
óreynd sem reynsluboltar, eru hvött til að senda
inn ljóð eða örsögur og taka þannig þátt í að efla
og auka við hina blómlegu menningu okkar.
Þátttakendur sendi texta í tölvupósti
á netfangið sirkustjaldid@gmail.com
fyrir 8. ágúst.
Dómnefnd skipuð þremur
einstaklingum – fulltrúa Hinsegin daga,
Sirkústjaldsins og einum óháðum aðila
– fær textana nafnlausa í hendurnar
og henni eru ekki veittar upplýsingar
um höfunda fyrr en þrjú verðlaunaverk
hafa verið valin. Úrslit verða tilkynnt
á Hýrum húslestrum á Hinsegin
dögum föstudaginn 11. ágúst þar sem
verðlaunatextarnir verða enn fremur
fluttir. Vinningsverkin verða birt á
Sirkústjaldinu (www.sirkustjaldid.is).
HINSEGIN
BÓKMENNTAGANGA
QUEER LITERATURE WALKING TOUR
Borgarbókasafninu í Grófinni,
Tryggvagötu 15, föstudaginn 11.
ágúst kl. 19:00. Aðgangur ókeypis.
Reykjavik City Library,
Tryggvagata 15, Friday 11
August at 7 p.m. Free admission.
Starfsfólk Borgarbókasafnsins hefur fundið til ýmislegt úr
hinum hýra bókakosti safnsins og býður nú til göngu um
slóðir hinsegin bókmennta í miðborginni. Farið verður
á milli áhrifastaða sögu og sagna og lesið úr textum
gagnkynhneigðra jafnt sem hinsegin rithöfunda, sem veita
innsýn í samfélag, líf og yrkisefni þeirra. Meðal höfunda
sem eiga efni á leslistanum má nefna Kristínu Ómarsdóttur,
Sjón, Elías Knörr og Evu Rún Snorradóttur. Lagt verður af
stað úr Grófinni kl. 19 og gangan tekur um klukkustund.
Viðburður fer fram á íslensku.
The Reykjavík City Library staff has picked out a few
books from the library’s queer catalog, and invites you
to join them for a guided walking tour centered on queer
literature in downtown Reykjavík. The tour will visit a
few places central or peripheral to queer texts, authored
by queer and straight writers, and hear excerpts from
stories and poetry which may give insight into the
community, life and writing of queer individuals. Among
the authors whose works are on the reading list are Kristín
Ómarsdóttir, Sjón, Elías Knörr and Eva Rún Snorradóttir.
This hour-long tour starts at the library in Tryggvagata at
7 p.m. Event in Icelandic.
18