Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2017, Síða 27

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2017, Síða 27
GLEÐI GANG AN Uppstilling og ný gönguleið Í ár verða nokkrar breytingar gerðar á gönguleið gleðigöngunnar. Uppstilling göngunnar verður frá kl. 11 á Hverfisgötu, milli Ingólfsstrætis og Klapparstígs. Gangan leggur stundvíslega af stað frá gatnamótum Hverfisgötu og Ingólfstrætis kl. 14 og bíður ekki eftir neinum. Gengið verður niður Hverfisgötuna, eftir Lækjargötu, Fríkirkjuvegi og endað á Sóleyjargötu þar sem glæsilegir útitónleikar taka við í Hljómskálagarðinum (sjá kort bls. 32–33). Skráning og þátttaka Þátttakendur sem ætla að vera með atriði í gleðigöngunni skulu sækja um það til Hinsegin daga eigi síðar en 1. ágúst. Nauðsynlegt er að skrá atriði með því að fylla út rafrænt umsóknareyðublað sem finna má á www.hinsegindagar.is/gledigangan. Nánari upplýsingar veita göngustjórarnir Setta, Steina, Lilja og Anna en hægt er að senda þeim póst á gongustjorn@ hinsegindagar.is. Öryggisstjórinn er Eva Jóa og hægt er að senda henni spurningar varðandi öryggi í göngunni í pósti á netfangið oryggisstjorn@ hinsegindagar.is. Athugið að ekki er hægt að veita fólki með atriði aðgang að göngunni nema rafræna umsóknin hafi verið fyllt út og send og skilmálar samþykktir. Hinsegin dagar leggja áherslu á að þeir sem vilja ganga með, en hafa ekki sótt um þátttöku og eru ekki með sérstakt atriði, bíði með að slást í hópinn þar til síðasti vagninn hefur farið framhjá. Auglýsingar bannaðar Hinsegin dagar eru stoltir af því að gleðigangan í Reykjavík er ein af fáum sambærilegum göngum í heiminum þar sem auglýsingar fyrirtækja og þjónustu eru óheimilar. Með auglýsingabanninu er undirstrikað að gangan er grasrótarviðburður og þátttakendur taka þátt til að styðja baráttuna og málstaðinn en ekki til að styrkja eða auglýsa fyrirtæki. Í örfáum undantekningartilvikum eru auglýsingar heimilar en þá þarf að sækja sérstaklega um undanþágu til göngustjórnar. Athugið að allar ósamþykktar auglýsingar á bílum og fatnaði þarf að hylja áður en gangan fer af stað. Brot á þessum reglum verður til þess að atriði er hafnað eða vísað úr göngunni. Gleðigöngupotturinn Með samstarfssamningi Hinsegin daga og Landsbankans sem var undirritaður THE PRIDE PARADE Gatnamót Hverfisgötu og Ingólfsstrætis (við Arnarhól), laugardaginn 12. ágúst kl. 14:00. Intersection of Hverfisgata and Ingólfsstræti (by Arnarhóll), Saturday 12 August at 2 p.m. 21. júní 2017 varð til sérstakur styrktarpottur gleðigöngunnar. Pottinum er ætlað að styrkja einstaklinga og hópa til þátttöku í gleðigöngunni og þannig m.a. aðstoða þátttakendur við að standa straum af kostnaði við hönnun atriða, leigu ökutækja, efniskaup og fleira. Dómnefnd velur styrkþega úr innsendum umsóknum og úthlutar styrkjum með það að markmiði að styðja framúrskarandi hugmyndir til framkvæmda. Miðað er við að fjárhæðir styrkja úr Gleðigöngupottinum séu á bilinu 100.000–500.000 kr. Dómnefndin hefur heimild til að halda eftir að hámarki 200.000 kr. til veitingar hvatningarverðlauna að hátíð lokinni. Þar með hafa allir styrkir og verðlaun Hinsegin daga verið færð undir einn hatt og því er ekki hægt að sækja um aðra styrki eða endurgreiðslu kostnaðar vegna þátttöku í gleðigöngu Hinsegin daga. Samkvæmt verklagsreglum pottsins var auglýst eftir umsóknum í júní og fresturinn rann út 16. júlí. Áhugasamir þátttakendur eru hvattir til að fylgjast með og sækja um á næsta ári. Sjá nánar á hinsegindagar.is/styrkir. Gleðigangan er hápunktur Hinsegin daga. Í henni sameinast lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og aðrir hinsegin einstaklingar í einum hópi ásamt fjölskyldum sínum og vinum til að staðfesta tilveru sína, sýnileika og gleði, ásamt því að minna á þau baráttumál sem skipta hvað mestu máli hverju sinni. Hinsegin dagar skipuleggja gleðigönguna og stýra hvaða atriði fá aðgang að henni en atriðin sjálf eru sprottin úr grasrótinni. Einstaklingar og hópar geta skipulagt atriði og sótt um þátttöku í göngunni en Hinsegin dagar setja sem skilyrði að öll atriði miðli skýrum skilaboðum sem varða veruleika hinsegin fólks á einn eða annan hátt. The Pride Parade Groups that wish to participate in the parade must apply to Reykjavik Pride before 1st of August by filling out a form which can be found on the website, www.hinsegindagar.is. For any further information about the parade, please contact the parade managers Setta, Eva, Steina, Lilja and Anna by e-mail, gongustjorn@ hinsegindagar.is. The parade is set up at Hverfisgata, near Arnarhóll from 11 a.m. The parade starts at 2 p.m. sharp and goes from the intersection of Hverfisgata and Ingólfstræti, through Lækjargata, Fríkirkjuvegur and ends on Sóleyjargata near Hljómskálagarður where an outdoor concert will take place after the parade. Að gefnu tilefni minnum við á að ófiðraðir steggir og fjaðralausar gæsir eru ekki velkomin í gleðigöngu Hinsegin daga. Við göngum í þágu mannréttinda og mannvirðingar og biðjum gæsa- og steggjapartí vinsamlegast að virða það og finna sér annan vettvang. 27

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.