Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2017, Qupperneq 27
GLEÐI
GANG
AN
Uppstilling og ný gönguleið
Í ár verða nokkrar breytingar gerðar
á gönguleið gleðigöngunnar.
Uppstilling göngunnar verður frá kl.
11 á Hverfisgötu, milli Ingólfsstrætis
og Klapparstígs. Gangan leggur
stundvíslega af stað frá gatnamótum
Hverfisgötu og Ingólfstrætis kl. 14 og
bíður ekki eftir neinum. Gengið verður
niður Hverfisgötuna, eftir Lækjargötu,
Fríkirkjuvegi og endað á Sóleyjargötu
þar sem glæsilegir útitónleikar taka
við í Hljómskálagarðinum (sjá kort bls.
32–33).
Skráning og þátttaka
Þátttakendur sem ætla að vera með
atriði í gleðigöngunni skulu sækja
um það til Hinsegin daga eigi síðar
en 1. ágúst. Nauðsynlegt er að skrá
atriði með því að fylla út rafrænt
umsóknareyðublað sem finna má á
www.hinsegindagar.is/gledigangan.
Nánari upplýsingar veita göngustjórarnir
Setta, Steina, Lilja og Anna en hægt
er að senda þeim póst á gongustjorn@
hinsegindagar.is. Öryggisstjórinn er
Eva Jóa og hægt er að senda henni
spurningar varðandi öryggi í göngunni
í pósti á netfangið oryggisstjorn@
hinsegindagar.is. Athugið að ekki er
hægt að veita fólki með atriði aðgang
að göngunni nema rafræna umsóknin
hafi verið fyllt út og send og skilmálar
samþykktir.
Hinsegin dagar leggja áherslu á að þeir
sem vilja ganga með, en hafa ekki sótt
um þátttöku og eru ekki með sérstakt
atriði, bíði með að slást í hópinn þar til
síðasti vagninn hefur farið framhjá.
Auglýsingar bannaðar
Hinsegin dagar eru stoltir af því að
gleðigangan í Reykjavík er ein af fáum
sambærilegum göngum í heiminum þar
sem auglýsingar fyrirtækja og þjónustu
eru óheimilar. Með auglýsingabanninu
er undirstrikað að gangan er
grasrótarviðburður og þátttakendur
taka þátt til að styðja baráttuna og
málstaðinn en ekki til að styrkja eða
auglýsa fyrirtæki.
Í örfáum undantekningartilvikum
eru auglýsingar heimilar en þá þarf
að sækja sérstaklega um undanþágu
til göngustjórnar. Athugið að allar
ósamþykktar auglýsingar á bílum og
fatnaði þarf að hylja áður en gangan fer
af stað. Brot á þessum reglum verður
til þess að atriði er hafnað eða vísað úr
göngunni.
Gleðigöngupotturinn
Með samstarfssamningi Hinsegin daga
og Landsbankans sem var undirritaður
THE
PRIDE
PARADE
Gatnamót Hverfisgötu og Ingólfsstrætis
(við Arnarhól), laugardaginn
12. ágúst kl. 14:00.
Intersection of Hverfisgata and Ingólfsstræti
(by Arnarhóll), Saturday
12 August at 2 p.m.
21. júní 2017 varð til sérstakur
styrktarpottur gleðigöngunnar.
Pottinum er ætlað að styrkja
einstaklinga og hópa til þátttöku
í gleðigöngunni og þannig m.a.
aðstoða þátttakendur við að standa
straum af kostnaði við hönnun atriða,
leigu ökutækja, efniskaup og fleira.
Dómnefnd velur styrkþega
úr innsendum umsóknum og
úthlutar styrkjum með það að
markmiði að styðja framúrskarandi
hugmyndir til framkvæmda.
Miðað er við að fjárhæðir styrkja úr
Gleðigöngupottinum séu á bilinu
100.000–500.000 kr. Dómnefndin
hefur heimild til að halda eftir að
hámarki 200.000 kr. til veitingar
hvatningarverðlauna að hátíð
lokinni.
Þar með hafa allir styrkir og verðlaun
Hinsegin daga verið færð undir einn
hatt og því er ekki hægt að sækja
um aðra styrki eða endurgreiðslu
kostnaðar vegna þátttöku í
gleðigöngu Hinsegin daga.
Samkvæmt verklagsreglum pottsins
var auglýst eftir umsóknum í
júní og fresturinn rann út 16.
júlí. Áhugasamir þátttakendur
eru hvattir til að fylgjast með og
sækja um á næsta ári. Sjá nánar á
hinsegindagar.is/styrkir.
Gleðigangan er hápunktur Hinsegin daga.
Í henni sameinast lesbíur, hommar, tví- og
pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og
aðrir hinsegin einstaklingar í einum hópi
ásamt fjölskyldum sínum og vinum til að
staðfesta tilveru sína, sýnileika og gleði,
ásamt því að minna á þau baráttumál sem
skipta hvað mestu máli hverju sinni. Hinsegin
dagar skipuleggja gleðigönguna og stýra
hvaða atriði fá aðgang að henni en atriðin
sjálf eru sprottin úr grasrótinni. Einstaklingar
og hópar geta skipulagt atriði og sótt um
þátttöku í göngunni en Hinsegin dagar
setja sem skilyrði að öll atriði miðli skýrum
skilaboðum sem varða veruleika hinsegin
fólks á einn eða annan hátt.
The Pride Parade
Groups that wish to participate in
the parade must apply to Reykjavik
Pride before 1st of August by filling
out a form which can be found on the
website, www.hinsegindagar.is. For
any further information about the
parade, please contact the parade
managers Setta, Eva, Steina, Lilja
and Anna by e-mail, gongustjorn@
hinsegindagar.is. The parade is set up
at Hverfisgata, near Arnarhóll from
11 a.m. The parade starts at 2 p.m.
sharp and goes from the intersection of
Hverfisgata and Ingólfstræti, through
Lækjargata, Fríkirkjuvegur and ends on
Sóleyjargata near Hljómskálagarður
where an outdoor concert will take
place after the parade.
Að gefnu tilefni minnum við á að
ófiðraðir steggir og fjaðralausar
gæsir eru ekki velkomin í gleðigöngu
Hinsegin daga. Við göngum í þágu
mannréttinda og mannvirðingar
og biðjum gæsa- og steggjapartí
vinsamlegast að virða það og finna
sér annan vettvang.
27