Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2017, Side 44
hvað þú ert litaglaður en þegar ég
skoðaði hönnun þína á ravelry.com
(samfélagsmiðill fyrir áhugafólk um
prjónaskap) er greinilegt að það hefur
ekki alltaf verið svo.
Já, ég var bæði grófari og jarðbundnari
áður en ég flutti til Amsterdam. Ég hef
alltaf verið hrifinn af litum en ég var
aðeins varfærnari í prjóni og hönnun
þegar ég var yngri. Það má með sanni
segja að með auknum þroska hafi ég
náð að losa um höftin, opna á litadýrðina
innra með mér og uppgötva hvað felst í
mínum eigin stíl. Flutningarnir til Evrópu
breyttu ótrúlega miklu fyrir mig. Ég
held að bandarísk menning hafi haft
ómeðvituð áhrif á mig og látið mig hugsa
sem svo að ég mætti ekki vera of litríkur
og áberandi. Aðgengi að mismunandi
menningarheimum mótaði mig að því
leyti að ég er orðinn mun hugrakkari í
minni hönnun.
Finnur þú mikinn mun á viðtökunum
sem þú færð eftir því hvort þú ert í
Bandaríkjunum eða í Evrópu?
Prjónarar eru mjög mismunandi eftir
svæðum. Í mörgum löndum elskar
fólk bjarta liti og hefur djúpt innsæi
þegar kemur að tilraunastarfsemi með
blæbrigði. Í Bandaríkjunum vill fólk oftast
vita af hverju ég nota svona djarfa liti og
hvað sé hentugt við þannig hönnun. Hins
vegar virðist fólk í Amsterdam og á Íslandi
vera almennt afslappaðra og kippa sér
minna upp við óvenjulega hönnun.
Fyrstu myndatökurnar mínar sem fengu
einhverja athygli að ráði voru hlutlausari,
með appelsínugulum, bláum og gráum
tónum. Eftir því sem ég þroskaðist byrjaði
ég að nota bjartari litasamsetningar og
skemmtilegri förðun. Ég fékk mikið af
neikvæðri athygli á netinu þegar ég færði
mig yfir í litríka ljósmyndun sem jaðrar við
Byrjum á byrjuninni – hvaðan ertu og
hvar ólstu upp?
Ég er frá Oklahoma í Bandaríkjunum,
fæddur og flúinn. Ég ólst upp í
miðvesturríkjunum á meðan skólagöngu
minni stóð en flutti til Amsterdam
þegar ég var 21 árs til þess að læra
dans í listaskóla þar. Það er gríðarlegur
menningarmunur milli Oklahoma og
Evrópu og breytingin frá lífsstílnum í
miðríkjum Bandaríkjanna var mikill. Ég
elska að hjóla og geta stokkið upp í lest
til nýrra borga til að fá litríkan innblástur
í prjónalíf mitt. Ég lærði að prjóna í
Tulsa en það var fyrst í Amsterdam að
prjónið fór að taka yfir líf mitt og ég hef
prjónað nánast daglega síðan eða í tólf ár.
Stundum prjóna ég allan daginn. Prjón er
þráhyggjan mín.
Þú fórst að próna frekar ungur en
prjón hefur alla jafna verið mjög tengt
við kvenleika og oft er sagt að það séu
„bara konur sem prjóna“. Hafði þessi
ástríða einhver áhrif á þig félagslega?
Ég var alltaf skrítinn og skapandi, líka
áður en ég fór að prjóna. Ég var á fullu
í dans- og söngleikjastarfi í skóla og
tilheyrði mjög skapandi vinahóp. Við
vorum öll skrítin og litrík saman. Ég hef
líka verið heppinn. Mamma hvatti mig
alltaf til að vera listrænn og skapandi. Hún
er menntuð í klassískum söng og pabbi
er klassískur píanóleikari. Ég fékk því ekki
mikið neikvætt viðmót. Það voru líka
um 4000 nemendur í skólanum mínum
þannig að allir voru frekar uppteknir af
sínum eigin vinahópum og áhugamálum.
Svo hef ég líka alltaf verið svakalega
hávaxinn þannig að ég var ekki auðvelt
skotmark fyrir stríðni.
Það er svo sannarlega eitt af þínum
aðaleinkennum sem hönnuður
fantasíu en nú býst fólk við þessu af mér
og ef ég kæmi allt í einu með drapplitaða
línu af prjónuðum flíkum myndu allir fríka
út.
Þú hefur varið talsverðum tíma á
Íslandi að undanförnu. Er það grófa
íslenska ullin eða viðhorf Íslendinga til
litagleðinnar sem heillar þig?
Ég hef prjónað mikið með lopa en núna
vinn ég mest með handlitaða merínóull.
Ég elska Ísland af því að það er lítið og
kyrrlátt. Hér er rými fyrir mig til að vera ég
sjálfur, hvernig sem mér líður.
Segðu okkur endilega frekar frá
ást þinni á landinu. Við elskum
„Íslandsvini“!
Ég elska kettina! Og kindurnar,
auðvitað. Ég elska að synda og ég
elska hveralaugar. Landslagið hér er
yfirþyrmandi fallegt. Ég ólst upp langt
frá opnu hafi og fjöllum, svo Ísland er
eins og draumur. Ég fæ alltaf bestu
hugmyndirnar mínar á Íslandi og mikið
af uppáhaldshönnuninni minni, líkt
og Swants (peysu-buxur) og YouTube-
myndbönd sem ég hef tekið upp eru
innblásin af landinu.
Það er svo indæl tilfinning á Íslandi, svo
mikið pláss, og mér líður eins og allt sé
mögulegt. Þess vegna kem ég aftur og aftur
og í hvert skipti hitti ég frábæra prjónara
héðan og eignast fleiri skapandi vini.
Stíllinn þinn vekur talsverða athygli
og þú ert orðinn vinsæll hönnuður og
þekktur í Bandaríkjunum. Er auðveldara
að vera þú sjálfur fjarri heimahögum?
Já, það er auðveldara að vera nafnlaus
í öðrum löndum. Stundum er athygli
frábær en stundum líður manni eins og
sýningardýri. Þótt stíllinn minn sé bæði
áberandi og litríkur er ég sjálfur mjög
44