Fréttablaðið - 19.05.2021, Blaðsíða 38
Elskulegur eiginmaður minn, pabbi
okkar, tengdapabbi, afi og langafi,
Hjalti Jón Þorgrímsson
frá Reykjavík,
síðast búsettur á Egilsstöðum,
er látinn. Útförin hefur farið fram.
Fjölskyldan þakkar starfsfólki Fells,
dvalarheimilinu Dyngju á Egilsstöðum, fyrir einstaka og
alúðlega umönnun síðustu mánuðina.
Eyrún Eiríksdóttir
Ásta María Hjaltadóttir Sverrir Gestsson
Eyrún og Fjölnir, Hjalti Jón, Ragna og Björn, Marta Kristín
og Matthías, Laufey og Björgvin
Ásthildur Hjaltadóttir Dave de la Fuente
Ásgerður og Wouter, Fanney Thera, Janneke Sif
Gwen, Þór, Quinten, Mikael, Freyr, Karl, Alvin og Sverrir
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og bróðir,
Sigurður H. Björnsson
flugstjóri,
Tjaldanesi 13, Garðabæ,
varð bráðkvaddur þann 7. maí sl.
Útförin fer fram þriðjudaginn 25. maí
nk. frá Fossvogskirkju. Í ljósi aðstæðna verður nánustu
aðstandendum og vinum boðið til útfararinnar.
Þórunn Ólafsdóttir
Snorri Páll Sigurðsson Ásta Berit Malmquist
Hólmfríður Björk Sigurðardóttir Egill Árni Guðnason
barnabörn og systkini.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Magnús Sigurðsson
hagfræðingur,
varð bráðkvaddur á heimili
sínu 25. apríl.
Útförin fer fram frá Breiðholtskirkju
fimmtudaginn 20. maí klukkan 13.
Kristrún B. Jónsdóttir
Áslaug Magnúsdóttir
Sacha Tueni
Sigurður R. Magnússon
Regína Rist Friðriksdóttir
Gunnar Ágúst Thoroddsen
Marlena Piekarska
Ástkær móðir okkar og amma,
Erla Hannesdóttir
Hofteigi 23,
lést 15. maí á Landspítalanum.
Útför verður auglýst síðar.
Jóhannes Jóhannesson
Lárus Jóhannesson Glenda Jóhannesson
Hákon og Freya
Sveinn Óttar og Birta Rós
Jóhannes A. og Stefán C.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
Gunnar Þórðarson
frá Bíldudal,
lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold,
Garðabæ, miðvikudaginn 12. maí.
Útför fer fram frá Bíldudalskirkju
laugardaginn 29. maí kl. 14. Athöfninni verður streymt:
bit.ly/bildudalskirkja
Sigurður Gunnarsson Kristín María Ólafsdóttir
Bjarnþór Gunnarsson Hanna Sigurjónsdóttir
Ágúst Gíslason Kolbrún Matthíasdóttir
Valgerður Jónasdóttir
og fjölskyldur.
Seyðisfjörður er söngvaskáldinu
Ingólfi Steinssyni andleg upp-
spretta ljóða og laga á diskinum
Bernskubrek. Hann syngur öll
lögin og spilar með á hljóðfæri
ásamt fleiri meisturum.
gun@frettabladid.is
Þessu efni hef ég lengi verið að smá-
pússla saman og fyrir hálfu öðru ári
fannst mér tími kominn á að taka það
upp. Það var erfitt að vera með þetta
allt í hausnum,“ segir Ingólfur Steins-
son, tónlistar- og textasmiður, um
lögin fjórtán á diskinum Bernskubrek
sem var að koma út hjá Tungu. „Ég er
náttúrlega genginn hálfa leið í barn-
dóm,“ bætir hann við glaðlega.
Ingólfur ólst upp á Seyðisfirði og
segir langt síðan hann byrjaði að gera
árunum þar skil í verkum sínum. Á nýja
diskinum kveðst hann einkum horfa til
sjötta og sjöunda áratuga í textunum.
„Þegar hamfarirnar urðu á Seyðisfirði
18. desember í vetur fékk ég nett áfall
og hugsaði mikið til æskustöðvanna.
Þá ákvað ég líka að setja drift í að gefa
þetta efni mitt út þegar sól færi veru-
lega að hækka á lofti og nú er sá tími
kominn.“
Upptökur fóru fram í Stúdíó VOX hjá
Vilhjálmi Guðjónssyni tónlistarmanni,
að sögn Ingólfs. En setti Covid-19 ekk-
ert strik í reikninginn? „Jú, við unnum
þetta í rólegheitum og það komu tíma-
bil sem við hittumst ekkert þegar
ástandið var sem verst. Það hefur alveg
bjargað mér að hafa þetta hobbý að fást
við í einangruninni enda eru margar
stundir sem fara í svona útgáfu.“
Sjálfur kveðst Ingólfur spila á gítar,
bassa, píanó og munnhörpu. „Svo er
Villi nú ekki bara góður upptökumaður,
heldur leikur á fjölmörg hljóðfæri, allt
frá slagverki upp í blástur. Við fengum
líka Jóhann Hjörleifsson trommara til
að spila í nokkrum lögum. Á diskinum
eru eldri upptökur þar sem Ásgeir Ósk-
arsson, Haraldur Þorsteinsson, Lárus
Grímsson og Þórir Úlfarsson eru með-
leikarar. Annars eru þetta mest við
Villi að spila og syngja. Ég samdi text-
ana utan einn sem er þjóðvísa. Hann
minnir mig á mömmu sem sagði okkur
krökkunum margar sögur og undir lok
þeirra kom gjarnan „….áttu börn og
buru, grófu rætur og muru og enduðu
á … úti er ævintýri.“
Þess má geta að textar og myndir
fylgja með diskinum og að útgáfan Zonet
annast framleiðslu og dreifingu hans og
auk þess sem lögin eru á Spotify. n
Syngur til æskustöðvanna
„Ég er náttúrlega genginn hálfa leið í barndóm,“ segir Ingólfur, sem leyfir minningum að lifa í ljóðum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Kóngsríki fjallanna
1. erindi:
Einu sinni voru fjöll og fjörður
sem fylgdu mér í þennan heim.
Fjörðurinn var djúpur og fjöllin há
og fegurðin bjó yfir þeim.
Þegar hamfarirnar urðu á
Seyðisfirði 18. desember í
vetur fékk ég nett áfall og
hugsaði mikið til æsku-
stöðvanna.
Greta Clough var kát með viðurkenninguna. MYND/AÐSEND
gun@frettabladid.is
Handbendi, brúðuleikhús á
Hvammstanga, hlaut Eyrar-
rósina síðasta sunnudag. Um
er að ræða viðurkenningu
fyrir framúrskarandi menn-
ingarverkefni utan höfuð-
borgarsvæðisins. Greta Clo-
ugh, stofnandi og listrænn
stjór nandi Handbendis,
veitti henni viðtöku á Pat-
reksfirði úr hendi Elizu Reid
forsetafrúar sem er verndari
Eyrarrósarinnar. Verðlaunafé
fylgdi að upphæð 2.5 milljón-
ir króna og boð um að standa
að viðburði á Listahátíð 2022.
Þrjú verkefni hlutu hvatn-
ingarverðlaun Eyrarrósar-
innar. Hvert um sig fékk 750
þúsund auk gjafakorts frá
Icelandair að upphæð 100
þúsund. n
Eyrarrósin til Hvammstanga
TÍMAMÓT 19. maí 2021 MIÐVIKUDAGUR