Fréttablaðið - 19.05.2021, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 19.05.2021, Blaðsíða 30
Af 30 ríkjum Evrópska efnahags- svæðisins (EES) er Ísland í 29. sæti yfir fjölda tvísköttunarsamninga við önnur ríki. Aðeins Liechtenstein er með færri samninga, en Liechten- stein – land með svipaðan íbúafjölda og býr í Kópavogi – fór ekki að leita eftir að gera tvísköttunarsamninga við önnur ríki fyrr en árið 2009. Það er því varla hægt að segja annað en að Ísland reki lestina að þessu leyti. Sjá meðfylgjandi töflu yfir fjölda ríkja sem ríki EES hafa gert tvískött- unarsamninga við og tekið hafa gildi. Undirritaður skrifaði sams konar blaðagrein á árinu 2015 og sýnir taflan einnig stöðuna sem var þá. Ísland var líka í næstsíðasta sæti 2015. Hækkun um eitt sæti kemur til vegna útgöngu Bretlands, en Bretland hafði þá og nú gert f leiri tvísköttunarsamninga en nokkurt ríki á þessum lista. Sviss er ekki hluti ESS, en er bara eftirbátur Bret- lands og Frakklands að þessu leyti. Hvað er tvísköttunarsamningur? Almennt leggja ríki á skatta á aðila út frá tveimur forsendum. Annars vegar vegna uppruna teknanna, það er ríkið þar sem tekjurnar eru upprunnar leggur á þær skatt. Hins vegar vegna heimilisfesti mót- takanda teknanna, það er ríkið þar sem móttakandinn á heimili leggur á þær skatt. Án tvísköttunarsamn- ings, leiðir framangreint til þess að tekjur, sem maður, heimilisfastur í ríki 1 aflar í ríki 2, verða skattskyld- ar í báðum ríkjum. Tvísköttunar- samningur leysir úr slíkri tvískatt- lagningu. Samið er um að tekjurnar skattleggist aðeins einu sinni, en ekki tvisvar. Fjöldi tvísköttunarsamninga skiptir máli í samkeppni ríkja um Fjöldi tvísköttunarsamninga – Ísland rekur enn lestina Símon Þór Jóns- son, sviðsstjóri Skatta- og lög- fræðisviðs EY. 1 (2) Frakkland 124 (124) 2 (4) Ítalía 102 (94) 3 (6-7) Spánn 97 (88) 4-5 (3) Þýskaland 96 (96) 4-5 (5) Belgía 96 (91) 6 (6-7) Holland 95 (88) 7 (13) Tékkland 93 (82) 8 (8) Austurríki 90 (87) 9 (9) Rúmenía 89 (86) 10 (11-12) Noregur 87 (84) 11 (10) Svíþjóð 86 (85) 12-13 (11-12) Pólland 83 (84) 12-13 (20) Lúxemborg 83 (67) 14 (14-15) Ungverjal. 81 (75) 15 (22) Portúgal 78 (63) 16-18 (14-15) Danmörk 77 (75) 16-18 (16) Finnland 77 (74) 16-18 (19) Malta 77 (68) 19-20 (17-18) Búlgaría 73 (69) 19-20 (17-18) Írland 73 (69) 21 (21) Slóvakía 69 (65) 22-23 (23-25) Króatía 66 (57) 22-23 (28) Kýpur 66 (53) 24 (23-25) Lettland 62 (57) 25 (26) Eistland 61 (56) 26 (23-25) Slóvenía 59 (57) 27 (27) Grikkland 56 (54) 28 (29) Litháen 56 (53) 29 (30) Ísland 45 (40) ✿ Fjöldi ríkja sem ríki EES hafa gert tvísköttunarsamninga við og tekið hafa gildi: Röð Ríki Fjöldi TSS 2021 (2015) 2021 (2015) Röð Ríki Fjöldi TSS 2021 (2015) 2021 (2015) fjárfestingar og fyrirtæki. Fjöldi tvísköttunarsamninga skiptir máli þegar fyrirtæki ákveða í hvaða lög- sögu þau staðsetja höfuðstöðvar, eignarhaldsfélög eða starfsemi. Fáir tvísköttunarsamningar Íslands sam- anborið við fjölda samninga annarra ríkja dregur því óumdeilanlega úr samkeppnishæfni Íslands gagnvart öðrum ríkjum um fjárfestingar og fyrirtæki. Ísland er því miður ekki í góðri stöðu að þessu leyti. Ísland hefur til dæmis aldrei haft gilda samn- inga við fimm ríki Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), Ástralíu, Ísrael, Nýja-Sjáland, Síle og Tyrkland. Ef litið er til þeirra 50 ríkja sem Alþjóðagjaldeyrissjóður- inn (IMF) áætlar að verði með mesta verga landsframleiðslu 2021 þá er Ísland einungis með tvísköttunar- samninga við minnihluta þeirra, eða við 24 ríkjanna. Það er umhugsunarefni af hverju Ísland er með svo fáa tvísköttunar- samninga. Nú eru önnur EES-ríki með fáa íbúa og lítil hagkerfi, eins og til dæmis Lúxemborg og Malta, en samt með áberandi f leiri gilda tvísköttunarsamninga, 83 (Lúxemborg) og 77 (Malta) á móti 45 samningum Íslands. Þá vekur athygli að á listanum eru fámenn ríki sem urðu ekki sjálfstæð fyrr en á tíunda áratug 20. aldar, en eru þrátt fyrir það með umtalsvert f leiri gildandi samninga en Ísland, eins og til dæmis Eystrasaltsríkin þrjú. n Svipmynd Lilja Kristín Birgisdóttir Nám: Ég er í miðju meistaranámi í markaðsfræði við Bifröst sam- hliða vinnu. Lauk stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 2014. Fór í skiptinám í alþjóðasamskiptum við University of Sussex í Bright- on, Englandi. Starf: Ég starfa sem sérfræðingur í markaðsdeild Krónunnar en finnst „markaðs-ninja” mun skemmti- legri starfstitill. Ég hef unnið hjá Krónunni í tvö ár en sá tími hefur verið lærdómsríkur enda enginn dagur eins. Minn fókus er að ná að fanga athygli viðskiptavina, enda teljum við hjá Krónunni mikilvægt að leggja áherslu á virka hlustun við viðskiptavini og að láta verða af óskum þeirra. Fjölskylduhagir: Ég bý á Álfta- nesi með manninum mínum; rafíþróttanördinu Arnari Hólm, strákunum okkar tveimur, Eldi og Stormi, og hundinum Bósa. Það eru forréttindi að búa í „sveitinni“ sem Álftanesið er. Þar er ákveðin ró en það er líka fyndið að hafa lent í því að fá óboðinn hest (já hest) í heimsókn í garðinn oftar en einu sinni, nú eða að vakna við hanagal. Lilja Kristín Birgisdóttir, markaðssérfræðingur hjá Krónunni, byrjar alla morgna á að kveikja á Spotify og dansa. Hún býr á Álftanesi og oftar en einu sinni hefur óboðinn hestur komið í heimsókn í garðinn. Hvað felst í starfi þínu hjá Krón- unni? Hjá Krónunni vinn ég með frá- bæru markaðsteymi og sinni skemmtilegum verkefnum sem snúa bæði að innri og ytri mark- aðssetningu í fyrirtækinu. Vinnu- staðurinn er líflegur og ómetanlegt að því sé oftast tekið fagnandi þegar öðruvísi hugmyndir skjóta upp kollinum. Í Krónunni leggjum við okkur fram við að miðla skemmti- legum og óvenjulegum markaðs- skilaboðum til viðskiptavina. Mark- aðsdeild Krónunnar vinnur eins og lítil auglýsingastofa með risastórt hjarta. Á þeim tveimur árum sem ég hef unnið hjá Krónunni hefur starfið mitt þróast og breyst töluvert. Ég hef fengið tækifæri til að vaxa og setja á mig ýmsa mismunandi hatta. Ég vinn við efnissköpun fyrir alla miðla, stefnumótun og framkvæmd markaðsherferða, stýri samfélags- miðlum og birtingum, hef tekið virkan þátt í þróun Snjallverslunar sem við komum í gagnið á síðasta ári, langt á undan áætlun, til að mæta gífurlegri þörf á heimsend- ingu í heimsfaraldrinum. Einnig sé ég um viðburðastjórnun og samn- ingagerð ásamt fjölmörgum öðrum stórskemmtilegum verkefnum. Með alla þessa bolta á lofti og í lifandi starfsumhverfi tel ég mikilvægt að læra að verða „kamelljón“, er fljót að skipta um lit, taka vel í breytingar og aðlagast þeim auðveldlega. Núna leysi ég til dæmis líka af í þeim verkefnum sem snúa að umhverfis- málum en Krónuhjartað brennur fyrir þeim. Hver eru þín helstu áhugamál? Ég er nýsmituð af utanvega- hlaupa-bakteríunni. Það er líka ákveðin hugleiðsla og núllstilling að reima á sig skóna og fara út að hlaupa með besta vininum. Ég ætla aldrei að hætta að leika mér. Ég tek mig ekki of alvarlega og finnst fátt skemmtilegra en að leika við strák- ana mína tvo. Hvort sem það er að rúlla á hjólabretti, moka úti í sand- kassa eða að húlla með þeim. Ég er að spá að gefa sjálfri mér nýja hjóla- skauta í sumargjöf. Af hverju ekki? Ég er mikill extróvert og finnst fátt skemmtilegra en að hitta vini og fjölskyldu sem hefur verið erfitt síð- astliðið ár. Mér þykir líka gaman að elda og að það að vinna í Krónunni hefur bara ýtt undir þann áhuga. Ég elda þó sjaldan eftir uppskriftum, því ég á það til að missa þolinmæði að lesa mig í gegnum þær, ég lít því á matargerð eins og listaverk, dass af þessu, dass af hinu og útkoman getur orðið stórfengleg... nú eða ekki. Megið spyrja manninn minn. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig? Það er erfitt að nefna eina bók, því ég les og hlusta mjög mikið á hljóðbækur. Litla ég hefði sagt Byrjar alla morgna á að dansa við tónlist Lilja Kristín Birgisdóttir, markaðssér- fræðingur hjá Krónunni, er eins og kamel- ljón í vinnunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Harry Potter en „stóra“ ég (159 cm) verð eiginlega að segja Untamed eftir Glennon Doyle sem ég las á síðasta ári. Hún vakti eitthvað innra með mér. Mér fannst hún eitthvað svo hressandi hrá, hugrökk, sönn og einlæg. Hvernig er morgunrútínan þín? Ég byrja alla daga á því að kveikja á Spotify og dansa. Ég tel að það kveiki á sköpunargleðinni að dansa inn í daginn. Auk þess er það frá- bær leið við að vekja strákana mína tvo sem eru á leikskólaaldri. Síðan viðra ég hundinn áður en ég fæ mér rjúkandi kaffibolla, klæði strákana á ljóshraða og bruna í vinnuna. Hvar sérðu þig eftir 10 ár? Alandi upp tvo unglingsstráka en vonandi ennþá að leika mér. Mögu- lega komin á svifbretti? Hver veit? Hvers hlakkar þú mest til þessa dagana? Þar sem fáir viðburðir hafa verið í boði síðasta árið þá hlakka ég mikið til brúðkaups systur minnar, sem er í byrjun júní. Það er fátt skemmti- legra en að koma saman og fagna ástinni. n Ég ætla aldrei að hætta að leika mér. Ég tek mig ekki of alvarlega og finnst fátt skemmti- legra en að leika við strákana mína tvo. Hvort sem það er að rúlla á hjólabretti, moka úti í sandkassa eða að húlla með þeim. MARKAÐURINN8 19. maí 2021 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.