Fréttablaðið - 29.05.2021, Side 51
Hagfræðingar
Samkeppniseftirlitið auglýsir eftir tveimur öflugum hagfræðingum sem hafa
brennandi áhuga á samkeppnismálum. Viðkomandi munu í störfum sínum vinna náið
með aðalhagfræðingi og sérfræðingum stofnunarinnar.
Lögfræðingur
Samkeppniseftirlitið leitar að öflugum lögfræðingi sem hefur brennandi áhuga á
samkeppnismálum. Lögfræðingar Samkeppniseftirlitsins taka þátt í og bera ábyrgð á
úrlausnum samkeppnismála á ýmsum sviðum atvinnulífsins ásamt því að sinna öðrum
áhugaverðum verkefnum á sviði samkeppnisréttar.
Helstu verkefni:
• Greiningarvinna og þátttaka í skrifum á skýrslum og ákvörðunum
• Söfnun gagna og tölfræðileg úrvinnsla
• Miðlun hagfræðilegrar þekkingar við rannsókn mála
• Samskipti við hagsmunaaðila
• Þátttaka í öðru þróttmiklu starfi Samkeppniseftirlitsins á sviði hagfræði
• Möguleiki á þátttöku í erlendu samstarfi
Menntunar og hæfniskröfur:
• Meistarapróf í hagfræði
• Gott vald á aðferðum til hagrannsókna og notkun hugbúnaðar
við tölfræðigreiningar og úrvinnslu gagna
• Þekking á atvinnuvega- eða vinnumarkaðshagfræði er kostur
• Reynsla af greiningarvinnu og samkeppnismálum er kostur
• Góð greiningarhæfni og skipulögð vinnubrögð
• Frumkvæði við úrlausn viðfangsefna
• Hæfni í samskiptum og þverfaglegri samvinnu
• Geta til að vinna undir álagi
• Mjög gott vald á íslensku og ensku, í mæltu og rituðu máli
Umsóknarfrestur er til og með 25. júní 2021. Annað starfið er tímabundið frá
01.09.2021-31.03.2022. Með umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá, kynningarbréf
og einkunnir úr grunn- og framhaldsnámi. Nánari upplýsingar veita Valur Þráinsson,
aðalhagfræðingur (valur.thrainsson@samkeppni.is) í síma 585-0700 og Karítas
Jónsdóttir, rekstrarstjóri (karitas.m.jonsdottir@samkeppni.is) í síma 585-0700.
Helstu verkefni:
• Ábyrgð á og þátttaka í úrlausnum samkeppnismála á fjölbreyttum sviðum
atvinnulífsins
• Greiningar á samkeppnisstöðu fyrirtækja
• Eftirlit og greining markaða
• Rannsóknir og gagnavinnsla
• Skýrslu- og álitsgerðir
• Möguleiki á þátttöku í erlendu samstarfi
Menntunar og hæfniskröfur:
• Kandidats- eða meistarapróf í lögfræði
• Reynsla af samkeppnis- og/eða stjórnsýslumálum
• Reynsla og/eða þekking á evrópurétti kostur
• Frumkvæði við úrlausn viðfangsefna
• Góð greiningarhæfni og skipulögð vinnubrögð
• Hæfni í samskiptum og þverfaglegri samvinnu
• Geta til að vinna undir álagi
• Mjög gott vald á íslensku og ensku, í mæltu og rituðu máli
Umsóknarfrestur er til og með 10. júní 2021. Með umsókn þarf að fylgja starfsferils-
skrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar veita Eva Ómarsdóttir, verkefna- og
teymisstjóri (eva.omarsdottir@samkeppni.is) og Karítas Margrét Jónsdóttir, rekstrarstjóri
(karitas.m.jonsdottir@samkeppni.is) í síma 585-0700. Öllum umsóknum verður svarað
að ráðningu lokinni.
Um Samkeppniseftirlitið
Samkeppniseftirlitið fylgist með samkeppni fyrirtækja í síbreytilegu atvinnulífi landsins.
Eftirlitið spornar við óhæfilegum hindrunum og takmörkunum á frelsi í atvinnurekstri, vinnur
gegn skaðlegri fákeppni og samkeppnishömlum og auðveldar aðgang nýrra keppinauta að
markaðnum.
Hjá Samkeppniseftirlitinu starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga sem hefur brennandi
áhuga á samkeppnismálum og nær árangri í starfi. Samkeppniseftirlitið leggur áherslu á að
starfsmenn þess fái tækifæri til að sinna spennandi verkefnum, þróast í starfi og viðhalda
jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Samkeppniseftirlitið fékk viðurkenningu sem ein af fimm
fyrirmyndarstofnunum í sínum stærðarflokki á árinu 2020.
www.samkeppni.is
Samkeppniseftirlitið áskilur sér rétt til þess að ráða á grundvelli auglýsingarinnar næstu sex mánuði eftir birtingu
hennar, sbr. reglur um auglýsingar á lausum störfum nr. 1000/2019. Við ráðningar hjá Samkeppniseftirlitinu er tekið
mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun stofnunarinnar.
Sótt er rafrænt um störfin á www.starfatorg.is.
Starfshlutfall er 100%. Laun eru skv. kjarasamningi fjármálaráðuneytisins
og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Laus störf hjá Samkeppniseftirlitinu
Ánægðir viðskiptavinir
eru okkar besta auglýsing
Sérfræðingar í
ráðningum
lind@fastradningar.is
mjoll@fastradningar.is
FAST
Ráðningar
www.fastradningar.is
ATVINNUBLAÐIÐ 13LAUGARDAGUR 29. maí 2021