Fréttablaðið - 29.05.2021, Side 46

Fréttablaðið - 29.05.2021, Side 46
Hornafjörður er blómstrandi 2400 manna samfélag sem byggir á sjávarútvegi og ferðaþjónustu. Öflugt menningar- og félagslíf er í sveitarfélaginu. Fjölbreytt íþróttastarf fyrir börn og ungmenni. Nýheimar þekkingarsetur er mennta- og fræðastofnun þar sem koma saman Rannsóknasetur Háskóla Íslands, Náttúrustofa Suðausturlands, Framhaldsskóli, Hornafjarðarsöfn, Matís og Fræðslunet Suðurlands. Stuðningur við frumkvöðla, t.d. FAB LAB smiðja er í Vöruhúsi.Öll almenn þjónusta er til staðar í sveitarfélaginu og þar má nefna tónskóla, líkamsrækt, knatthús, sundlaug og heilbrigðisstofnun. Samgöngur til Hafnar eru greiðar, beint flug og strætó. Skólastjóri Grunnskóla Hornafjarðar Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir lausa til umsóknar stöðu skólastjóra Grunnskóla Hornafjarðar. Í Grunnskóla Hornafjarðar eru um 250 nemendur í tveimur aðskildum húsum auk frístundar fyrir 1. – 4. bekk. Grunnskóli Horna- fjarðar er framsækinn skóli sem setur nemendur og velferð þeirra í forgang og hefur menntun fyrir alla að leiðarljósi. Unnið er eftir hugmyndarfræði uppeldis til ábyrgðar og skólinn er bæði grænfánaskóli og heilsueflandi skóli. Skólastjóri ber ábyrgð á starfsemi skólans, rekstri og mannauðsmálum. Hann gegnir lykilhlutverki í mótun skólastarfsins og sam- starfsvettvangs skóla og íbúa. Skólastjóri ber ábyrgð á að starfað sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá grunnskóla og stefnumörkun sveitarfélagsins. Leitað er eftir metnaðarfullum leiðtoga með víðtæka reynslu af skólastarfi sem býr yfir áræðni og metnaði til að þróa skólastarfið til enn frekari árangurs. Umsóknarfrestur er til og með 6. júní 2021 Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar ásamt rökstuðningi fyrir hæfi til að sinna starfinu. Umsóknir skulu sendar Ragnhildi Jónsdóttur, fræðslustjóra á netfangið ragnhildur@hornafjordur.is, en hún veitir jafnframt nánari upplýsingar um starfið í síma 470-8000. Um framtíðarstarf er að ræða og eru laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í öll störf óháð kyni. Helstu verkefni • Veita skólanum faglega forystu og leitar leiða til að efla nám og kennslu • Ber ábyrgð á skipulagi náms og kennslu, skólaþróun og gerð skólanámskrár • Hefur umsjón með þróun innra mats • Ber ábyrgð á rekstri skólans, gerð fjárhagsáætlana og stjórn mannauðs • Stuðlar að góðu samstarfi við önnur skólastig innan sveitar- félagsins, foreldra og fræðsluyfirvöld Menntunar- og hæfniskröfur • Leyfisbréf kennara og kennslureynsla skilyrði • Viðbótarmenntun í stjórnun og/eða á sviði uppeldis- og menntunarfræða er skilyrði • Reynsla af stjórnun skólamála og faglegri forystu á sviði kennslu, nýbreytni og þróunarstarfs skilyrði • Þekking á stefnumótun og rekstri innan opinberrar stjórn- sýslu • Þekking á sviði upplýsingatækni • Frumkvæði, sjálfstæði og góðir skipulagshæfileikar • Framúrskarandi lipurð og færni í samskiptum • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is Laust er til umsóknar fullt starf ritstjóra kennsluskrár Háskóla Íslands. Útgáfa kennsluskrár heyrir undir kennslusvið Háskóla Íslands. Ritstjóri er starfsmaður kennslusviðs og vinnur með ritnefnd og fulltrúum fræðasviða og deilda að gerð kennsluskrár, sem gefin er út árlega á vefnum. Vefritstjórn og umsjón með ýmsum upplýsingasíðum kennslusviðs tilheyrir einnig starfinu, svo og ýmis önnur tengd verkefni. Ráðið verður í starfið frá og með 1. september 2021. Umsóknarfrestur er til og með 9. júní 2021 Sækja skal um starfið á starfatorg.is Nánari upplýsingar veitir Róbert H. Haraldsson, robhar@hi.is – 525 4277 Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests. Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands. Helstu verkefni og ábyrgð: • Hlutverk ritstjóra er að stýra vinnu við kennsluskrá Háskóla Íslands í samvinnu við ritnefnd. Í því felst m.a. að skipuleggja innihald kennsluskrár og framsetningu efnis, að leiðbeina starfsfólki sem kemur að gerð kennsluskrár og virkja fólk til samvinnu, að stuðla að samræmi í efnis- tökum, að setja einstökum verkþáttum tímamörk og að stýra breytingum. • Ritstjóri tryggir að vandað sé til verka við gerð og útgáfu kennsluskrár. • Ritstjóri tekur þátt í mati á tillögum að nýjum náms- leiðum og veitir leiðbeiningar og ráðgjöf varðandi undirbúning og stofnun námsleiða. • Ritstjóri hefur umsjón með upplýsingasíðum kennslusviðs sem varða umsóknir, kennslu, nám og próf, á innri og ytri vef. • Í samvinnu við skrifstofu rektors annast ritstjóri yfirferð og uppsetningu á regluskjölum sem send eru til birtingar í Stjórnartíðindum, svo og birtingu reglna á vef háskólans. Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn: • Ferilskrá. • Bréf þar sem áhuga á starfinu er lýst og fjallað um hvað umsækjandi telur sig geta lagt af mörkum til þess. • Staðfest afrit af prófskírteinum. • Upplýsingar um umsagnaraðila. Hæfnikröfur: • Meistarapróf sem nýtist í starfi, viðbótarmenntun er kostur. • Haldbær þekking á skipulagi menntunar á háskóla- stigi er kostur. • Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði. • Góð íslenskukunnátta, bæði í ræðu og riti. • Góð enskukunnátta, reynsla af þýðingum úr og á ensku er kostur. • Reynsla af framsetningu efnis á vefmiðlum. • Reynsla af verkefnastjórnun. • Frumkvæði, sjálfstæði, skipulagshæfni og nákvæmni í starfi. • Hæfni í mannlegum samskiptum. RITSTJÓRI KENNSLUSKRÁR Nánar á www.menntaskolinn.is Kennarastöður í Menntaskólanum á Ásbrú eru lausar til umsóknar Umsóknarfrestur er til 15. júní ÖRYGGISVÖRÐUR SECURITY GUARD Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu öryggisvarðar lausa til umsóknar. Umsóknarfrestur er til og með 2. júní 2021. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu sendiráðsins: https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/ Umsóknir skulu sendar í gegnum Electronic Recruitment Application (ERA) The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking an individual for the position of Security Guard. The closing date for this postion is June 2, 2021. Application instructions and further information can be found on the Embassy’s home page:https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/ Applications must be submitted through Electronic Recruitment Application (ERA)
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.