Fréttablaðið - 29.05.2021, Blaðsíða 74
Halldóra Björg Bergþórs-
dóttir og Pétur Halldórsson
sitja í stjórn hjá Landvernd
en þau standa að afar
áhugaverðum viðburði
í Norræna húsinu þann
3. júní næstkomandi.
johannamaria@torg.is
Á viðburðinum verður fjallað um
hugtakið „vistheimt“, merkingu
þess, áhuga Sameinuðu þjóðanna
á fyrirbærinu og þýðingu þess
fyrir íslenska náttúru sem og
heiminn allan. En til hvers er
eiginlega vistheimt?
„Frá landnámi hefur átt sér stað
gífurlegt rask á náttúru landsins
af hálfu mannsins. Það er aðallega
snemma á síðustu öld, í tengslum
við rask, sandfok og auðnir að
umræðan um uppgræðslu hefur
orðið háværari. Landgræðslustarf
á sér rúmlega 100 ára sögu hér
heima á meðan rask af völdum
mannsins á sér yfir 1.000 ára sögu.
Orðið vistheimt, sem stytting
á endurheimt vistkerfa, verður
svo til hér á landi árið 1987,“ segir
Pétur. „Landgræðsla er ekki alveg
það sama og vistheimt. Land
græðsla er víðara hugtak sem
snýst um að græða landsvæði.
Vistheimt er samofin náttúru
vernd. Þar er verið að endur
heimta raskað vistkerfi sem var til
staðar áður, með notkun tegunda
sem voru hér á landi áður en
maðurinn nam hér land,“ segir
Pétur.
Skotgrafahernaður
„Hingað til hefur helsta vandamál
málefnisins verið skortur á sam
tali. Sú umræða sem hefur átt sér
stað hefur einkennst af skotgrafa
hernaði. Þar má nefna bitbeinið
um lúpínuna eða grenitré á móti
birki. Við hjá Landvernd höfum
átt í samskiptum við 30 samtök og
stofnanir og lagt mikla vinnu í að
Vistheimt – lausn í sjónmáli
lyfta umræðunni á hærra plan til
þess að ná raunverulegum árangri.
Viðburðurinn snýst um það að
koma saman öllum helstu sérfræð
ingum til að ræða hvað er hægt að
gera til þess að stuðla sem best að
vistheimt á Íslandi,“ segir Hall
dóra. „Einnig viljum við upplýsa og
vald efla almenning til að taka þátt
í samtalinu, en það er staðreynd að
fólk er líklegra til þess að taka þátt
og mynda sér skoðun á málefnum
þegar það hefur fengið fræðslu um
hvað málið snýst,“ bætir hún við.
„Það er mikilvægt að fólk sjái og
upplifi hvað vistheimt er og hvað
hún þýðir fyrir okkur. Sérstaklega
til að geta tekið þátt í samtalinu
og þrýsta á stjórnvöld og aðila sem
eru tengdir landnotkun til að leysa
þessi mál. Það er staðreynd að lög
hafa verið samin vegna aukinna
krafa frá samfélaginu og það er það
sem við viljum gera með þessum
viðburði,“ segir Pétur.
Mörg verkefni í gangi
Verulegur hluti Íslands er svæði
sem hefur verið raskað á einhvern
hátt og vistheimt er eitt öflugasta
svarið við stærstu náttúruverndar
áskoruninni á Íslandi. Vistheimt
felur í sér að skilgreina hvaða
vistkerfi var til staðar áður en rask
átti sér stað og fara í markvissar
aðgerðir til að komast nær fyrra
horfi. Vistheimtaraðgerðir eru
mismunandi eftir vistkerfum og
hvernig rask er um að ræða. Þær
spanna allt frá því að græða upp
örfoka land og stuðla að landnámi
náttúrlegs gróðurs, moka ofan í
skurði til að endurheimta vot
lendi, dreifa birkifræjum, endur
heimta staðargróður í vegfláum og
námum eða að endurheimta nátt
úruleg búsvæði í þéttbýli. „Gríðar
mörg flott vistheimtarverkefni
eru í gangi í dag, eins og Votlendis
sjóðurinn og verkefni hjá Land
græðslunni og bændum. Það sem
við sjáum fyrir okkur með þessum
viðburði er að auka samtal og efla
samstarf á milli allra þessara flottu
verkefna,“ segir Halldóra.
„Eitt mikilvægt vistkerfarask
sem hefur átt sér stað á Íslandi er á
strandsvæðum vegna vegagerðar.
Í fjörunni er fjölbreytt lífríki og
gróður sem er mikilvægt fyrir lofts
lag, þorskaseyði og fleira. Fjölmörg
dæmi eru um að þessi vistkerfi
raskist og jafnvel hverfi við að
þvera vegi yfir firði til dæmis, og
verður þetta eitt af þeim málefnum
sem verða mikilvæg á komandi
árum,“ segir Pétur.
Dæmisagan Þórsmörk
Mörg landgræðslusvæði á Íslandi
falla undir vistheimt. Stærsta
verkefnið er Hekluskógar. Þar fer
fram endurheimt birkivistkerfisins
í kringum Heklu, alls nálægt 1% af
Íslandi.
Endurheimt votlendis hófst mun
seinna en endurheimt þurrlendis
og nær oft yfir minni svæði. Dæmi
um slíkt eru Framengjar í Mývatns
sveit. Eitt af nýrri votlendisendur
heimtarsvæðunum og með þeim
stærstu sem ráðist hefur verið í er
á sunnanverðu Snæfellsnesi þar
sem unnið var á um 100 hekturum
í fyrrasumar. Eitt mest lýsandi
dæmið um vistheimt sem hefur
tekist vel er Þórsmörk, þar er um að
ræða endurheimt birkiskóga. Þórs
mörk er dæmisaga um eyðimörk
með skógarleifum sem verður að
vin. „Þórsmörk var ekki alls fyrir
löngu snauð jörð, og orsökin var
maðurinn. Vandamálið var að
svæði voru ekki nógu vel girt til
að hindra að búfénaður kæmist í
viðkvæman gróður á svæðinu. Með
tíð og tíma er Þórsmörkin nú orðin
að einu gróðursælasta vistkerfi
landsins,“ segir Halldóra.
Ferlinu má líkja við beinbrot
Það er ekki læknirinn sem lætur
beinið gróa, heldur skapar hann
umgjörð, spelku, svo að líkaminn
og tíminn geti læknað brotið. Sama
gildir með vistheimt. Við sköpum
ákveðnar aðstæður og gefum
náttúrunni frið og grið til þess að
hjálpa sér sjálf,“ segir Pétur.
Þórsmörkin var eyðimörk en er í dag eitt af ástsælustu útivistarsvæðum
landsins. Vistheimt hefur umbylt svæðinu í paradís. MYND/HREINN ÓSKARSSON
Þórsmörk var ekki
alls fyrir löngu
snauð jörð, og orsökin
var maðurinn.
Halldóra Björg
Halldóra Björk
er mennt-
aður jarð- og
umhverfis-
fræðingur. Pétur
er líffræðingur
með diplóma
í opinberri
stjórnsýslu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Af hverju er vistheimt svona
mikilvæg núna?
„Ástæða þess að við erum að
tala svona mikið um vistheimt
einmitt núna er aukin þekking
og vitneskja um áhrif vistkerfa á
ýmsa þætti er varða loftslag, lífkerfi
og annað. Af öllum þessum stóru
málum sem heimurinn er að kljást
við; loftslagsmál og tap á líffræði
legri fjölbreytni, er vistheimt ein af
lykilaðgerðunum til að leysa þessi
vandamál samstillt. Þannig eru
loftslagsmál og tap á líffræðilegri
fjölbreytni tvær hliðar á sama ten
ingi, sem er röskun á vistkerfum.
Þar er vistheimt lausn í sjónmáli,“
segir Pétur.
„Ef við tökum sem dæmi endur
heimt á votlendi, sem er ein tegund
vistheimtar, þá er verið að endur
heimta líffræðilega fjölbreytni á
svæðinu með því að veita tegund
um sem lifa í votlendi lífvænlegt
svæði. Stór hluti af kolefnislosun á
Íslandi er vegna losunar frá rösk
uðum vistkerfum. Með vistheimt
gefum við þeim tækifæri til að ná
aftur upp hæfni sinni til að binda
kolefni. Vistheimt stuðlar þannig að
vernd og endurheimt líffræðilegrar
fjölbreytni, dregur úr losun CO2 frá
röskuðum vistkerfum og stuðlar að
bindingu jarðvegs.
Ástandið hefur aldrei verið verra
og heilbrigð vistkerfi eru grund
völlur lífsgæða okkar. Því er nauð
synlegt að taka á þessu vandamáli
strax í gær, eða að minnsta kosti á
þessum áratugi,“ segir Halldóra.
Viðburðurinn er í Norræna hús
inu fimmtudaginn 3. júní og húsið
opnar klukkan 16.00. Allir eru vel
komnir og að auki er aðgengi fyrir
hjólastóla. Kynningarnar standa
yfir í um hálftíma og eftir það verða
spurningar úr sal. Síðan verða nátt
úrufræðingar á staðnum og leiða
fólk um Vatnsmýrina, en hún er
glimrandi dæmi um vistheimtar
verkefni sem er enn í gangi í dag. n
LÍTTU VIÐ Á BELLADONNA.IS
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
YEST/A sumarjakki
Stærðir 38-56
Verð kr. 18.980
ZE-ZE sumarjakki
Fæst líka í ólífugrænu
Stærðir 40-50
Verð kr. 12.990
NO SECRET leggings
Fást í fleiri litum
Stærðir 42-56
Verð kr. 5.980
Opnum fljótlega á
Laugavegi 20
Hárlengingar og fléttur
Hægt er að bóka tíma
í síma 865 0078
6 kynningarblað A L LT 29. maí 2021 LAUGARDAGUR