Fréttablaðið - 29.05.2021, Side 74

Fréttablaðið - 29.05.2021, Side 74
Halldóra Björg Bergþórs- dóttir og Pétur Halldórsson sitja í stjórn hjá Landvernd en þau standa að afar áhugaverðum viðburði í Norræna húsinu þann 3. júní næstkomandi. johannamaria@torg.is Á viðburðinum verður fjallað um hugtakið „vistheimt“, merkingu þess, áhuga Sameinuðu þjóðanna á fyrirbærinu og þýðingu þess fyrir íslenska náttúru sem og heiminn allan. En til hvers er eiginlega vistheimt? „Frá landnámi hefur átt sér stað gífurlegt rask á náttúru landsins af hálfu mannsins. Það er aðallega snemma á síðustu öld, í tengslum við rask, sandfok og auðnir að umræðan um uppgræðslu hefur orðið háværari. Landgræðslustarf á sér rúmlega 100 ára sögu hér heima á meðan rask af völdum mannsins á sér yfir 1.000 ára sögu. Orðið vistheimt, sem stytting á endurheimt vistkerfa, verður svo til hér á landi árið 1987,“ segir Pétur. „Landgræðsla er ekki alveg það sama og vistheimt. Land­ græðsla er víðara hugtak sem snýst um að græða landsvæði. Vistheimt er samofin náttúru­ vernd. Þar er verið að endur­ heimta raskað vistkerfi sem var til staðar áður, með notkun tegunda sem voru hér á landi áður en maðurinn nam hér land,“ segir Pétur. Skotgrafahernaður „Hingað til hefur helsta vandamál málefnisins verið skortur á sam­ tali. Sú umræða sem hefur átt sér stað hefur einkennst af skotgrafa­ hernaði. Þar má nefna bitbeinið um lúpínuna eða grenitré á móti birki. Við hjá Landvernd höfum átt í samskiptum við 30 samtök og stofnanir og lagt mikla vinnu í að Vistheimt – lausn í sjónmáli lyfta umræðunni á hærra plan til þess að ná raunverulegum árangri. Viðburðurinn snýst um það að koma saman öllum helstu sérfræð­ ingum til að ræða hvað er hægt að gera til þess að stuðla sem best að vistheimt á Íslandi,“ segir Hall­ dóra. „Einnig viljum við upplýsa og vald efla almenning til að taka þátt í samtalinu, en það er staðreynd að fólk er líklegra til þess að taka þátt og mynda sér skoðun á málefnum þegar það hefur fengið fræðslu um hvað málið snýst,“ bætir hún við. „Það er mikilvægt að fólk sjái og upplifi hvað vistheimt er og hvað hún þýðir fyrir okkur. Sérstaklega til að geta tekið þátt í samtalinu og þrýsta á stjórnvöld og aðila sem eru tengdir landnotkun til að leysa þessi mál. Það er staðreynd að lög hafa verið samin vegna aukinna krafa frá samfélaginu og það er það sem við viljum gera með þessum viðburði,“ segir Pétur. Mörg verkefni í gangi Verulegur hluti Íslands er svæði sem hefur verið raskað á einhvern hátt og vistheimt er eitt öflugasta svarið við stærstu náttúruverndar­ áskoruninni á Íslandi. Vistheimt felur í sér að skilgreina hvaða vistkerfi var til staðar áður en rask átti sér stað og fara í markvissar aðgerðir til að komast nær fyrra horfi. Vistheimtaraðgerðir eru mismunandi eftir vistkerfum og hvernig rask er um að ræða. Þær spanna allt frá því að græða upp örfoka land og stuðla að landnámi náttúrlegs gróðurs, moka ofan í skurði til að endurheimta vot­ lendi, dreifa birkifræjum, endur­ heimta staðargróður í vegfláum og námum eða að endurheimta nátt­ úruleg búsvæði í þéttbýli. „Gríðar­ mörg flott vistheimtarverkefni eru í gangi í dag, eins og Votlendis­ sjóðurinn og verkefni hjá Land­ græðslunni og bændum. Það sem við sjáum fyrir okkur með þessum viðburði er að auka samtal og efla samstarf á milli allra þessara flottu verkefna,“ segir Halldóra. „Eitt mikilvægt vistkerfarask sem hefur átt sér stað á Íslandi er á strandsvæðum vegna vegagerðar. Í fjörunni er fjölbreytt lífríki og gróður sem er mikilvægt fyrir lofts­ lag, þorskaseyði og fleira. Fjölmörg dæmi eru um að þessi vistkerfi raskist og jafnvel hverfi við að þvera vegi yfir firði til dæmis, og verður þetta eitt af þeim málefnum sem verða mikilvæg á komandi árum,“ segir Pétur. Dæmisagan Þórsmörk Mörg landgræðslusvæði á Íslandi falla undir vistheimt. Stærsta verkefnið er Hekluskógar. Þar fer fram endurheimt birkivistkerfisins í kringum Heklu, alls nálægt 1% af Íslandi. Endurheimt votlendis hófst mun seinna en endurheimt þurrlendis og nær oft yfir minni svæði. Dæmi um slíkt eru Framengjar í Mývatns­ sveit. Eitt af nýrri votlendisendur­ heimtarsvæðunum og með þeim stærstu sem ráðist hefur verið í er á sunnanverðu Snæfellsnesi þar sem unnið var á um 100 hekturum í fyrrasumar. Eitt mest lýsandi dæmið um vistheimt sem hefur tekist vel er Þórsmörk, þar er um að ræða endurheimt birkiskóga. Þórs­ mörk er dæmisaga um eyðimörk með skógarleifum sem verður að vin. „Þórsmörk var ekki alls fyrir löngu snauð jörð, og orsökin var maðurinn. Vandamálið var að svæði voru ekki nógu vel girt til að hindra að búfénaður kæmist í viðkvæman gróður á svæðinu. Með tíð og tíma er Þórsmörkin nú orðin að einu gróðursælasta vistkerfi landsins,“ segir Halldóra. Ferlinu má líkja við beinbrot Það er ekki læknirinn sem lætur beinið gróa, heldur skapar hann umgjörð, spelku, svo að líkaminn og tíminn geti læknað brotið. Sama gildir með vistheimt. Við sköpum ákveðnar aðstæður og gefum náttúrunni frið og grið til þess að hjálpa sér sjálf,“ segir Pétur. Þórsmörkin var eyðimörk en er í dag eitt af ástsælustu útivistarsvæðum landsins. Vistheimt hefur umbylt svæðinu í paradís. MYND/HREINN ÓSKARSSON Þórsmörk var ekki alls fyrir löngu snauð jörð, og orsökin var maðurinn. Halldóra Björg Halldóra Björk er mennt- aður jarð- og umhverfis- fræðingur. Pétur er líffræðingur með diplóma í opinberri stjórnsýslu. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Af hverju er vistheimt svona mikilvæg núna? „Ástæða þess að við erum að tala svona mikið um vistheimt einmitt núna er aukin þekking og vitneskja um áhrif vistkerfa á ýmsa þætti er varða loftslag, lífkerfi og annað. Af öllum þessum stóru málum sem heimurinn er að kljást við; loftslagsmál og tap á líffræði­ legri fjölbreytni, er vistheimt ein af lykilaðgerðunum til að leysa þessi vandamál samstillt. Þannig eru loftslagsmál og tap á líffræðilegri fjölbreytni tvær hliðar á sama ten­ ingi, sem er röskun á vistkerfum. Þar er vistheimt lausn í sjónmáli,“ segir Pétur. „Ef við tökum sem dæmi endur­ heimt á votlendi, sem er ein tegund vistheimtar, þá er verið að endur­ heimta líffræðilega fjölbreytni á svæðinu með því að veita tegund­ um sem lifa í votlendi lífvænlegt svæði. Stór hluti af kolefnislosun á Íslandi er vegna losunar frá rösk­ uðum vistkerfum. Með vistheimt gefum við þeim tækifæri til að ná aftur upp hæfni sinni til að binda kolefni. Vistheimt stuðlar þannig að vernd og endurheimt líffræðilegrar fjölbreytni, dregur úr losun CO2 frá röskuðum vistkerfum og stuðlar að bindingu jarðvegs. Ástandið hefur aldrei verið verra og heilbrigð vistkerfi eru grund­ völlur lífsgæða okkar. Því er nauð­ synlegt að taka á þessu vandamáli strax í gær, eða að minnsta kosti á þessum áratugi,“ segir Halldóra. Viðburðurinn er í Norræna hús­ inu fimmtudaginn 3. júní og húsið opnar klukkan 16.00. Allir eru vel­ komnir og að auki er aðgengi fyrir hjólastóla. Kynningarnar standa yfir í um hálftíma og eftir það verða spurningar úr sal. Síðan verða nátt­ úrufræðingar á staðnum og leiða fólk um Vatnsmýrina, en hún er glimrandi dæmi um vistheimtar­ verkefni sem er enn í gangi í dag. n LÍTTU VIÐ Á BELLADONNA.IS Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna YEST/A sumarjakki Stærðir 38-56 Verð kr. 18.980 ZE-ZE sumarjakki Fæst líka í ólífugrænu Stærðir 40-50 Verð kr. 12.990 NO SECRET leggings Fást í fleiri litum Stærðir 42-56 Verð kr. 5.980 Opnum fljótlega á Laugavegi 20 Hárlengingar og fléttur Hægt er að bóka tíma í síma 865 0078 6 kynningarblað A L LT 29. maí 2021 LAUGARDAGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.