Fréttablaðið - 29.05.2021, Side 26

Fréttablaðið - 29.05.2021, Side 26
Karolis Kosys heldur ljós- myndasýningu á biðstofu Strætó í Mjóddinni. Hver ljósmynd segir sögu frá ferðalagi hans um 23 lönd yfir 18 mánaða tímabil. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Veðrið stöðugt að breytast: Kona hjólar á sólríkum degi, í fjarska sjást ógnarský. MYNDIR/AÐSENDAR Lestarstjóri gaf vagnstjóranum Karolis þumalinn þegar hann tók fram úr lestinni eftir mikla eyðimerkurför. Börn í litlum þorpum víða um Afríku vildu kíkja á hjólið Naglis, sem var talsvert kröftugra en þau voru vön að sjá. Karolis Kosys, vagnstjóri hjá Strætó, varð fyrir líkamsárás í Kenía og var yfirheyrður í Ísrael á leið sinni frá Litáen til Suður-Afríku á mótorhjóli nefndu eftir dreka. Hann sýnir myndir frá Ódysseifs- för sinni í biðstofu Strætó í Mjóddinni. Karolis Kosys, 35 ára litáískur vagnstjóri hjá Strætó, ólst upp í sjávar-þorpinu Nida á gullfal-legri strandlengju á milli Eystrasalts og Kúróníu-lónsins, sex kílómetrum frá landamærum Rúss- lands. Á þessum vinsæla sumar- dvalarstað má finna hvítar strendur, krúttleg timburhús og hinn dular- fulla „dansandi skóg“ þar sem furu- tré vaxa í hringi og spírala. Ferðasaga Karolis hefst í þessu sjávarþorpi en þaðan lagði hann af stað í átján mánaða leiðangur um 23 lönd, 37.894 kílómetra leið til Höfða- borgar til að hitta Litvaka, stærsta samfélag Litáa af gyðingaættum sem fluttust til Suður-Afríku í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar. Farar- tæki Karolis var mótorhjól að nafni Naglis, nefnt eftir dreka í kúrónísk- um þjóðsögum sem gerði tilraun til að eyðileggja téða strandlengju. Við erum stödd á biðstofu Strætó í Mjóddinni þar sem má finna ljós- myndir úr Ódysseifsför Karolis. Á einni myndinni á sýningunni má sjá ferðalanginn hvíla sig í litlu herbergi á landamærum Súdans og Eþíópíu en hann lýsir í samtali við blaða- mann hvernig landamæraeftirlitið slaknaði eftir því sem hann ferðaðist sunnar um Afríkuálfuna. Sex klukkutíma yfirheyrsla Súdan er uppáhaldslandið hans; íbúar landsins sýndu honum mikla gestrisni eftir mikið álag á landa- mærum Ísraels, Egyptalands og Jórdaníu. Ferðin hafði gengið eins og í sögu frá Litáen til Búlgaríu en þegar komið var til Tyrklands fóru hlutirnir að flækjast enda gat hann ekki ekið í gegnum hið stríðshrjáða Sýrland. Fékk hann þá far með f lutningaskipi sem var að f lytja þrettán trukka til Ísraels með varn- ing handa Sýrlendingum. „Skipið var víst ekki á skrá. Þegar Ísraelarnir kíktu á ferðaskjölin mín og sáu að ég væri á leið til Súdan var ég færður inn í yfirheyrsluher- bergi.“ Var hann þá yfirheyrður í sex klukkustundir. „Þetta var bara heilaþvottur og ég eiginlega missti vitið inni í þessu yfirheyrsluher- bergi. Landamæraeftirlitið vissi ekki alveg hvað það ætti að gera við mig og hermennirnir sem yfir- heyrðu mig voru ógnvekjandi.“ Karolis náði loks sambandi við sendiráð sitt, sem hringdi í utan- ríkisþjónustu Litáens sem kom honum út úr landinu. Þaðan lá leið Karolis til Egyptalands en honum til skelfingar var hann sendur aftur til Ísraels vegna vandamála með pappíra hans. „Ég var ráðalaus og vildi ekki enda aftur í yfirheyrslu- herberginu svo ég ákvað að smygla mér inn í Jórdaníu.“ Þráði að komast burt Þar heyrði hann frá öðrum ferða- lang að hann gæti tekið ferju frá Aqaba, Jórdaníu, að Nuweiba á Sínaískaga. „Ég þráði ekkert heitar en komast frá þessum löndum. Þeir voru stöðugt að bæta í einhver ferðaskjöl, saka mig um skjalafölsun og neyða mig til að borga fyrir hvert einasta blað.“ Mesta flækjan var að komast inn í Afríku að sögn Karolis. „Ég ferð- aðist í gegnum eyðimerkur, varð fyrir líkamsárás, lenti í bílslysi og ók yfir fjallvegi í úrhellisrigningu, en að fást við skriffinnskubrjál- æðið í Egyptalandi og Ísrael var það erfiðasta við þessa ferð.“ Loks þegar hann komst að landa- Afríkureisan erfiðasta þolpróf lífs míns Ingunn Lára Kristjánsdóttir ingunnlara @frettabladid.is mærum Súdans var hann orðinn örmagna. Þar reyndu landamæra- verðir að rukka Karolis fyrir hitt og þetta, að því er virtist af handahófi, og á einum tímapunkti krafðist Kar- olis þess að fá að sjá nótu fyrir öllu. „Þá ætluðu þeir að reyna að rukka mig fyrir afrit af nótunni,“ segir hann hlæjandi. En aftur kom sendi- ráðið til bjargar og fékk Karolis að ferðast óáreittur. „Þá opnuðust allar dyr. Ég man að ég skalf af reiði og vanmáttarkennd en ég var tilbúinn að hefja ferðina í gegnum Afríku.“ En brautin fram undan var því miður þyrnum stráð. Á ferð yfir landamæri Súdans og Eþíópíu, í ljósaskiptum dags og nætur, ók Karolis hjólinu ofan í djúpan skurð. „Ég var orðinn virkilega hræddur þegar myrkrið fór að skella á. Þarna var mikil hætta á ferðinni; ég heyrði í hýenum og varð hræddur um að verða þeim að bráð. Svo var rigning og flóð í spákortunum og mér leist ekkert á ógnarskýin sem færðust yfir himininn. Ég notaði alla mína krafta til að losa hjólið því ég ætlaði ekki að taka sénsinn á að tjalda eða ferðast að nóttu til. Maður gerir það ekki í Afríku, það getur bókstaflega verið upp á líf og dauða.“ Tæpum klukkutíma síðar náði Karolis að losa Naglis úr skurðinum og komst leiðar sinnar, sem lá um stóru vötnin við Sigdalinn mikla. Barinn með kúbeini Þegar Karolis var kominn hálfa leið í gegnum Afríkuálfu þurfti hann að binda enda á ferðina, að minnsta kosti í nokkra mánuði, eftir að hann var rændur í Mombasa. „Kærastan mín kom að heim- sækja mig í Kenía. Ég beið á hjólinu fyrir utan íbúðina hennar þegar nokkrir menn lögðu bílnum sínum fyrir aftan mig. Ég klæddi mig úr jakkanum og ætlaði að taka af mér hjálminn en einhver lítil rödd aftast í höfðinu á mér sagði mér að halda hjálminum og guði sé lof fyrir það.“ Þá læddist einn mannanna úr bílnum upp að honum og sló hann með kúbeini í höfuðið og öxlina. „Öxlin á mér var alveg ónýt og það tók mig sex mánuði að jafna mig eftir þessa árás.“ Mennirnir rændu veskinu hans og jakka ásamt öllum ferðaskjölum hans og vegabréfi. Eftir árásina ákvað hann að fara heim til Litáens að jafna sig og mánuði síðar sneri hann aftur til Kenía til að halda för sinni áfram til Suður-Afríku. Hársbreidd frá dauða á fjallvegi Við færum okkur að myndum við hliðina á sjálfsalanum í biðstöð Strætó sem sýna fjögur mismun- andi veðurskilyrði. Blaðamaður spyr hvort þetta séu myndir af árs- tíðunum í Afríku og Karolis svarar að þetta sé allt frá einum degi á fjall- vegi í Búrúndí í Mið-Afríku. „Þetta var versti veðurdagurinn í ferðinni. Ég var að aka í gegnum mikið fjalllendi í aftakaveðri; hagl- él, úrhellisrigning, f lóð og þrumur og eldingar. Í lok dagsins fann ég gististað og sofnaði strax og þegar ég vaknaði daginn eftir helltist eitt- hvert flóð af tilfinningum yfir mig. Á þessum fjallvegi var ég hársbreidd frá dauðanum og hafði ekki áttað mig á hættunni fyrr en allt datt í dúnalogn.“ Ferðin tók átján mánuði en í raun varði Karolis fimm árum af lífi sínu í að undirbúa hana. Fjölskyldan spurði hann hvers vegna í ósköp- unum hann ákvað að leggja af stað í þessa hættuför og Karolis hefur í raun ekki svar við því. „En eitt veit ég með vissu að þegar ég lagði af stað var ég ótengdur sjálfum mér og þekkti ekki mörkin mín. Á leiðinni fann ég mikla teng- ingu við mótorhjólið, þennan ferða- félaga sem hélt mér á lífi. Fólk áttar sig kannski ekki á því hvað maður er berskjaldaður á svona hjóli. Ef það bilaði þá þurfti ég að laga það, hvort sem ég var staddur í eyðimörk eða drullupolli og ég gat ekkert hoppað upp í rútu til að stytta mér leið. Á sama tíma þurfti ég að glíma einn og óstuddur við náttúruöflin. Þetta reyndist vera erfiðasta þolpróf lífs míns.“ Þegar Karolis komst loks á leiðar- enda fann hann fyrir gríðarlegum létti. „Þetta voru endalok á einhverju óskiljanlegu. Ég er enn að vinna úr þessari upplifun og þessi ljós- myndasýning er leið til að skilja betur hvað það var sem ég gekk í gegnum. Mjóddin er svolítið hrár staður sem mér fannst passa vel fyrir mig og ég hvet fólk til að staldra við og skoða myndirnar eða jafnvel halda sínar eigin sýningar. Hér er margt hægt að gera, eins og að kíkja í Afríkureisu meðan maður bíður eftir Strætó.“ n Ég er enn að vinna úr þessari upplifun og þessi ljósmyndasýning er leið til að skilja betur hvað það var sem ég gekk í gegnum. Karolis Kosys. 26 Helgin 29. maí 2021 LAUGARDAGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.