Fréttablaðið - 29.05.2021, Blaðsíða 26
Karolis Kosys
heldur ljós-
myndasýningu á
biðstofu Strætó
í Mjóddinni.
Hver ljósmynd
segir sögu frá
ferðalagi hans
um 23 lönd
yfir 18 mánaða
tímabil.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Veðrið stöðugt að breytast: Kona hjólar á sólríkum degi, í fjarska sjást ógnarský. MYNDIR/AÐSENDAR
Lestarstjóri gaf vagnstjóranum Karolis þumalinn þegar
hann tók fram úr lestinni eftir mikla eyðimerkurför.
Börn í litlum þorpum víða um Afríku vildu kíkja á hjólið
Naglis, sem var talsvert kröftugra en þau voru vön að sjá.
Karolis Kosys, vagnstjóri hjá
Strætó, varð fyrir líkamsárás
í Kenía og var yfirheyrður í
Ísrael á leið sinni frá Litáen
til Suður-Afríku á mótorhjóli
nefndu eftir dreka. Hann
sýnir myndir frá Ódysseifs-
för sinni í biðstofu Strætó í
Mjóddinni.
Karolis Kosys, 35 ára litáískur vagnstjóri hjá Strætó, ólst upp í sjávar-þorpinu Nida á gullfal-legri strandlengju á milli
Eystrasalts og Kúróníu-lónsins, sex
kílómetrum frá landamærum Rúss-
lands. Á þessum vinsæla sumar-
dvalarstað má finna hvítar strendur,
krúttleg timburhús og hinn dular-
fulla „dansandi skóg“ þar sem furu-
tré vaxa í hringi og spírala.
Ferðasaga Karolis hefst í þessu
sjávarþorpi en þaðan lagði hann af
stað í átján mánaða leiðangur um 23
lönd, 37.894 kílómetra leið til Höfða-
borgar til að hitta Litvaka, stærsta
samfélag Litáa af gyðingaættum
sem fluttust til Suður-Afríku í kjölfar
seinni heimsstyrjaldarinnar. Farar-
tæki Karolis var mótorhjól að nafni
Naglis, nefnt eftir dreka í kúrónísk-
um þjóðsögum sem gerði tilraun til
að eyðileggja téða strandlengju.
Við erum stödd á biðstofu Strætó
í Mjóddinni þar sem má finna ljós-
myndir úr Ódysseifsför Karolis. Á
einni myndinni á sýningunni má sjá
ferðalanginn hvíla sig í litlu herbergi
á landamærum Súdans og Eþíópíu
en hann lýsir í samtali við blaða-
mann hvernig landamæraeftirlitið
slaknaði eftir því sem hann ferðaðist
sunnar um Afríkuálfuna.
Sex klukkutíma yfirheyrsla
Súdan er uppáhaldslandið hans;
íbúar landsins sýndu honum mikla
gestrisni eftir mikið álag á landa-
mærum Ísraels, Egyptalands og
Jórdaníu. Ferðin hafði gengið eins
og í sögu frá Litáen til Búlgaríu en
þegar komið var til Tyrklands fóru
hlutirnir að flækjast enda gat hann
ekki ekið í gegnum hið stríðshrjáða
Sýrland. Fékk hann þá far með
f lutningaskipi sem var að f lytja
þrettán trukka til Ísraels með varn-
ing handa Sýrlendingum.
„Skipið var víst ekki á skrá. Þegar
Ísraelarnir kíktu á ferðaskjölin mín
og sáu að ég væri á leið til Súdan
var ég færður inn í yfirheyrsluher-
bergi.“ Var hann þá yfirheyrður í
sex klukkustundir. „Þetta var bara
heilaþvottur og ég eiginlega missti
vitið inni í þessu yfirheyrsluher-
bergi. Landamæraeftirlitið vissi
ekki alveg hvað það ætti að gera
við mig og hermennirnir sem yfir-
heyrðu mig voru ógnvekjandi.“
Karolis náði loks sambandi við
sendiráð sitt, sem hringdi í utan-
ríkisþjónustu Litáens sem kom
honum út úr landinu. Þaðan lá leið
Karolis til Egyptalands en honum
til skelfingar var hann sendur aftur
til Ísraels vegna vandamála með
pappíra hans. „Ég var ráðalaus og
vildi ekki enda aftur í yfirheyrslu-
herberginu svo ég ákvað að smygla
mér inn í Jórdaníu.“
Þráði að komast burt
Þar heyrði hann frá öðrum ferða-
lang að hann gæti tekið ferju frá
Aqaba, Jórdaníu, að Nuweiba á
Sínaískaga. „Ég þráði ekkert heitar
en komast frá þessum löndum.
Þeir voru stöðugt að bæta í einhver
ferðaskjöl, saka mig um skjalafölsun
og neyða mig til að borga fyrir hvert
einasta blað.“
Mesta flækjan var að komast inn
í Afríku að sögn Karolis. „Ég ferð-
aðist í gegnum eyðimerkur, varð
fyrir líkamsárás, lenti í bílslysi og
ók yfir fjallvegi í úrhellisrigningu,
en að fást við skriffinnskubrjál-
æðið í Egyptalandi og Ísrael var það
erfiðasta við þessa ferð.“
Loks þegar hann komst að landa-
Afríkureisan erfiðasta þolpróf lífs míns
Ingunn Lára
Kristjánsdóttir
ingunnlara
@frettabladid.is
mærum Súdans var hann orðinn
örmagna. Þar reyndu landamæra-
verðir að rukka Karolis fyrir hitt og
þetta, að því er virtist af handahófi,
og á einum tímapunkti krafðist Kar-
olis þess að fá að sjá nótu fyrir öllu.
„Þá ætluðu þeir að reyna að rukka
mig fyrir afrit af nótunni,“ segir
hann hlæjandi. En aftur kom sendi-
ráðið til bjargar og fékk Karolis að
ferðast óáreittur. „Þá opnuðust allar
dyr. Ég man að ég skalf af reiði og
vanmáttarkennd en ég var tilbúinn
að hefja ferðina í gegnum Afríku.“
En brautin fram undan var því
miður þyrnum stráð. Á ferð yfir
landamæri Súdans og Eþíópíu, í
ljósaskiptum dags og nætur, ók
Karolis hjólinu ofan í djúpan skurð.
„Ég var orðinn virkilega hræddur
þegar myrkrið fór að skella á. Þarna
var mikil hætta á ferðinni; ég heyrði
í hýenum og varð hræddur um að
verða þeim að bráð. Svo var rigning
og flóð í spákortunum og mér leist
ekkert á ógnarskýin sem færðust
yfir himininn. Ég notaði alla mína
krafta til að losa hjólið því ég ætlaði
ekki að taka sénsinn á að tjalda eða
ferðast að nóttu til. Maður gerir það
ekki í Afríku, það getur bókstaflega
verið upp á líf og dauða.“
Tæpum klukkutíma síðar náði
Karolis að losa Naglis úr skurðinum
og komst leiðar sinnar, sem lá um
stóru vötnin við Sigdalinn mikla.
Barinn með kúbeini
Þegar Karolis var kominn hálfa leið
í gegnum Afríkuálfu þurfti hann að
binda enda á ferðina, að minnsta
kosti í nokkra mánuði, eftir að hann
var rændur í Mombasa.
„Kærastan mín kom að heim-
sækja mig í Kenía. Ég beið á hjólinu
fyrir utan íbúðina hennar þegar
nokkrir menn lögðu bílnum sínum
fyrir aftan mig. Ég klæddi mig úr
jakkanum og ætlaði að taka af mér
hjálminn en einhver lítil rödd aftast
í höfðinu á mér sagði mér að halda
hjálminum og guði sé lof fyrir það.“
Þá læddist einn mannanna úr
bílnum upp að honum og sló hann
með kúbeini í höfuðið og öxlina.
„Öxlin á mér var alveg ónýt og það
tók mig sex mánuði að jafna mig
eftir þessa árás.“
Mennirnir rændu veskinu hans
og jakka ásamt öllum ferðaskjölum
hans og vegabréfi. Eftir árásina
ákvað hann að fara heim til Litáens
að jafna sig og mánuði síðar sneri
hann aftur til Kenía til að halda för
sinni áfram til Suður-Afríku.
Hársbreidd frá dauða á fjallvegi
Við færum okkur að myndum við
hliðina á sjálfsalanum í biðstöð
Strætó sem sýna fjögur mismun-
andi veðurskilyrði. Blaðamaður
spyr hvort þetta séu myndir af árs-
tíðunum í Afríku og Karolis svarar
að þetta sé allt frá einum degi á fjall-
vegi í Búrúndí í Mið-Afríku.
„Þetta var versti veðurdagurinn
í ferðinni. Ég var að aka í gegnum
mikið fjalllendi í aftakaveðri; hagl-
él, úrhellisrigning, f lóð og þrumur
og eldingar. Í lok dagsins fann ég
gististað og sofnaði strax og þegar
ég vaknaði daginn eftir helltist eitt-
hvert flóð af tilfinningum yfir mig.
Á þessum fjallvegi var ég hársbreidd
frá dauðanum og hafði ekki áttað
mig á hættunni fyrr en allt datt í
dúnalogn.“
Ferðin tók átján mánuði en í raun
varði Karolis fimm árum af lífi sínu
í að undirbúa hana. Fjölskyldan
spurði hann hvers vegna í ósköp-
unum hann ákvað að leggja af stað
í þessa hættuför og Karolis hefur í
raun ekki svar við því.
„En eitt veit ég með vissu að þegar
ég lagði af stað var ég ótengdur
sjálfum mér og þekkti ekki mörkin
mín. Á leiðinni fann ég mikla teng-
ingu við mótorhjólið, þennan ferða-
félaga sem hélt mér á lífi. Fólk áttar
sig kannski ekki á því hvað maður er
berskjaldaður á svona hjóli. Ef það
bilaði þá þurfti ég að laga það, hvort
sem ég var staddur í eyðimörk eða
drullupolli og ég gat ekkert hoppað
upp í rútu til að stytta mér leið. Á
sama tíma þurfti ég að glíma einn
og óstuddur við náttúruöflin. Þetta
reyndist vera erfiðasta þolpróf lífs
míns.“
Þegar Karolis komst loks á leiðar-
enda fann hann fyrir gríðarlegum
létti.
„Þetta voru endalok á einhverju
óskiljanlegu. Ég er enn að vinna
úr þessari upplifun og þessi ljós-
myndasýning er leið til að skilja
betur hvað það var sem ég gekk
í gegnum. Mjóddin er svolítið
hrár staður sem mér fannst passa
vel fyrir mig og ég hvet fólk til að
staldra við og skoða myndirnar eða
jafnvel halda sínar eigin sýningar.
Hér er margt hægt að gera, eins og
að kíkja í Afríkureisu meðan maður
bíður eftir Strætó.“ n
Ég er enn að vinna úr
þessari upplifun og
þessi ljósmyndasýning
er leið til að skilja
betur hvað það var
sem ég gekk í gegnum.
Karolis Kosys.
26 Helgin 29. maí 2021 LAUGARDAGUR