Fréttablaðið - 29.05.2021, Side 8
Við þurfum að passa
upp á að tíðavörur
verði ókeypis í öllum
grunnskólum og öllum
framhaldsskólum.
Andrés Ingi Jóns
son, þingmaður
Pírata.
það byrjar at með fjórum fræjum
ENN HOLLARI OLÍA
OMEGA 3 & 6
+ D - & E-VÍTAMÍN
Nokkur sveitarfélög hafa
ákveðið að hafa tíðavörur
ókeypis í grunnskólum og
félagsmiðstöðvum. Þing-
maður Pírata óttast að mis-
ræmi verði milli sveitarfélaga.
Ráðherra hefur rætt við skóla-
meistara og mun ræða við
sveitarfélög um málið.
kristinnhaukur@frettabladid.is
FÉLAGSMÁL Ísafjarðarbær og Skaga-
fjörður hafa bæst í hóp þeirra sveit-
arfélaga sem hyggjast bjóða upp á
ókeypis tíðavörur í öllum grunn-
skólum og félagsmiðstöðvum í
haust. Það er, dömubindi og túr-
tappa. Í mars ákvað borgarstjórn
Reykjavíkur að bjóða upp á slíkt hið
sama. Í fleiri sveitarfélögum, eins og
Hafnarfirði og Múlaþingi, er það til
skoðunar að gera tíðavörur gjald-
frjálsar í skólum.
Umræða um kostnað við tíðavör-
ur í samhengi við jafnrétti kynjanna
hefur verið hávær undanfarin ár.
Meðal annars var virðisaukaskattur
á tíðavörur og getnaðarvarnir, hinn
svokallaði bleiki skattur, lækkaður
úr 24 prósentum í 11 árið 2019.
Andrés Ingi Jónsson, þingmaður
Pírata en þá óháður, lagði fram
breytingartillögu við fjárlög í des-
ember þar sem 280 milljónir króna
yrðu eyrnamerktar ókeypis tíða-
vörum fyrir nemendur og tekjulága.
Tillagan var felld með 27 atkvæðum
stjórnarflokkanna gegn 26.
Andrés segir það að sveitarfélög-
in séu að taka við sér eitt af öðru
jákvæða þróun. Hætta sé þó á mis-
ræmi. „Við þurfum að passa upp á
að tíðavörur verði ókeypis í öllum
grunnskólum og öllum framhalds-
skólum. Allir verða að sitja við sama
borð,“ segir hann.
Hvað framhaldsskólana varðar
stendur nú yfir könnun á því innan
menntamálaráðuneytisins hvaða
skólar bjóði upp á ókeypis tíða-
vörur. Lilja Alfreðsdóttir mennta-
og menningarmálaráðherra lýsti
því yfir í pontu á Alþingi að sann-
gjarnt væri að tíðavörur væru gjald-
frjálsar í skólakerfinu, þó hún hafi
kosið gegn tillögu Andrésar eins og
aðrir ráðherrar.
„Unnið er að því að tíðavörur
verði aðgengilegar og gjaldfrjálsar
fyrir nemendur í öllum framhalds-
skólum,“ segir í svari menntamála-
ráðuneytisins við fyrirspurn Frétta-
blaðsins. Kemur fram að ráðherra
hafi rætt um þetta málefni á sam-
ráðsfundum með skólameisturum
og sent þeim bréf með hvatningu í
marsmánuði. Hafi erindið fengið
góð viðbrögð frá þeim.
„Rekstur grunnskóla er á forræði
sveitarfélaga og er ráðgert að mál
er varða aðgengi að tíðavörum í
grunnskólum verði tekið upp á sam-
ráðsfundum ráðuneytisins og full-
trúa sveitarfélaganna á næstunni,“
segir í svarinu.
Þó að skriður virðist kominn á
málið í skólakerfinu hefur það sama
ekki gerst hvað varðar lágtekjufólk.
Samkvæmt tillögu Andrésar hefðu
tíðavörur orðið gjaldfrjálsar fyrir
þann hóp, annaðhvort á heilsu-
gæslustöðvum eða hjá félagsþjón-
ustu sveitarfélaganna. „Það hefur
enn ekki verið unnið neitt gegn því
sem hefur verið kallað tíða fátækt.
Sumt fólk hefur einfaldlega ekki efni
á þessum nauðsynjavörum,“ segir
Andrés. „Næsta skref er að vekja fólk
til umhugsunar um þetta.“ n
Fleiri sveitarfélög hyggjast bjóða upp
á ókeypis tíðavörur í grunnskólum
Umræða um kostnað við tíðavörur í samhengi við jafnrétti hefur verið hávær undanfarin ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLi
arib@frettabladid.is
REYKJAVÍK Úttekt verkfræðistof-
unnar Eflu á Fossvogsskóla var gerð
að eindreginni kröfu foreldra. Yfir-
lýsingar Reykjavíkurborgar og mat
Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur í
tengslum við húsnæði Fossvogs-
skóla voru byggðar á upplýsingum
sem lágu fyrir á þeim tíma. Borgin
fullyrti í yfirlýsingu í desember að
búið væri að koma í veg fyrir raka-
vandamál í húsnæðinu. Samkvæmt
úttekt verkfræðistofunnar Eflu, sem
kom út í vikunni, höfðu fyrri fram-
kvæmdir á vegum Verkís ekki skilað
tilætluðum árangri. Verður húsnæð-
ið allt gert upp á næstu mánuðum.
Þá taldi borgin í desember að
ekki væri forsvaranlegt að ráða
aðra verkfræðistofu til verks sem
bæði Mannvit og Verkís höfðu þegar
unnið. „Í byrjun árs 2021 fara svo
að berast tilkynningar um áfram-
haldandi einkenni hjá nemendum.
Þá komu fram eindregnar óskir for-
eldra um að fá verkfræðistofuna
Eflu til að taka út verkið. Við því var
orðið,“ segir í svari borgarinnar við
fyrirspurn Fréttablaðsins.
Valgerður Sigurðardóttir, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur
kallað eftir skoðun á vinnubrögðum
Heilbrigðiseftirlitsins sem hafi gefið
húsnæðinu góða einkunn.
Á fundi með skólaráði skólans í
september var það mat eftirlitsins
að ekkert gæfi tilefni til að ætla að
skólinn hefði verið mengaður og lík-
lega kæmi ekkert út úr sýnatöku. Þá
væri annað sem þyrfti að skoða áður
en hægt væri að segja með vissu að
börn yrðu veik í húsnæðinu. „Hér
sé um að ræða börn sem eiga við
vandamál að stríða sem skoða þurfi
sérstaklega,“ segir í fundargerðinni.
Í svari Heilbrigðiseftirlitsins við
fyrirspurn Fréttablaðsins segir að
húsnæðið hafi virst vera í lagi, matið
byggi á sjónskoðun og því að fram-
kvæmdaraðilar töldu að þeir hefðu
upprætt vandann. Í svari við því
hvort eftirlitið muni bregðast við
á sama hátt komi sambærilegt mál
upp segir að framkvæmdar séu ítar-
legar og lögbundnar skoðanir á hús-
næði, aðbúnaði og fleiru. „Athuga-
semdir og kröfur eru gerðar ef þörf
þykir. Það er síðan rekstraraðilans
að fara eftir ábendingum.“ n
Úttektin var gerð að kröfu foreldra
Enn raka ummerki og rakaskemmdir
í Fossvogsskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Arnór Benónýs
son oddviti.
kristinnhaukur@frettabladid.is
KOSNINGAR Átján hafa kosið utan
kjörfundar í Austur-Húnavatns-
sýslu og 17 í Suður-Þingeyjarsýslu
í tveimur sameiningarkosningum
sem fram fara um næstu helgi. Tæp-
lega 1.900 manns búa í þeim fjórum
húnvetnsku sveitarfélögum sem
kosið er í en 1.300 í þeim tveimur
þingeysku og því hlutfallið hærra í
Þingeyjarsýslu.
Kristín Guðjónsdóttir, starfs-
maður hjá Sýslumanninum á
Norðurlandi vestra, segir atkvæða-
greiðsluna hafa gengið vel en kjör-
sóknin sé framan af ívið minni
en í öðrum kosningum. „Ég held
að það sé líklegra að fólk mæti
frekar á kjörstað,“ segir hún. Í for-
setakosningunum í fyrra ákváðu
margir að kjósa utan kjörfundar,
að öllum líkindum vegna farald-
ursins. Utankjörfundaratkvæði
voru um helmingi f leiri en í fyrri
kosningum. Þetta virðist ekki ætla
að verða raunin í ár ef marka má
kjörsókn í kosningunum tveimur.
Mun færri hafa kosið utan kjörfundar en í fyrra
Laugardaginn 5. júní verður
kosið í Blönduósbæ, Húnavatns-
hreppi, Skagaströnd og Skaga-
hreppi annars vegar og Þingeyjar-
sveit og Skútustaðahreppi hins
vegar. Verði sameiningarnar sam-
þykktar taka þær gildi við næstu
sveitarstjórnarkosningar, árið
2022.
Arnór Benónýsson, oddviti í
Þingeyjarsveit, segir mikið talað
um kosningarnar í sveitinni. „Þetta
er breyting og það hreyfir við fólki,“
segir Arnór. Erfitt sé þó að spá um
hvernig kosningin fari. „Ég held að
þetta sé fiftí-fiftí. Aðalatriðið er að
fólk mæti á kjörstað,“ bætir Arnór
við. n
arib@frettabladid.is
REYKJAVÍK Marta Guðjónsdóttir,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
hefur lagt það til við skipulagsráð að
ráðist verði í allsherjarátak við að
hreinsa og sporna við veggjakroti
í Reykjavík. Málinu var frestað á
fundi ráðsins í vikunni en Marta
er vongóð um að það verði afgreitt.
„Þetta er úti um allt, alvarleg eignar-
spjöll. Við sjáum að íbúar á Hjarðar-
haga hafa varla undan að mála bíl-
skúrana sína,“ segir Marta.
Hún vill að ráðist verði í þríþættar
aðgerðir. Í fyrsta lagi að ráðist verði í
að mála. „Síðan þarf að auka fræðslu
og vitund í skólum og frístundamið-
stöðvum til að krakkar skilji hvaða
afleiðingar þetta hefur,“ segir Marta.
„Í þriðja lagi væri hægt að útvega
veggi þar sem er heimilt að spreyja
til að þau geti fengið útrás. Ef við
tökum saman höndum þá munum
við sjá mikinn árangur.“ n
Vill allsherjarátak
gegn veggjakroti
Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
birnadrofn@frettabladid.is
MENNING Alls fengu 37 verkefni
styrk úr Barnamenningarsjóði
Íslands í gær þegar Katrín Jakobs-
dóttir forsætisráðherra og Lilja D.
Alfreðsdóttir, mennta- og menn-
ingarmálaráðherra, tilkynntu um
úthlutanir úr sjóðnum í Hörpu í gær.
Heildarfjárhæð styrkjanna nemur
90 milljónum króna og alls bárust
113 umsóknir. Þetta er í þriðja sinn
sem úthlutað er úr sjóðnum sem
ætlað er að fjármagna og styðja við
fjölbreytta starfsemi á sviði barna-
menningar.
Fjárhæðir st y rk janna vor u
300 þúsund krónur til sjö millj-
óna. Alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík hlaut hæsta styrkinn, til
verkefnisins Stelpur filma á lands-
byggðinni. n
Styrkir veittir til
barnamenningar
8 Fréttir 29. maí 2021 LAUGARDAGUR