Víkurfréttir - 20.01.2021, Blaðsíða 1
Guðbrandur Einarsson, forseti
bæjarstjórnar Reykjanesbæjar,
segir að kosta þurfi miklu meiru
til í málaflokk umsækjenda um
alþjóðlega vernd vegna þeirrar
viðkvæmu stöðu sem margir um-
sækjenda eru í. Þá segir hann að
láta þurfi af þjösnaskap sem Út-
lendingastofnun, sem ríkisstofnun,
virðist ætla að beita í samskiptum
sínum við Reykjanesbæ. Hann segir
Útlendingastofnun taka á leigu
húsnæði á Ásbrú án samráðs við
sveitarfélagið og í óþökk þess.
„Útlendingastofnun fer síðan
fram á að sveitarfélagið taki að sér
að þjónusta þá sem þar eru og munu
verða í framtíðinni. Það gæti látið
nærri að þar geti verið vistaðir um
100 einstaklingar. Þessari beiðni
hafnaði velferðarráð Reykjanes-
bæjar á fundi þann 13. janúar síðast-
liðinn en Útlendingastofnun hefur
í þrígang sent erindi þess efnis til
sveitarfélagsins. Það skortir ekki á
vilja sveitarfélagsins til þess að gera
vel í þessum málaflokki en alls ekki
á þeim forsendum sem Útlendinga-
stofnun leggur til,“ segir Guðbrandur
í grein sem hann skrifar í Víkur-
fréttum í dag.
Velferðarráð Reykjanesbæjar
hefur lagt fram ítarlega bókun í
fimm liðum um þjónustu við um-
sækjendur um alþjóðlega vernd. Í
niðurstöðum bókunarinnar segir
að velferðarráði Reykjanesbæjar
sé ekki stætt á að ganga til samn-
inga við Útlendingastofnun um að
Reykjanesbær taki yfir þjónustu á
Lindarbraut 536 á þeim grundvelli
sem stofnunin leggur til.
Í blaðinu má lesa bókunina í
heild sinni en hún var samþykkt í
bæjarstjórn Reykjanesbæjar í gær,
þriðjudag.
24 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
F R Í F A G L J Ó S M Y N D U N
F A S T E I G N A S A L I S Ý N I R A L L A R E I G N I R
PÁLL ÞORBJÖRNSSON
LÖGGILTUR FASTEIGNASALI
HAFNARGATA 91, REYKJANESBÆ
VÍKURBRAUT 62, GRINDAVÍK
PALL@ALLT.IS - 698-6655
Opnunartími
Hringbraut:
Allan sólarhringinn
Opnunartími
Tjarnabraut:
08.00 - 23.30 Virka daga
09.00 - 23.30 Helgar
FLJÓTLEGT OG GOTT!
Myllu kakóbiti
og Kaffitár bolli
294
kr
COMBO
TILBOÐ
Dagens réttir
4 teg.
GOTT
VERÐ
599
kr/stk
Toppur
0,5 ltr - 2 teg.
2
fyrir
1
Nýtir sér stöðuna
í óþökk bæjarins
Lýðheilsuráð Reykjanesbæjar hefur falið lýðheilsufulltrúa að óska eftir
samstarfi við umhverfis- og skipulagssvið bæjarins varðandi tillögu frá
Guðrúnu Pálsdóttur frá Á-lista á síðasta fundi ráðsins og leita svara við
þeim spurningum sem fram koma. Í tillögunni er fjallað um loftgæði á
leikskólum Reykjanesbæjar en kórónuveirusmit hafa komið upp á þremur
leikskólum í bæjarfélaginu. Leikskólarnir eiga það allir sameiginlegt að
vera eldri hús og börn síns tíma.
„Þegar spænska veikin gekk fyrir 100
árum höfðu menn ekki skilning á því
hvernig smit dreifðust. Í dag höfum
við hins vegar þekkingu á því. Farar-
tæki veirusmita og raunar flestra
bakteríusmita eru þrjú; úðasmit,
snertismit og dropasmit. Ég held
að við þekkjum öll hvað við getum
gert til að draga úr líkum á smiti
eftir síðustu mánuði. Í þeim Covid-
bylgjum sem gengið hafa yfir hafa
komið upp hópsmit á þremur leik-
skólum í Reykjanesbæ. Þessir þrír
leikskólar eiga það sameiginlegt að
vera eldri hús, börn síns tíma bæði
hvað varðar skipulag, starfsmanna-
aðstöðu og loftræstingu. Talið er að
góð loftskipti og loftgæði dragi úr því
að úðasmit berist á milli manna. Góð
loftskipti draga úr þéttni veirunnar í
rými og minnka þannig smithættu.
Lítil, illa loftræst rými bjóða því upp
á aðstæður sem veirum líkar vel til
smitunar. Til að takmarka útbreiðslu
Covid hafa verið settar reglur um
sóttvarnarhólf.
Í reglugerð heilbrigðisráðherra
segir: „Enginn samgangur er heimil-
aður á milli rýma. Hvert skilgreint
rými þarf helst að hafa eigin inn-
gang og útgang. Hægt er að nota
sama inn- og útgang ef aðilar í hverju
rými fara inn og út á aðskilinn hátt (á
mismunandi tímum) þannig að engin
blöndun sé á milli hópa. Lofta ætti
út á milli hópa ef hægt er og þrífa
snertifleti ef kostur. Salerni þurfa
að vera aðskilin fyrir hvert rými.
Ekki má samnýta salerni milli rýma
á neinn hátt,“ segir í tillögu Guðrúnar
Pálsdóttur. Þar er jafnframt spurt
hvort þessir leikskólar bjóði upp á
hólfaskiptingar og eru rými loftræst
með fullnægjandi hætti?
Hópsmitin öll í
gömlum leikskólum
– Ekki stætt á að ganga til samninga við Útlendingastofnun
Seinni sprautan afgreidd
Heimilisfólk á hjúkrunarheimilinu Nesvöllum í Reykjanesbæ fékk seinni sprautuna með bóluefni við kórónu-
veirunni í gær, þriðjudag. Aftur var það Jón Ísleifsson sem fékk fyrstu sprautuna og nú í seinni umferð bólu-
setningarinnar. Íbúar á hjúkrunarheimilunum Hlévangi í Keflavík og Víðihlíð í Grindavík fengu einnig seinni
sprautuna í gær og eiga því að vera komnir með góða vörn gegn veirunni skæðu. VF-MYND: HILMAR BRAGI
NÝJAR ÍBÚÐIR VIÐ SJÁVARSÍÐUNA
REYKJANESBÆ
OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN KL. 15 - 16.
PÓSTHÚSSTRÆTI 5
Grensásvegur 11 - www.eignamidlun.is - Sími 588 9090 Hafnargötu 20 - Reykjanesbær - Sími 420 4000
Viltu að eignin þín sé
ÁBERANDI?
Skráðu hana hjá okkur!
Miðvikudagur 20. janúar 2021 // 3. tbl. // 42. árg.