Víkurfréttir - 17.03.2021, Page 1
ALLT FYRIR ÞIG
ÁSTA MARÍA
JÓNASDÓTTIR
ASTA@ALLT.IS
560-5507
JÓHANN INGI
KJÆRNESTED
JOHANN@ALLT.IS
560-5508
DÍSA
EDWARDS
DISAE@ALLT.IS
560-5510
ELÍNBORG ÓSK
JENSDÓTTIR
ELINBORG@ALLT.IS
560-5509
PÁLL ÞOR-
BJÖRNSSON
PALL@ALLT.IS
560-5501
PÓSTHÚSSTRÆTI
LAUGARDAGINN 20. MARS
FRÁ KLUKKAN 12.00-13.00
OPIÐ HÚS
24 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Opnunartími
Hringbraut:
Allan sólarhringinn
Opnunartími
Tjarnabraut:
08.00 - 23.30 Virka daga
09.00 - 23.30 Helgar
FLJÓTLEGT OG GOTT!
Sóma samloka
m/túnfisksalati
Corny súkkulaði
50 gr
Hámark
Súkkulaði
og kókos
54%
169
kr/stk
áður
369 kr
119
kr/stk
áður
149 kr
20%
399
kr/stk
áður
589 kr
32%
Vegna grjót hruns í kjöl far öflugra
jarðskjálfa á Reykja nesi undan-
farna daga, hvetur lögreglan á
Suðurnesjum göngufólk til að gæta
var úðar í fjall lendi á Reykjanesi.
Ekki er þó einungis hætta á ferð-
inni í fjalllendi á svæðinu, heldur
einnig við strendur skagans sem
sjávarbjörg og hamrar eru. Vart
hefur orðið við mikið grjóthrun
af völdum skjálftanna úr sjávar-
hömrum vestan við Festarfjall í
grennd við Grindavík. Gera má ráð
fyrir slíku hruni víðar, svo sem við
Krýsuvíkurbjarg og Valahnjúk við
Reykjanesvita.
„Vegna hugsanlegra eldsumbrota
á Reykjanesskaga er af öryggis-
ástæðum biðlað til fólks að fylgjast
vel með fréttaflutningi um mögu-
legar takmarkanir á umferð, gang-
andi og akandi í grennd við Fagra-
dalsfjall. Sérstaklega óskum við eftir
því að fólk forðist vegslóða á sama
svæði,“ segir jafnframt í tilkynningu
frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Varað við
hruni eftir
skjálfta
Berklasmit greindist nýlega á
Hrafnistu Nesvöllum í Reykja-
nesbæ. Frá þeim tíma hefur verið
unnið að nánari greiningum tilfella
og 16. mars var lagt berklapróf fyrir
alla starfsmenn heimilisins í kjölfar
jákvæðrar svörunar meðal tveggja
starfsmanna við berklaprófi í hefð-
bundinni heilbrigðisskoðun. Niður-
stöður rannsókna sýna að enginn
sem rannsakaður hefur verið er
smitandi.
Einnig er fyrirhugað að gera
berklaprófanir hjá íbúum heimilisins
og verða þeir ásamt ættingjum upp-
lýstir um þá framkvæmd og hvenær
hún fer fram. Þessir starfsferlar
hafa verið unnir í fullu samráði við
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og
Göngudeild sóttvarna.
Göngudeild sóttvarna sinnir
berklavörnum utan sjúkrahúsa og
sér um smitrakningu í samvinnu við
staðbundin heilbrigðisyfirvöld vakni
grunur um berklasmit. Berklar eru
orsakaðir af bakteríu sem er næm
fyrir sýklalyfjum. Nokkrum sinnum á
ári vaknar grunur um berklasmit hér
á landi. Hefst þá rakning á hugsan-
legu smiti sem sérstaklega beinist að
þeim sem gætu hafa verið í nánum
samskiptum við viðkomandi.
Enginn greinst með
smitandi berkla
Hér sést vel hvernig hrunið hefur úr bjarginu
vestan Festarfjalls og einnig hversu sprungið
það er eftir skjálftana síðustu daga.
VF-mynd: Jón Steinar Sæmundsson
Berklasmit greindist nýlega
á Hrafnistu Nesvöllum
í Reykjanesbæ.
Miðvikudagur 17. Mars 2021 // 11. tbl. // 42. árg.