Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.03.2021, Side 4

Víkurfréttir - 17.03.2021, Side 4
  Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is Rétturinn Ljúengur heimilismatur í hádeginu Opið: 11-13:30 alla virka daga Einnig birt á www.naudungarsolur.is Framhald uppboðs á eftirfarandi skipi verður háð á skrifstofu sýslumanns, Vatnsnesvegi 33, Keflavík, sem hér segir: BENSI, GK, Gullbringusýsla, (FISKISKIP), fnr. 1957, þingl. eig. Ingi Þorgrímur Guðmundsson, gerðarbeiðandi Skipasmíðastöð Njarðvíkur hf., þriðjudaginn 23. mars nk. kl. 09:00. Framhald uppboðs á eftirfar- andi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Vatnsnesvegur 34, Keflavík, 50% ehl. gþ., fnr. 209-1156, þingl. eig. Baldvin Rafn Steinsson, gerðar- beiðandi Sýslumaðurinn á Norður- landi ves, þriðjudaginn 23. mars nk. kl. 09:30. Faxabraut 12, Keflavík, fnr. 208- 7403, þingl. eig. Monika Katarzyna Malkowska, gerðarbeiðendur Hús- næðis- og mannvirkjastofnun og Faxabraut 12, húsfélag og Vátrygg- ingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 23. mars nk. kl. 09:45. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum 15. mars 2021 uPPbOð Fimmtudaginn 17. mars 2011 mættu 7 ungmenni til vinnu í nýju virkniúrræði sem stofnað hafði verið á Smiðjuvöllum 5 í Reykjanesbæ. Um var að ræða Fjölsmiðju líka þeirri sem stofnaðar höfðu verið í Reykjavík og á Akureyri og voru að danskri fyrirmynd. Fjölsmiðjan á Suðurnesjum hafði reyndar verið stofnuð 7. september haustið áður en formleg starfsemi hófst þennan dag. Dagskrá fyrsta dagsins var að fara með nemana til Reykjavíkur þar sem þau skoðuðu Fjölsmiðjuna á höfuðborgarsvæðinu og borðuðu saman. Daginn eftir hófust þau svo handa, ásamt tveimur verkstjórum og forstöðumanni, við að standsetja húsnæðið sem áður hafði hýst Húsasmiðjuna og laga það að nýjum þörfum. Í maí sama ár opnaði svo nytjamarkaðurinn Kompan í nýja húsnæðinu. Markmið og tilgangur Fjölsmiðj- unnar er samkvæmt skipulagsskrá hennar meðal annars að hjálpa ungu fólki á aldrinum 16-24 ára að finna sitt áhugasvið, öðlast starfsreynslu og þar með auka möguleika þess í atvinnulífinu eða í námi. Lögð skal áhersla á virkni, hagnýta vinnu, faglega verkþjálfun og auka þannig sjálfstraust unga fólksins og und- irbúa það fyrir þátttöku á almennum vinnumarkaði og í frekara námi. Nánast frá fyrsta degi lá það fyrir að starfsemi nytjamarkaðarins Kompunnar myndi flytjast frá Suðurnesjadeild Rauða krossins til Fjölsmiðjunnar. Eins lá nokkuð beint við að boðið yrði upp á þvott og bón á bílum líkt og gert er í hinum fjöl- smiðjunum í Kópavogi og á Akureyri. Þá var horft til þess að reka eldhús sem gæti selt mat til utanaðkomandi viðskiptavina. Horfið hefur var frá þeirri hugmynd og miðast eldhúsað- staðan frekar við að þjónusta nema og starfsmenn í Fjölsmiðjunnar. Að auki voru ýmis möguleg verkefni skoðuð, einkum með hliðsjón af viðfangsefnum hinna fjölsmiðjanna tveggja. Þar ber að nefna bæði nið- urrif á raftækjum til endurvinnslu og pökkunarverkefni. Í dag eru verkefni Fjölsmiðjunnar rekstur Kompunnar, sem hefur vaxið og dafnað jafnt og þétt frá upphafi, rekstur á sendibíl sem er á ferðinni allan daginn alla daga við að ná í muni til gjafmildra Suðurnesja- manna og við heimsendingu á vörum úr Kompunni, þá sinnir Fjölsmiðjan einnig búslóðarflutningum. Á síðasta ári voru farnar um 1500 sendingar á sendibílnum. Á lagernum er tekið á móti vörum, þær yfirfarnar, verð- merktar og flokkaðar en auk þess eru öll raftæki yfirfarin áður en þau fara til sölu. Smá lagfæringum á hús- gögnum, í þeim tilgangi að gera þau söluhæf, hafa ungmennin sinnt undir handleiðslu verkstjóranna. Vorið 2020 var svo opnað reiðhjólaverk- stæði sem sinnir viðgerðum fyrir al- menning. Það má segja að þetta nýja verkefni hafið farið mjög vel af stað og sé góð viðbót í vinnuþjálfun unga fólksins. Þessi verkefni eru aðeins hinn sýnilegi þáttur starfsins. Það sem ekki sést er sú vinna sem fer í að halda vinnustaðnum snyrtilegum, efla sjálfstraust, sinna persónlegum málefnum nema, samtöl og fjölmargt fleira sem einkennir svona virkniúr- ræði. Frá upphafi hefur nemum sem sýna góða virkni og mætingu boðist að stunda nám á vinnutíma. For- stöðumaður hefur haft umsjón með náminu af hendi Fjölsmiðjunnar og hlutast til um að framgangur sé í námi og virkni í skóla. Gott sam- starf við Fjölbrautaskóla Suður- nesja og Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum er grundvallarfor- senda til að námið gangi vel og gagn- kvæmur skilningur hefur einkennt öll samskipti. Á þessari önn stunda 9 nemar nám við þessar stofnanir, allt frá því að vera í nokkrum fögum upp í fullt nám á stúdentsbrautum. Námsmennirnir skiptast þannig að 4 eru í FS, tveir þeirra stefna á að útskrifast með stúdentspróf í vor, en 5 nemar eru í námi við MSS í Grunn- menntaskóla, Menntastoðum og Skrifstofuskóla 1. Þetta háa hlutfall nema í námi er mikið fagnaðarefni og afrakstur undirbúningsvinnu og sjálfseflingar sem farið hefur fram áður. Á þessum 10 árum hafa um 150 ungmenni af Suðurnesjum notið þjónustu Fjölsmiðjunnar og hlotið þar undirbúning til næstu skrefa í sínu lífi. Afdrif nemanna hafa verið í flestum tilvikum góð og hafa þau mörg hver komið sér vel fyrir á vinnumarkaði, hafið frekara nám og orðið góðir samfélagsþegnar. Þetta er hinn eiginlegi ávinningur af starfi Fjölsmiðjunnar; að koma ungu fólki úr óvirkni í virkni, að verða að virkum samfélagsþegnum og að glæða áhuga á frekara námi. Sé eingöngu litið til þessa árangurs þá er afkoma Fjölsmiðjunnar mjög góð. Hið sama er ekki alltaf hægt að segja þegar litið er til ársreikn- inganna. Afkoma Fjölsmiðjunnar hefur ekki alltaf verið nógu góð en rekstrarfé sitt fær hún af styrkjum frá sveitarfélögunum á Suðurnesjum, Vinnumálastofnun og Mennta- og menningarmálaráðuneytinu annars vegar og hins vegar af sjálfsaflafé sem kemur mest í gegnum sölu á nytjavörum í Kompunni. Allan þennan tíma hefur Kompan notið velvilja íbúa á svæðinu sem láta af hendi rakna ýmiss konar muni sem hægt er að selja. Hróður Kompunnar hefur farið víða og koma margir um langan veg til að gera góð kaup þar enda Kompan talin með fallegri og snyrtilegri nytjamörkuðum á landinu. Það er gaman að heyra af því hjá viðskiptavinum að nemar Fjölsmiðjunnar séu með eindæmum kurteisir, þjónustulundaðir og góðir merkisberar hennar. En fyrir hverja er Fjölsmiðjan og hverjir komast í vinnuþjálfun þar? Félagsráðgjafar sveitarfélaganna á Suðurnesjum sem og ráðgjafar Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum geta vísað ungmennum í viðtal við forstöðumann Fjölsmiðjunnar. Aldurinn sem um ræðir er 16-24 ára og betra er að hafa vilja til að vera í virkni og njóta leiðsagnar og vinnuþjálfunar. Meðaltími nema í Fjölsmiðjunni er u.þ.b. 18 mánuðir og í sumum tilfellum lengur en þá er það metið út frá stöðu hvers og eins. Í Fjölsmiðjunni starfa að jafnaði 3 verkstjórar ásamt forstöðumanni. Að auki sækjum við aðstoð eins og þurfa þykir til annarra stofnana og úrræða á starfssvæðinu. Þegar kreppir að í atvinnulífinu og óvissutímabil eru í gangi er mikil- vægi úrræða eins og Fjölsmiðjunnar hvað mest. Sú staða sem hefur verið í atvinnulífinu á Suðurnesjum sl. tvö ár hefur gert það að verkum að ekki hafa jafnmargir nemar útskrifast til vinnu líkt og í venjulegu árferði. Þetta leiðir af sér að skapast hafa biðlistar enda fjölmörg ungmenni sem hafa þörf á að njóta aðstoðar og handleiðslu. Til þess að geta tekið við fleiri nemum þyrfti að fjölga verkefnum innan Fjölsmiðjunnar og stöðugt er verið að leita leiða til að auka fjölbreytni og skapa fleiri störf. Slík verkefni gætu til að mynda verið ýmiss konar pökkunarverkefni, ein- hvers konar framleiðsla og endur- gerð á húsgögnum frá grunni. Segja má að starfsemi Fjölsmiðj- unnar sé eins og ísjaki. Aðeins sést í hluta starfseminnar líkt og aðeins sést í topp ísjakans. Það er fjöl- margt sem fram fer á bak við tjöldin. Mörgum verkefnum þarf að sinna með nemunum í þeirra persónulega lífi þeim til framdráttar. Reynt er að haga aðkomu hvers og eins nema í Fjölsmiðjunni að honum sjálfum og styrkleikum hans með það að mark- miði að stækka þægindahringinn og takast á við áskoranir hversdagsins. Það er löngu ljóst að Fjölsmiðjan á Suðurnesjum er komin til að vera og er mjög mikilvæg í samfélaginu á Suðurnesjum. Enn er unnið út frá þeim hugmyndum sem komu fram á stefnumótunarfundinum sem haldinn var í maí 2018 og undir þeim einkunnarorðum sem þar voru valin; VIRKNI, VIRÐING, VON. Það er líka ljóst að standa þarf vörð um að verja rekstur Fjöl- smiðjunnar, sem er viðkvæmur en afar mikilvægur og þá sérstaklega á tímum eins og eru núna í þjóð- félaginu. Fjölsmiðjan hefur notið velvilja fjölmargra í formi styrkja, gjafa og góðra viðskiptavina en betur má ef duga skal. Fyrir þennan vel- vilja færi ég kærar þakkir og vona að framtíð Fjölsmiðjunnar, unga fólksins og samfélagsins verði björt. Þorvarður Guðmundsson, forstöðumaður. F J Ö L S M I Ð J A N Á S U Ð U R N E S J U M 1 0 Á R A virkNi – virðiNg og vON fyrir unga fólkið okkar Geiri verkstjóri, Sigurgeir G. Tómasson, sem hefur starfað við Fjölsmiðjuna frá upphafi. 4 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.