Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.03.2021, Page 6

Víkurfréttir - 17.03.2021, Page 6
Við Suðurnesjamenn höfum að- eins látið í okkur heyra varðandi minni framlög til margvíslegra rík- isstofnana á Suðurnesjum, fram- haldsskóla, heilbrigðisstofnunar og fleiri. Við höfum sent okkar færasta fólk á fundi í ráðuneytum og þeim hefur verið tekið vel en þrátt fyrir góðar móttökur hefur lítið gerst. Það er einhver stífla í ríkiskerfinu. Um þverbak gekk um daginn þegar bólusetningar virtust ganga eitthvað seinna á Suðurnesjum en annars staðar. Það var reyndar ekki alveg rétt eða var leiðrétt. Sem var gott. En þá að annarri mismunun. Eldsneytisverði. Já, bensín eða olíu á bílinn fáum við ekki á sam- keppnisverði eins og vinir okkar í Hafnarfirði og nágrenni eða á Akureyri. Það þótti ástæða til að bjóða lægra verð fyrir norðan. Ástæðan ekki vituð. Gott fyrir þá og bara sjálfsagt þá það hljóti að kosta eitthvað meira að flytja hana norður. Nokkrir framtaks- samir einstaklingar hafa fengið nóg og sett í gang undirskriftalista í tilraun til að þrýsta á breytingar hjá olíufélögunum í þessum efnum. VF ræddi við tvo af forsprökk- unum og sjá má viðtal við þá á Víkurfréttavefnum. Fleiri og fleiri Suðurnesjamenn taka nú elds- neyti í Hafnarfirði og nágrenni þar sem finna má dælur sem bjóða allt að 40 krónum lægra lítraverð. Þeir stoppa gjarnan hjá þessum ódýru dælum. Og skal engan furða. Ferðin á höfuðborgar- svæðið er þá frí og heim líka ef þú dælir þar. Olíufélögin þegja sem gröfin og svara engu. Hér væri tækifæri fyrir t.d. Atlantsolíu að gera betur, fyrirtæki sem er ekki með sömu yfirbyggingu og hin stóru félögin. En nei, það er þægilegt að vera bara á svipuðu verði og hin félögin. Félag sem lofaði lægra verði þegar það var stofnað. Auglýsa „óþolandi ódýrt“ en nei, er það ekki. Bara með óþolandi svipað verði nema í Hafnarfirði þar sem ástæða er að keppa við Costco. Er nú komið í sama hópinn og hin olíufélögin. Lifi samkeppnin. Eða þannig. Hvar er samfélagsleg ábyrgð olíu- félaganna? Hefði ekki verið lag að lækka verðið á Suðurnesjum í því alvarlega atvinnuástandi sem nú er? Það vakti athygli í stuttri könnun okkar hjá Víkur- fréttum á eldneytisverði í Reykja- nesbæ að verðið er ekki hæst á þeim dælum sem annars vegar eru staðsettar í Innri-Njarðvík, næst höfuðborgarsvæðinu, og næst flugstöðinni (er þó næst hæst,) heldur á elstu bensínstöðvunum í Reykjanesbæ, Olís og N1, í hjarta Keflavíkur. Gömlu góðu stöðvunum. Það kom óþægilega á óvart. Og ég sem alltaf fer þangað. Ég segi bara eins og góður maður sagði: Hvað er að frétta? RITSTJÓRARPISTILL - PÁLL KETILSSON Hver er samfélagsleg ábyrgð olíufélaganna? Gerðaskóli auglýsir eftir kennurum og námsráðgjafa skólaárið 2021–2022 Lausar eru eftirfarandi stöður: Kennsla á tæknisvæði Heimilisfræði Umsjónarkennari á unglingastigi Námsráðgjafi Í Gerðaskóla verða um 250 nemendur næsta skólaár. Við skólann starfa áhugsamir og metn- aðarfullir starfsmenn. Gildi skólans eru virðing, ábyrgð, ánægja, árangur. Lögð er áhersla á að skapa námsumhverfi þar sem allir eru virkir, öllum líði vel og allir læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu. Við leitum að einstaklingum með réttindi í grunnskóla, sem eru metnaðarfullir, góðir í mann- legum samskiptum, eru sveigjanlegir og tilbúnir að leita nýrra leiða í skólastarfi. Umsóknarfrestur er til 1. apríl og skulu umsóknir berast á netfangið eva@gerdaskoli.is Nánari upplýsingar veitir Eva Björk Sveinsdóttir skólastjóri í síma 425 3050 Móbergsdrangurinn Karl rís um 50 metra úr sæ rétt utan við ströndina á Reykjanesi. Hann er hluti af gömlum gígbarmi. Maki hans Kerling sem var við hans hlið er fyrir löngu „látin“ og horfin í sjóinn. Brimið heldur ótrautt áfram að lemja á Karli til þess eins að koma honum fyrir kattarnef. Þó svo að Karl hafi hingað til staðið þetta af sér eins og skaflajárnaður köttur á rökuðu gæruskinni, þá kemur að því að hann gefur eftir og fylgir kerlu sinni eftir í vota gröf. Brimið lemur Karl Jón Steinar Sæmundsson Útgefandi: Víkurfréttir ehf. Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmói 4a, 4. hæð 260 Reykjanesbæ Sími 421-0000 Ristjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717 pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001 andrea@vf.is Umbrot/blaðamaður: Jóhann Páll Kristbjörnsson. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is 400 bólusettir með Pfizer á Suðurnesjum í þessari viku Tvö staðfest „landamærasmit“ eru á Suðurnesjum og eru þrír í sóttkví vegna þess. Í þessari viku ráðgerir HSS að bólusetja 400 einstaklinga með bóluefni frá Pfizer. Búið er að bólu- setja íbúa í búsetukjörnum fatlaðra og notendur þjónustu Hæfingar- stöðvar og dagdvala aldraðra ásamt starfsmönnum þessara stofnana. 6 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.