Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.03.2021, Síða 15

Víkurfréttir - 17.03.2021, Síða 15
Flottasta fermingar- gjöfin lifir enn góðu lífi – segir hestakonan Gunnhildur Vilbergsdóttir sem þurfti að glíma við móður sína um val á fermingarkjólnum „Ætli fermingarfötin hafi ekki verið það eina sem ég var ekki par ánægð með. Ég hafði farið með stelpunum í Kóda að kíkja á föt og valið þar mjög settlegan og fallegan svartan kjól. Mamma tók það ekki í mál,“ segir Gunnhildur Vilbergsdóttir en hún á góðar minningar frá ferming- ardeginum sem var 28. mars 1993 í Keflavík. Gunnhildur segir að hún hafi þurft að beygja sig í fatavalinu fyrir ferm- ingardaginn. „Maður fermist ekki í svörtu ein- litu,“ sagði mamma. Ekki nógu glað- legt væntanlega. Hún endaði auð- vitað á að velja á mig. Það var varla hægt að þekkja muninn á skyrtunni minni og rjómatertunni. Skúli bróðir fékk hana lánaða á grímuball seinna og vann til verðlauna,“ segir Gunn- hildur. Veislan var haldin á heimili fjöl- skyldunnar og Gunnhildur fékk gjöf sem lifir enn góðu lífi. „Það var troðfullt hús af fjölskyldugestum og veisluborðið svignaði undan kræs- ingunum. Lambalæri og dýrindis meðlæti og kökuhlaðborð á eftir. Allt heimagert og vinkonur mömmu að hjálpa til í eldhúsinu. Æðislegur dagur í minningunni. Ég Sanyo hljómgræjur fyrir tíu geisladiska og með hnullungshátöl- urum. Langflottasta á sínum tíma og lifir enn góðu lífi í hesthúsinu.“ Steinleið yfir Jón við altarið „Það var náttúrlega búinn að standa yfir undirbúningur að deg- inum um nokkra hríð í sambandi við fataval á kappann og ferminga- myndatökuna. Varðandi fatavalið, þá man ég að ég var ekkert hrifinn af því að jakkaföt yrðu keypt og hvað þá bindi. Ég var tilbúinn að fallast á spariskyrtu ef ég fengi að vera bara í gallabuxum. Sú hug- mynd mín fékk nú ekki ýkja mikinn hljómgrunn hjá foreldrunum eins og sjá má á myndinni. Niðurstaðan var nýjar sparibuxur, skyrta, vesti og bindi,“ segir Jón Steinar Sæ- mundsson, verkstjóri hjá Vísi hf. í Grindavík og áhugaljósmyndari. Jón á góðar minningar frá ferm- ingunni sinni og við báðum hann að rifja daginn upp og segja okkur frá því helsta. „Ég fermdist 17. apríl 1983 og man að veðrið þennan dag var alveg meiriháttar gott, glampandi sól og logn. Myndatakan fór fram einhverjum dögum fyrir fermingar- daginn á Ljósmyndastofu Suður- nesja, hjá þeim ágæta ljósmyndara Heimi Stígssyni. Minn árgangur var sá fyrsti sem fermdist í nýrri Grindavíkurkirkju sem hafði verið tekin í notkun á haustdögum árið áður. Það sem stendur upp úr sjálfri at- höfninni í kirkjunni var að þegar kom að altarisgöngunni var orðið ansi heitt í kirkjunni og ennþá heitara undir fermingarkyrtlinum sem maður þurfti að klæðast yfir spari- fötin. Þar ég svo kraup við altarið steinleið yfir mig en faðir minn sem var mér við hlið var snöggur að grípa kappann áður en hann skylli í gólfið og kippti mér út um hliðardyr og út á tröppur. Þá var maður vaknaður og fyrsta hugsun var að rjúka inn og klára þessa athöfn, sem og ég gerði. Tók engu tali um að ég þyrfti meira frískt loft eða vatnssopa og eitthvað þvíumlíkt. Ég rauk inn og kláraði dæmið með stæl. Þetta er eitt- hvað sem maður vildi helst gleyma þarna á staðnum en í dag er þetta svo sannarlega bara ein af skemmti- legum minningum sem ég á í far- teskinu,“ segir Jón þegar hann rifjar upp eftirminnilegan fermingardag upp. Fermingarveislan var haldin heima hjá Jóni að lokinni athöfn eins og tíðkaðist í þá daga. „Þetta var kaffiveisla þar sem borðin svignuðu undan veitingum. Gestir komu víðs- vegar að og voru rúllandi við yfir allan daginn og langt fram á kvöld þeir síðustu. Gjafirnar voru hvorki af lakara taginu eða verri endanum. For- eldrar mínir gáfu mér forláta Sharp hljómflutningsgræju með tvöföldu kassettutæki og aðalkosturinn við græjuna þótti manni vera sá að geta tekið upp vinsælustu lögin í þeim vinsæla útvarpsþætti Lög unga fólksins. Svo fékk ég armbandsúr, hálsmen, Polaroid-myndavél, rúmföt og ýmislegt fleira ásamt einhverjum peningagjöfum sem voru á þessum tíma ekki orðnar eins vinsælar og í dag. Ég var alsæll með fermingar- daginn minn,“ segir Jón Steinar Sæ- mundsson. Jón Steinar Sæmundsson fékk hljómflutningstæki þar sem hægt var að taka upp lög úr útvarpinu Gunnhildur með foreldrum sínum á fermingardaginn, Guðlaugu Skúlasdóttur og Vilbergi Skúlasyni. Páll Ketilsson pket@vf.is Gunnhildur við fermingargjöfina - Sanyo hljómgræjurnar sem nú eru í hesthúsinu, tæpum þrjátíu árum síðar. vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár // 15

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.