Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.03.2021, Page 17

Víkurfréttir - 17.03.2021, Page 17
Marta Eiríksdóttir martaeiriks@gmail.com Myndir: Úr einkaeigu prestanna og JPK. Séra Erla Guðmundsdóttir: „Eftirminnilegur og gleðilegur dagur“ – Hvernig var fermingardagurinn þinn? „Ég fermdist 12. apríl árið 1992 í Kefla- víkurkirkju. Dagurinn var eftirminnilegur og gleðilegur eftir allt tilstandið sem staðið hafði yfir í marga mánuði. Hugmyndir að veitingum velt fyrir sér í marga mánuði. Allt málað innadyra og parket lagt á heimilið. Mamma saumaði rúmteppi, gardínur og púða í herbergið mitt sem var í stíl við hræðilega myntugræna veggi. Ég hafði fengið að vera miðdepill allan veturinn í stórfjölskyldunni sem sífellt spurði um fermingardaginn og margt sem honum tilheyrði. Er ég lít til baka finnst mér fallegt hversu mikinn áhuga og athygli fólkið sýndi þessum degi. Frá þessum degi fyrir 29 árum hefur fermingarversið fylgt mér; Allt megna ég fyrir hjálp hans, sem mig styrkan gjörir. (Fil. 4, 13.).“ – En fermingarfræðslan? „Fermingarfræðslan fór fram í gamla Kirkju- lundi. Sr. Lárus Halldórsson leysti sr. Ólaf Odd af í námsleyfi. Síðar kom sr. Helga Soffía Konráðsdóttir honum til hjálpar því við þóttum víst erfið. Við vorum vikulega í fræðslu. Um haustið söfnuðum við auglýs- ingum í fermingarblaðið sem við svo seldum um vorið. Þar komu myndir af hverjum hópi með nafni og heimilisfangi allra. Þetta var vegna skeytasölunnar. Ég á enn blaðið. Ég veit ekki hvort ég skar mig úr hópnum en það sem ég hafið gaman af fræðslunni. Öllu því sem sagt var og kennt. Tók innra með mér ákvörðun um að vera sjálfboðaliði í Kefla- víkurkirkju þegar ég yrði fullorðin. Foreldrar voru boðnir á fund. Mínir komu heim skelli- hlæjandi þar sem þau voru öll látin syngja Úmbarassa. Þetta er reyndar góð hugmynd sem við höfum ekki reynt. Sr. Helga Soffía og þáverandi eiginmaður hennar Sr. Toshiki Toma fermdu okkur. Gaman að segja frá því. Þau eru mínir kollegar í dag og Toshiki hefur verið með vikulegar bænastundir í Kefla- víkurkirkju fyrir flóttafólk.“ – Þurftirðu að læra mikið utan að? „Við þurftum að kunna Faðir vorið, trúar- játninguna, Litlu biblíuna og Gullnu regluna.“ – Hvernig var veislan? „Foreldrar mínir, ömmur, móðursystur og mágkona mömmu lögðu mikið á sig að útbúa fallega fjölskylduveislu mér til heiðurs. Á borð var lagður svínahamborgarhryggur með öllu tilheyrandi, marsípanskreytt ferm- ingarkaka sem var eins og Biblía, heimagerð kransakaka og fleira góðgæti. Ótal sparistell úr mörgum áttum staflað á borð við nellik- kuskreytingu. Sjónvarpssófinn settur í svefn- herbergið til að rýma fyrir veisluborðinu og hjónarúmið í bílskúrinn til að koma sófanum fyrir. Það voru nær 70 manns sem komu í veisluna. Þröngt heimafyrir en það var aldrei inni í myndinni að fara með veisluna í sal. Eftir á að hyggja var þetta hálfgerð klikkun, að mála allt áður en tuttugu börn komu með kámuga fingur og leggja nýtt parket er allir gengu inn á skónum.“ – Altarisgangan? „Altarisgangan fór fram í sjálfri fermingarat- höfninni. Þá gengu fjögur fermingarbörn í einu, ásamt foreldrum, til altaris og krupu við gráturnar. Við fengum oblátu og nær fullan bikar af víni og ég man enn hvað þetta var vont. Með þessu formi tók altarisgangan langan tíma. Þá var púrtvíni útdeilt en í dag erum við með lífrænt ræktaðan vínberjasafa.“ – Fékkstu margar gjafir? „Ég fékk úr, gullhring, tjald, útskorinn prjóna- stokk, þrjá þríkrossa, trú, von og kærleiks- hálsmen, box með hárrúllum til að hita, gullnælu, orðabók, 39 þúsund krónur, hnakk, hillur, allt nýtt í herbergið. Ég á þetta allt í dag nema hillurnar, hnakkinn og aurana.“ – Hvernig varstu klædd? „Ég var í hvítum kjól, blúndusokkum og hvítum skóm með slaufu og stóra, hvíta slaufu í hárinu.“ – Svafstu með rúllur nóttina áður, fórstu í greiðslu, í ljós og fleira? „Eldri stelpur lögðu okkur línunar með ljósa- bekkina. Kaupa tíu tíma kort. Byrja hægt, annan hvern dag og svo daglega síðustu fimm skiptin. Hversu marga tíma við ættum að hafa klút yfir andlitinu svo við myndum ekki brenna. Samviskusamlega og þakklátar fórum við eftir þessum leiðbeiningum. Það voru miklir útreikningar í kringum ljósa- bekkjaferlið. Ég fékk heitar rúllur í hárið um morguninn og þurfti því ekki að sofa með þær og gloss á varirnar sem var risastórt skref í förðun fyrir mig.“ Séra Fritz Már Jörgensson: „Hátíðsdagur sem mikið var lagt upp úr“ – Hvernig var fermingardagurinn þinn? „Ég fermdist á sumardaginn fyrsta árið 1975 og man að það var ágætis veður þennan dag. Ég fermdist klukkan ellefu um morguninn og þurfti því að vakna snemma. Ég bjó í Ár- bæjarhverfinu sem var úthverfi í Reykjavík og kirkjan okkar var ekki tilbúin þegar ég fermdist þannig að við fermdust í Dóm- kirkjunni í Reykjavík. Í minningunni er þetta hátíðsdagur sem mikið var lagt upp úr.“ – En fermingarfræðslan? „Fermingarfræðslan var ekki það skemmti- legasta sem ég gerði. Mér fannst hún mjög leiðinleg. Við mættum í safnaðarheimilið einu sinni í viku yfir veturinn og hlustuðum á séra Guðmund Þorsteinsson fara yfir fræðslu sem mér þótti oft frekar illskiljanleg.“ – Þurftirðu að læra mikið utan að? „Já, við áttum að læra heilmikið utan að og allt eitthvað sem mér fannst ekki spenn- andi að eyða tíma í að læra. Svo áttum við að fara með textann okkar og fleira utan að í fermingunni sjálfri og það var verulega kvíð- vænlegt fyrir mörg í hópnum.“ – Hvernig var veislan? „Veislan var skemmtileg. Hún var haldin heima og undirbúningurinn stóð í lengri tíma. Það þurfti að flytja allt fram og til baka svo allir kæmust fyrir. Allt var heimagert á þessum tíma. Mamma og ömmur mínar og fleiri tóku þátt, þannig að það var heilmikil samvinna í þessu. Svo kom fullt af fólki. Ég á góðar minningar af veislunni, fannst hún skemmtileg.“ – Altarisgangan, var veisla eftir hana líka? „Altarisgangan var haldin einhverjum vikum eftir ferminguna en það var ekki veisla eftir hana.“ – Fékkstu margar gjafir? „Já, ég fékk mikið af gjöfum. Ég fékk skart- gripi, til dæmis hring og ermahnappa en annar þeirra er týndur en hinn á ég enn. Síðan fékk ég sjálftrekkt Pierpoint úr sem enn er til en virkar því miður ekki lengur. Ég fékk líka fallegar bækur, Biblíu sem enn er til – og svo fékk ég fullt af peningum.“ – Hvernig varstu klæddur? „Ég var í brúnum, uppháum skóm sem voru með þrettán sentimetra háum hælum og fimm sentimetra sólum. Svo var ég í brúnum leðurjakka og drappaðri skyrtu með svona litlu, ljósbrúnu mynstri. Kraginn á skyrtunni var svo látinn vera út yfir kragann á jakk- anum. Síðan var ég í dröppuðum terylene- buxum sem voru frekar þröngar að ofan en með útvíðum skálmum. Því miður komst ég ekki í fermingarmyndirnar mínar en læt eina ljósmynd fylgja með sem ég á, af mér og mömmu, sem er víst tekin nokkrum dögum fyrir fermingu.“ – Fórstu í klippingu? „Nei, ég held ég hafi haft betur og fengið að sleppa því. Ég var alltaf með sítt hár og minnir að það hafi verið sært tiltölulega nýlega þannig að ég slapp við fermingarklipp- ingu.“ Prestarnir í Keflavíkurkirkju rifja upp fermingardaginn sinn: vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár // 17

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.