Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.03.2021, Page 20

Víkurfréttir - 17.03.2021, Page 20
KEFLVÍKINGAR KOMNIR Í ÁTTA LIÐA ÚRSLIT Keflavík endaði í öðru sæti riðils þrjú í A-deild Lengjubikars karla eftir góðan 4:1 sigur á Skagamönnum um helgina. Mörk Keflavíkur skoruðu þeir Rúnar Þór Sigur- geirsson (53’ og 76’), Davíð Snær Jóhannsson (54’) og Ástbjörn Þórðarson (86’). Þeir mæta Víkingum frá Reykjavík í átta liða úrslitum næsta föstudag á Víkingsvellinum. Það verður spennandi að fylgjast með Kefl- víkingum í efstu deild í sumar en leikur þeirra virðist ætla að vera á svipuðu róli og síðasta sumar, einkennast af leikgleði og öflugum sóknarleik en Keflavík skoraði fjórtán mörk í riðlakeppninni. GRINDVÍKINGAR GERÐU JAFNTEFLI VIÐ KA Grindvíkingar gerðu 1:1 jafntefli lokaleik sínum í A-deild Lengjubikars karla þegar þeir mættu KA á Akureyri á laug- ardaginn. Grindavík var betri aðilinn en gegn gangi leiksins voru það heimamenn í KA sem komust yfir skömmu fyrir leikhlé. Það var svo rétt áður en leiktíminn rann út að Dagur Ingi Hammer Gunnarsson skoraði jöfnunar- mark fyrir Grindavík (87’). Grindvíkingar byrjuðu illa í Lengjubikarnum í ár og töpuðu tveimur fyrstu leikjunum, þeir bættu leik sinn verulega eftir slæmt tap gegn toppliði Vals í annarri umferð og unnu næstu tvo leiki þar á eftir, gegn Aftur- eldingu og Víkingi Ólafsvík. Grindavík endaði í fjórða sæti riðils tvö og er því úr leik. NJARÐVÍK OG ÞRÓTTUR EFST Njarðvíkingar léku gegn Elliða í riðli eitt B-deildar Lengjudeildar karla síðasta laugardag. Leiknum lauk með 3:2 sigri þeirra grænklæddu en sigurmarkið skoraði skoska markamaskínan Kenneth Hogg á 87. mínútu, áður höfðu þeir Hlynur Magnússon (15’) og Stefán Birgir Jó- hannesson (74’) komið Njarðvíkingum í tvígang yfir. Njarðvík situr í efsta sæti eftir þrjá sigra. Á laugardag mættu Þróttarar Ægi og uppskáru öruggan 4:1 sigur. Það var Viktor Smári Segatta sem skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik (6’ og 20’) og þeir Andri Már Hermannsson (45’) og Sigurður Gísli Snorrason (76’) gerðu sitt markið hvor. Þróttarar eru sem stendur í öðru sæti riðils eitt í B-deild karla, með tvo sigra eftir tvo leiki. Það verður toppslagur þegar Suðurnesjaliðin Njarðvík og Þróttur Vogum mætast í Reykjaneshöllinni næstkomandi föstudagskvöld. – segir Davíð Snær Jóhannsson, einn af ungu og spræku leikmönnunum í liði Keflavíkur. Þótt Davíð sé ungur að árum hefur hann öðlast töluverða reynslu með meistaraflokki en hann lék sinn fyrsta leik í efstu deild daginn áður en hann varð sautján ára. Við heyrðum í Davíð og spjölluðum um leik helgarinnar og fleira. – Þetta var góður leikur hjá ykkur um helgina. „Já, flottur leikur – gott að taka lið í Pepsi-deildinni og gera það sannfær- andi. Við erum búnir að vera góðir upp á síðkastið, sérstaklega eftir að Joey og Nacho komu inn í liðið aftur. Það er kominn fílingur í hópinn og gott að byggja á þessu, að komast áfram. Það eru orðin nokkur ár síðan við komumst upp úr riðlinum í Lengj- unni. Kominn tími til og þetta leggst vel í mig,“ segir Davíð Snær. „Það er ekki annað hægt en að vera spenntur fyrir tímabilinu, við þurfum að sýna okkur og eigum svolítið harma að hefna síðan við vorum síðast í efstu deild. Við erum nokkrir ennþá af þessum heimamönnum sem vorum í liðinu og við munum hvernig þetta var. Það virðist vera allt annar fílingur í liðinu nú en var þá, svipaður eða betri andi en var síðasta sumar. Við erum sami hópur og höfum bætt við okkur tveimur virkilega flottum leik- mönnum sem falla vel inn í hópinn – hugsanlega bætum við fleirum við, ég veit það ekki.“ – Og hvernig ert þú, í toppformi? „Ég myndi segja að ég hafi aldrei verið í betra standi. Nú er ég að byrja á mínu fjórða tímabili í meistara- flokki og ennþá tiltölulega ungur – mér líst bara vel á þetta. Ég er að stíga upp andlega sem leikmaður og fullorðnast líkamlega. Það er góð blanda.“ – Þannig að þú ætlar að standa þig í sumar og sýna þig fyrir stóru lið- unum erlendis. „Það er klárlega markmiðið og hefur verið frá því maður var lítill, að fara út, og þetta er frábært svið til að sýna sig. Auðvitað er það mark- miðið.“ – Hvert væri draumurinn að fara? „Sko, draumurinn er dálítið opinn. Ég hef mikinn áhuga að spila á Ítalíu til dæmis, það væri alger draumur að spila fyrir AC Milan eða Inter Milan. Svo elskum við Ís- lendingarnir líka Premier League í Englandi, eins og með ManU [Manchester United] en maður fékk ekkert val um með hvaða liði maður ætti að halda. Ætli það væri ekki æðsti draumurinn, að spila með ManU?“ – Eruð þú og pabbi þinn [Jóhann Birnir Guðmundsson] báðir ManU- menn? „Já, ég hafði ekkert val um það þegar ég var yngri. Það var það eða ekkert.“ – Þannig að þú ert bara bjartsýnn á sumarið og þið ætlið ekki að endur- taka leikinn frá því síðast, er það? „Nei, alls ekki! Það er ekki inn í myndinni,“ segir Davíð Snær. Bleika hárið vakti athygli Það þótti athyglisvert að sjá Davíð leika síðast leik en hárið á honum hafði verið litað skærbleikt. Blaða- manni lék forvitni á að vita hver ástæðan væri. – Hvernig stóð á þessu uppátæki, að lita á sér hárið bleikt? „Við vorum með góðgerðarviku í FS í síðustu og í henni er hægt að vera með áheiti. Okkur datt nokkrum fé- lögum í hug að láta lita hárið á okkur bleikt fyrir 75 þúsund kall, með því vildum við leggja til í söfnun handa skólafélaga okkar sem er að glíma við krabbamein – og við vorum ekki lengi að safna þeirri upphæð, það var búið að tveimur dögum eða eitthvað svoleiðis. Þannig að við þurftum að slá til.“ – Hverjir voru með þér í þessu? „Þetta voru ég, Guðjón Pétur Stef- ánsson og Stefán Júlían Sigurðsson. Vinir mínir og algerir fagmenn. Bara gaman að þessu,“ sagði bjartsýnn og bleikhærður Davíð að lokum. Félagarnir Davíð, Guðjón og Stefán með skærbleiku kollana sína. Ég er að stíga upp and- lega sem leikmaður og fullorðnast l íkamlega. Það er góð blanda . . . „við þurfum að sýna okkur og eigum harma að hefna“ Jóhann Páll Kristbjörnsson johann@vf.is Markaskorararnir Davíð, Rúnar og Ástþór. Mynd: Jón Örvar Arason Dagur Ingi. Mynd af síðu UMFG Hart barist í leik Njarðvíkur og Þróttar á síðustu leiktíð. Sveindís Jane Jónsdóttir átti stórgóðan leik í fyrstu umferð sænsku bikarkeppninni þegar Kristianstad sótti lið Alingsås heim. Leiknum lauk með fjögurra marka sigri Sveindísar og félaga. Sveindís kom Kristianstad yfir þegar hún skoraði fyrsta mark leiksins á 17. mínútu eftir að hafa fengið sendingu inn fyrir vörn Alingsås. Fimm mínútum síðar tvöfaldaðist forysta Kristianstad þegar leikmaður heimaliðsins varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Í seinni hálfleik skoraði Mia Carlsson þriðja mark Kristianstad (60’) og tólf mínútum fyrir leikslok gerði Sveindís endanlega út um leikinn með glæsilegu skallamarki eftir góða sókn. Þá kom góð fyrirgjöf fyrir mark Alingsås og Kefl- víkingurinn kastaði sér fram og skallaði í netið, lokatölur 4:0. SVEINDÍS JANE með tvennu í bikarsigri Sveindís Jane hér í baráttu um boltann í leiknum gegn Alingsås FC. Mynd af heimasíðu Alingsås FC. Miðvikudagur 17. Mars 2021 // 11. tbl. // 42. árg.sport

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.