Víkurfréttir - 17.03.2021, Blaðsíða 20
KEFLVÍKINGAR KOMNIR
Í ÁTTA LIÐA ÚRSLIT
Keflavík endaði í öðru sæti riðils þrjú í
A-deild Lengjubikars karla eftir góðan 4:1
sigur á Skagamönnum um helgina. Mörk
Keflavíkur skoruðu þeir Rúnar Þór Sigur-
geirsson (53’ og 76’), Davíð Snær Jóhannsson
(54’) og Ástbjörn Þórðarson (86’). Þeir mæta
Víkingum frá Reykjavík í átta liða úrslitum
næsta föstudag á Víkingsvellinum.
Það verður spennandi að fylgjast með Kefl-
víkingum í efstu deild í sumar en leikur þeirra
virðist ætla að vera á svipuðu róli og síðasta
sumar, einkennast af leikgleði og öflugum
sóknarleik en Keflavík skoraði fjórtán mörk
í riðlakeppninni.
GRINDVÍKINGAR GERÐU JAFNTEFLI VIÐ KA
Grindvíkingar gerðu 1:1 jafntefli lokaleik sínum í A-deild
Lengjubikars karla þegar þeir mættu KA á Akureyri á laug-
ardaginn. Grindavík var betri aðilinn en gegn gangi leiksins
voru það heimamenn í KA sem komust yfir skömmu fyrir
leikhlé. Það var svo rétt áður en leiktíminn rann út að
Dagur Ingi Hammer Gunnarsson skoraði jöfnunar-
mark fyrir Grindavík (87’).
Grindvíkingar byrjuðu illa í Lengjubikarnum í ár og
töpuðu tveimur fyrstu leikjunum, þeir bættu leik sinn
verulega eftir slæmt tap gegn toppliði Vals í annarri
umferð og unnu næstu tvo leiki þar á eftir, gegn Aftur-
eldingu og Víkingi Ólafsvík. Grindavík endaði í fjórða
sæti riðils tvö og er því úr leik.
NJARÐVÍK OG ÞRÓTTUR EFST
Njarðvíkingar léku gegn Elliða í riðli eitt B-deildar Lengjudeildar karla
síðasta laugardag. Leiknum lauk með 3:2 sigri þeirra grænklæddu
en sigurmarkið skoraði skoska markamaskínan Kenneth Hogg á 87.
mínútu, áður höfðu þeir Hlynur Magnússon (15’) og Stefán Birgir Jó-
hannesson (74’) komið Njarðvíkingum í tvígang yfir. Njarðvík situr í
efsta sæti eftir þrjá sigra.
Á laugardag mættu Þróttarar Ægi og uppskáru öruggan 4:1 sigur. Það var
Viktor Smári Segatta sem skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik (6’ og 20’) og þeir
Andri Már Hermannsson (45’) og Sigurður Gísli Snorrason (76’) gerðu sitt
markið hvor. Þróttarar eru sem stendur í öðru sæti riðils eitt í B-deild karla,
með tvo sigra eftir tvo leiki.
Það verður toppslagur þegar Suðurnesjaliðin Njarðvík og Þróttur Vogum
mætast í Reykjaneshöllinni næstkomandi föstudagskvöld.
– segir Davíð Snær Jóhannsson, einn af ungu og spræku leikmönnunum í liði
Keflavíkur. Þótt Davíð sé ungur að árum hefur hann öðlast töluverða reynslu með
meistaraflokki en hann lék sinn fyrsta leik í efstu deild daginn áður en hann varð
sautján ára. Við heyrðum í Davíð og spjölluðum um leik helgarinnar og fleira.
– Þetta var góður leikur hjá ykkur
um helgina.
„Já, flottur leikur – gott að taka lið í
Pepsi-deildinni og gera það sannfær-
andi. Við erum búnir að vera góðir
upp á síðkastið, sérstaklega eftir að
Joey og Nacho komu inn í liðið aftur.
Það er kominn fílingur í hópinn og
gott að byggja á þessu, að komast
áfram. Það eru orðin nokkur ár síðan
við komumst upp úr riðlinum í Lengj-
unni. Kominn tími til og þetta leggst
vel í mig,“ segir Davíð Snær. „Það er
ekki annað hægt en að vera spenntur
fyrir tímabilinu, við þurfum að sýna
okkur og eigum svolítið harma að
hefna síðan við vorum síðast í efstu
deild. Við erum nokkrir ennþá af
þessum heimamönnum sem vorum
í liðinu og við munum hvernig þetta
var. Það virðist vera allt annar fílingur
í liðinu nú en var þá, svipaður eða
betri andi en var síðasta sumar. Við
erum sami hópur og höfum bætt við
okkur tveimur virkilega flottum leik-
mönnum sem falla vel inn í hópinn
– hugsanlega bætum við fleirum við,
ég veit það ekki.“
– Og hvernig ert þú, í toppformi?
„Ég myndi segja að ég hafi aldrei
verið í betra standi. Nú er ég að byrja
á mínu fjórða tímabili í meistara-
flokki og ennþá tiltölulega ungur
– mér líst bara vel á þetta. Ég er að
stíga upp andlega sem leikmaður og
fullorðnast líkamlega. Það er góð
blanda.“
– Þannig að þú ætlar að standa þig
í sumar og sýna þig fyrir stóru lið-
unum erlendis.
„Það er klárlega markmiðið og hefur
verið frá því maður var lítill, að fara
út, og þetta er frábært svið til að
sýna sig. Auðvitað er það mark-
miðið.“
– Hvert væri draumurinn að fara?
„Sko, draumurinn er dálítið opinn.
Ég hef mikinn áhuga að spila á
Ítalíu til dæmis, það væri alger
draumur að spila fyrir AC Milan
eða Inter Milan. Svo elskum við Ís-
lendingarnir líka Premier League
í Englandi, eins og með ManU
[Manchester United] en maður
fékk ekkert val um með hvaða liði
maður ætti að halda. Ætli það væri
ekki æðsti draumurinn, að spila
með ManU?“
– Eruð þú og pabbi þinn [Jóhann
Birnir Guðmundsson] báðir ManU-
menn?
„Já, ég hafði ekkert val um það
þegar ég var yngri. Það var það eða
ekkert.“
– Þannig að þú ert bara bjartsýnn á
sumarið og þið ætlið ekki að endur-
taka leikinn frá því síðast, er það?
„Nei, alls ekki! Það er ekki inn í
myndinni,“ segir Davíð Snær.
Bleika hárið vakti athygli
Það þótti athyglisvert að sjá Davíð
leika síðast leik en hárið á honum
hafði verið litað skærbleikt. Blaða-
manni lék forvitni á að vita hver
ástæðan væri.
– Hvernig stóð á þessu uppátæki,
að lita á sér hárið bleikt?
„Við vorum með góðgerðarviku í FS
í síðustu og í henni er hægt að vera
með áheiti. Okkur datt nokkrum fé-
lögum í hug að láta lita hárið á okkur
bleikt fyrir 75 þúsund kall, með því
vildum við leggja til í söfnun handa
skólafélaga okkar sem er að glíma
við krabbamein – og við vorum
ekki lengi að safna þeirri upphæð,
það var búið að tveimur dögum eða
eitthvað svoleiðis. Þannig að við
þurftum að slá til.“
– Hverjir voru með þér í þessu?
„Þetta voru ég, Guðjón Pétur Stef-
ánsson og Stefán Júlían Sigurðsson.
Vinir mínir og algerir fagmenn. Bara
gaman að þessu,“ sagði bjartsýnn og
bleikhærður Davíð að lokum.
Félagarnir Davíð, Guðjón og
Stefán
með skærbleiku kollana sína.
Ég er að stíga upp and-
lega sem leikmaður og
fullorðnast l íkamlega.
Það er góð blanda . . .
„við þurfum að sýna okkur
og eigum harma að hefna“
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
Markaskorararnir
Davíð, Rúnar og Ástþór.
Mynd: Jón Örvar Arason
Dagur Ingi.
Mynd af síðu UMFG
Hart barist í leik Njarðvíkur og Þróttar á síðustu leiktíð.
Sveindís Jane Jónsdóttir átti stórgóðan leik í
fyrstu umferð sænsku bikarkeppninni þegar
Kristianstad sótti lið Alingsås heim. Leiknum
lauk með fjögurra marka sigri Sveindísar og
félaga.
Sveindís kom Kristianstad yfir þegar hún
skoraði fyrsta mark leiksins á 17. mínútu eftir
að hafa fengið sendingu inn fyrir vörn Alingsås.
Fimm mínútum síðar tvöfaldaðist forysta
Kristianstad þegar leikmaður heimaliðsins
varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark.
Í seinni hálfleik skoraði Mia Carlsson þriðja
mark Kristianstad (60’) og tólf mínútum fyrir
leikslok gerði Sveindís endanlega út um leikinn
með glæsilegu skallamarki eftir góða sókn. Þá
kom góð fyrirgjöf fyrir mark Alingsås og Kefl-
víkingurinn kastaði sér fram og skallaði í netið,
lokatölur 4:0.
SVEINDÍS JANE
með tvennu í bikarsigri
Sveindís Jane hér í baráttu
um boltann í leiknum
gegn Alingsås FC.
Mynd af heimasíðu Alingsås FC.
Miðvikudagur 17. Mars 2021 // 11. tbl. // 42. árg.sport