Víkurfréttir - 17.03.2021, Page 22
krabbinn settur í lás
Um helgina fóru fram góðgerðaæfingabúðirnar „Setjum krabbann í lás“ þar
sem bardagafólk, já og alls kyns fólk af götunni, kom saman frá öllum lands-
hornum og tók þátt í átta klukkustunda námskeiði í Bardagahöll Reykjanes-
bæjar. Allir þjálfarar gáfu vinnu sína og aðgangseyririnn fór í gott málefni
til að berjast með meðborgurum okkar gegn krabbameinskvikindinu. Eins
og myndirnar sýna va frábært andrúmsloft í búðunum og það var hægt að
merkja samhug og kærleika í loftinu. Við erum sterk saman og það skein í
gegn um helgina.
Aðalfundur KSK verður haldinn
fimmtudaginn 18. mars
kl. 17:00 í Krossmóa 4, 5. hæð.
Dagskrá samkvæmt félagslögum
Ávarp flytur Berglind Kristinsdóttir
framkvæmdastjóri Sambands
sveitarfélaga á Suðurnesjum.
AÐALFUNDUR
KAUPFÉLAGS SUÐURNESJA
Krossmóa 4 | 260 Reykjanesbæ | Sími: 421 5409
Skúli Þ. Skúlason
formaður KSK
Berglind Kristinsdóttir
framkvæmdastjóri SSS
Þróttarar stórhuga
– Ætla að sækja um Landsmót UMFÍ 50+ árið 2022
Petra Ruth Rúnarsdóttir var endur-
kjörin formaður Þróttar í Vogum á
aðalfundi félagsins sem haldinn var
fyrir skemmstu, þriðja kjörtímabil
Petru fer nú í hönd.
Auk Petru í stjórn Þróttar Vogum
eru þau Katrín Lára Lárusdóttir,
Reynir Emilsson, Jóna K. Stefáns-
dóttir og Davíð Hanssen. Varamenn
eru Sólrún Ósk Árnadóttir og Birg-
itta Ösp Einarsdóttir.
Þrátt fyrir að félaginu hafi verið
sniðinn þröngur stakkur í því ástandi
sem skapaðist af völdum kórón-
uveirufaraldurinsins skilaði Þróttur
hagnaði upp á ríflega hálfa milljón
króna og eigið fé var um árslok
821.563.
Guðmundur Stefán Gunnarsson,
íþrótta- og tómstundafulltrúi Voga,
mætti á fundinn og hélt tölu þar sem
hann talaði m.a. um hve Ungmenna-
félagið Þróttur skipti samfélagið
í Vogum miklu máli, félagið væri
að standa sig frábærlega í sínum
störfum.
Covid hafði mikil áhrif
á starfsemi félagsins
Rétt eins og aðrir í samfélaginu
hafði Covid veruleg áhrif á starfsemi
Þróttar á árinu. Það reynd verulega
á þolinmæði og þrautseigju þeirra
sem starfa hjá félaginu, bæði stjórn-
endur og iðkendur. Frá 15. mars til 4.
maí stöðvaðist allt íþróttastarf sem
hafði í kjölfarið áhrif á alla iðkendur
í skipulögðu íþróttastarfi hjá Þrótti.
Það var reynt eftir fremsta megni
að sinna iðkendum félagsins með
sem bestum hætti. Þjálfarar sendu
iðkendum heimaæfingar frá fyrsta
degi lokunar.
Strax í upphafi var ljóst að tekju-
bresturinn yrði einhver og fjár-
hagstjónið stórt. Því var leitað til
starfsfólks, þjálfara og annara innan
félagsins að taka á sig tímabundnar
skerðingar og starfsfólk mætti
þessum aðstæðum með miklum
skilningi. Allir sýndu stöðunni
skilning og fundu stjórnendur fyrir
mikilli samstöðu meðal Þróttara.
Fjölmargir viðburðir féllu niður
vegna ástandsins og ekki var hægt
að faraí fastar fjáraflanir sem hafa
gefið vel af sér. Þróttur fékk myndar-
lega styrki frá ÍSÍ, KSÍ og tókst að
sækja um í hina ýmsu sjóði til að
bregðast við tekjubresti.
„Eins og staðan er í dag höfum
við miklar áhyggjur af brottfalli
iðkenda úr íþróttum í kjölfar farald-
ursins,“ sagði Petra í skýrslu stjórnar.
„Skráningar skiluðu sér inn seinna
en venjulega í haust og teljum við
það vera mögulega vegna þess að
forráðamenn vildu fylgjast með
þróun faraldrar. Æfingar hafa ekki
farið fram með hefðbundnum hætti
og það hefur áhrif á okkar iðkendur.
Þjálfarar gátu ekki haft kynningu á
starfinu í skólanum eins og hefur
verið gert seinustu ár og því erf-
iðara að ná til krakkana. Við viljum
því hvetja foreldra að halda áfram
að vera með okkur í liði og hvetja
krakkana til að mæta á æfingar þar
sem íþróttaiðkun er mikilvæg fyrir
líkamlega og andlega líðan barnanna
okkar.“
Þróttarar eru nú ekki þekktir fyrir
að leggja árar í bát og sést það best
í þeim árangri sem knattspyrnulið
félagsins hefur náð að undanförnu
og í þeirri stemmningu sem hefur
skapast í kringum liðið. Vogabúar
hafa fylkst að baki sínu félagi og má
reikna með að þeir geri áfram það
þótt á móti blási.
Eins og staðan er í
dag höfum við miklar
áhyggjur af brottfall i
iðkenda úr íþróttum í
kjölfar faraldursins . . .
Frá aðalfundi Þróttar. Mynd af throttur.net
Störf í boði
hjá Reykjanesbæ
Súlan verkefnastofa – Vefstjóri
Súlan verkefnastofa – Starfsmaður menningarmála
Grunnskólar – Kennarar
Vinnuskóli – Flokkstjórar
Velferðarsvið – Sumarstarf í íbúðarkjarna
Akurskóli - Þroskaþjálfi
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum
vef Reykjanesbæjar, Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru
jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf.
Hægt er að leggja inn almenna umsókn
á sama stað. Þeim er komið til stofnana
sem eru í leit að starfsfólki. Almennar
umsóknir fyrnast að sex mánuðum liðnum.
Viðburðir í Duus
Safnahúsum
Leiðsögn um bátasafn Gríms Karlssonar
í Byggðasafni Reykjanesbæjar
Sunnudaginn 21. mars kl. 14.00 og 15.00 verður
Byggðasafn Reykjanesbæjar með leiðsögn um
bátasafn Gríms Karlssonar á milliloftinu í Duus
safnahúsum. Helgi Biering segir frá því sem fyrir
augu ber og svarar spurningum sem kunna að vakna.
á og í sýningin í Listasafninu - lokadagar
Síðasta sýningarhelgi næstkomandi sunnudag.
Frábær sýning sem samanstendur af nýjum verkum
listamannanna, Bjarkar Guðnadóttur, Helgu Páleyjar
Friðþjófsdóttur og Yelenu Arakelow sem sérstaklega
eru búin til fyrir sali Listasafns Reykjanesbæjar.
22 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár