Skessuhorn - 30.06.2021, Side 6
MiðVikuDAGur 30. júní 20216
Útvegsfyrirtæki
sameinuð
NESKAUPST: Tilkynnt
hefur verið um að frá og
með 1. júlí næstkomandi
renna formlega saman í eitt
útgerðarfyrirtækin runólfur
Hallfreðsson ehf. frá Akra-
nesi og Síldarvinnslan hf. í
neskaupstað. runólfur Hall-
freðsson ehf. var til áratuga
fjölskyldufyrirtæki sem gerði
út togarann Bjarna Ólafsson
Ak frá Akranesi. -mm
Ólafsvíkurvaka
á laugardaginn
ÓLAFSVÍK: næstkomandi
laugardag verður bæjarhá-
tíðin Ólafsvíkurvaka haldin
hátíðlega í Snæfellsbæ. Há-
tíðin hefst með golfmóti á
Fróðárvelli kl. 9. Þá verð-
ur Einar Mikael með töfra-
skóla fyrir börn á aldrinum
6-12 ára í íþróttahúsi Snæ-
fellsbæjar kl. 10. Fjölbreytt
dagskrá verður svo fram eftir
degi, crossfit, þjálfun í vatni,
Óla f sv íkurdraumur inn ,
markaður, hoppukastalar og
fleira. í Sjómannagarðinum
hefst hátíðardagskrá kl. 14
þar sem Einar Mikael sýnir
töfrabrögð, pæjumótsstelp-
ur dansa og fleira. Þá verða
stofutónleikar, skúðgöng-
ur, brekkusöngur og að lok-
um Ólafsvíkurvökuball með
Stuðlabandinu í klifi. -arg
Blæðir í Borg-
arfirði
BORGARFJ.: Lögreglu
hefur borist eitthvað af til-
kynningum um blæðingar
í klæðningum á vegum að
undanförnu. 24. júní var til-
kynnt um blæðingu á Borg-
arfjarðarbraut frá nýrri olíu-
möl á móts við Árdal. Vill
lögreglan benda fólki á að
fara varlega, sérstaklega á
nýlagðri olíumöl. -arg
Eldur í sinu
VARMALAND: Tilkynning
um gróðureld barst lögreglu
um klukkan þrjú síðastliðinn
mánudag. Hafði þá rafmagns-
staur fallið á girðingu rétt inn-
an við Varmaland í Borgarfirði
með þeim afleiðingum að eld-
ur kviknaði í sinu. Sauðfé var
á staðnum og drapst ein kind.
Slökkvilið var kallað á svæðið
sem og björgunarsveitarmenn
með fjór- og sexhjól. Vel gekk
að slökkva eldinn. -arg
Svínað fyrir lag-
anna verði
BORGARFJ.: Ökumaður virti
ekki biðskyldu á Borgarfjarð-
arbraut og ók í veg fyrir lög-
reglubifreið. Fyrir þetta fékk
viðkomandi sekt að upphæð 30
þúsund krónur. -arg
Frá og með síðasta laugardegi voru
felldar úr gildi allar samkomutak-
markanir innanlands. Einnig er af-
lögð grímuskylda og nándarregla.
Er þetta í fyrsta skipti síðan 16. mars
2020 sem engar takmarkanir eru á
samkomum hér á landi. Á morgun,
1. júlí, taka svo í gildi breyttar reglur
varðandi sýnatökur á landamærum.
„um 87% þeirra sem áformað er að
bólusetja hafa nú fengið a.m.k. eina
sprautu, um 60% eru fullbólusettir
gegn Covid-19 og nú ættu allir sem
ekki var áður búið að bjóða bólu-
setningu að hafa fengið slíkt boð.
Áætlanir stjórnvalda um framgang
bólusetningar og afléttingu sam-
komutakmarkana hafa því gengið
að fullu eftir,“ segir í tilkynningu á
vef Stjórnarráðs íslands.
Breytingarnar sem taka gildi á
morgun á landamærunum munu
gilda til 15. ágúst. Sýnatökum verð-
ur hætt hjá þeim sem framvísa gild-
um vottorðum um bólusetningu
með bóluefnum sem Lyfjastofnun
Evrópu eða WHO hafa viðurkennt.
Sýnatöku verður hætt hjá börnum
sem fædd eru 2005 eða síðar. Þau
sem geta framvísað gildum vott-
orðum um bólusetningu og fyrri
sýkingu af Covid, og börn fædd
2005 og síðar, þurfa ekki að fram-
vísa neikvæðum PCr vottorðum. í
tilvikum þeirra sem geta ekki fram-
vísað gildum vottorðum um bólu-
setningu eða fyrri sýkingu af Covid
þurfa áfram að framvísa neikvæðu
PCr vottorði við komuna til lands-
ins og fara í fimm daga sóttkví og
svo sýnatöku að henni lokinni.
arg
Ísland fyrst landa til að
aflétta takmörkunum