Skessuhorn - 30.06.2021, Blaðsíða 25
MiðVikuDAGur 30. júní 2021 25
Fjórðungsmót Vesturlands hefst
í Borgarnesi næstkomandi mið-
vikudag, 7. júlí, og stendur fram á
sunnudaginn 11. júlí. „Það er ljóst
að framundan er frábær keppni í
öllum flokkum. Þetta verður sterk
keppni, ég myndi alveg segja af
landsmótskaliberi,“ segir Magn-
ús Benediktsson framkvæmda-
stjóri mótsins í samtali við Skessu-
horn. „kynbótasýningin sem hald-
in verður fyrir þetta svæði, Vestur
- norðvesturland, er ofboðslega
sterk og þar eru margir gríðarlega
góðir hestar að koma. Á landssýn-
ingunni á laugardeginum verður al-
gjör rjómi hrossa. Þar verða marg-
ir bestu gripir landsins frá þessu
ári,“ segir Magnús. „Átta ræktun-
arbú hafa skráð sig á sýningu. Sýn-
ing ræktunarbúa verður á föstudeg-
inum og sigurbúið verður krýnt á
laugardeginum ásamt því að rækt-
unarbú ársins og keppnishestabú
ársins munu heimsækja okkur.“
Siggi Hlö verður á
svæðinu
Enn er opið fyrir skráningu í opna
töltkeppni og skeið á mótinu og
verður hægt að skrá sig fram á
föstudag, 2. júlí. Þó eru fjölda-
takmarkanir svo fólk þarf að hafa
hraðar hendur. Þar verða veitt veg-
leg peningaverðlaun fyrir sigurveg-
ara í hverjum flokki. í flokki T3
u-17 mun Steypustöðin styrkja
með peningaverðlaunum. í opnum
flokki T3 mun netsjónvarpsstöð
Alendis styrkja með peningum og
í flokki T1 mun Trausti fasteigna-
sala styrka með veglegri upphæð
fyrir sigurvegara, eða 100 þúsund
krónum. í 100m flugskeiði verða
einnig peningaverðlaun og verða
þar Leiknir hestakerrur sem gefa
verðlaun. Verða þessir sigurvegar-
ar krýndir á kvöldvöku laugardags-
kvölds.
Mikil stemning verður í Borg-
arnesi á meðan keppni stendur.
Hreimur Örn Heimisson verður
með trúbadorsstemningu í reið-
höllinni á föstudagskvöldinu og á
laugardagskvöldinu ætlar Siggi Hlö
að sjá um að halda uppi stemningu
í höllinni. „Það eru næg tjaldstæði í
Borgarnesi fyrir alla og þetta stefnir
í virkilega góða helgi. Við verðum
með ofboðslega flottan veitinga-
mann; Gumma í Laugaás, sem sér
m.a. um rekstur í Perlunni. Þetta er
alvöru veitingamaður svo það verð-
ur nóg um mat og drykk fyrir alla.
Það verður því mathöll í reiðhöll-
inni,“ segir Magnús. „Ég er búinn
að skoða langtíma veðurspá fyrir 7.
júlí, fyrsta dag mótsins, og það á að
vera sól og gott verður. Það þarf því
ekkert nema sólarvörn, sólstól og
góða skapið til að mæta á skemmti-
legt Fjórðungsmót Vesturlands,“
segir Magnús og bætir því við að
skipuleggjendur hátíðarinnar vilja
endilega sjá margt fólk á svæð-
inu þessa daga. „Við viljum hafa
skemmtilegt mannamót í bland við
frábær hross á þessu móti,“ segir
hann.
Hægt er að kaupa miða á Tix. is
þar sem kostar níu þúsund krónur
fyrir allt mótið. Einnig verður hægt
að kaupa miða fyrir stakan dag á
staðnum og kostar dagurinn þrjú
þúsund krónur.
arg
ný stjórn Atvinnurekendadeild-
ar Félags kvenna í atvinnulífinu,
AFkA, tók til starfa á aðalfundi
deildarinnar fyrr í mánuðinum. í
nýrri stjórn sitja tvær konur í at-
vinnurekstri á Vesturlandi, þær
Dýrfinna Torfadóttir, gullsmiður
og skartgripahönnuður, og ingi-
björg Valdimarsdóttir, eigandi rit-
ara og Stay West. Auk þess er Mar-
grét rósa Einarsdóttir á Hótel
Glym og Englendingavík í vara-
stjórn deildarinnar.
AFkA er deild innan Félags
kvenna í atvinnulífinu en það er fé-
lag fyrir allar konur á vinnumark-
aði hér á landi. Blaðamaður Skessu-
horns settist niður með Dýrfinnu
og ingibjörgu og ræddi við þær um
starfsemi FkA og Atvinnurekenda-
deildarinnar. „FkA er félag sem all-
ar konur í atvinnulífinu geta gengið
í en innan félagsins eru deildir sem
þær geta skráð sig í eftir því sem
við á. Við erum með svæðisdeild-
ir fyrir konur af landsbyggðinni
og svo erum við með deildir fyrir
konur í atvinnurekstri, yngri kon-
ur sem vilja ná langt og fyrir konur
með mikla stjórnunarreynslu úr at-
vinnulífinu,“ útskýrir ingibjörg og
bætir við að Atvinnurekendadeild
er ætluð konum af öllu landinu
sem eru í fyrirtækjarekstri og eiga
að lágmarki 50% í sínu fyrirtæki.
Tilgangur deildarinnar er að skapa
vettvang fyrir konur í rekstri fyrir-
tækja að vinna saman, efla hver aðra
og mynda gott tengslanet óháð því
hversu stór þeirra fyrirtæki eru.
„Þetta er góður vettvangur til að
skapa tengslanet og kynnast öðrum
konum í rekstri fyrirtækja og jafn-
vel eiga viðskipti við þær,“ segir
Dýrfinna.
Vinna saman
Meðlimum FkA er boðið upp
á reglulega morgunverðafundi,
fræðslufundi og aðra viðburði bæði
til að kynna sína starfsemi og til að
komast í samband við aðrar kon-
ur í atvinnulífinu. „Atvinnurek-
endadeildin hefur það hlutverk að
standa vörð um hagsmuni kvenna í
atvinnurekstri en það hefur hallað
á konur í rekstri í samfélaginu en
með því að vinna meira saman get-
um við rétt úr þessum halla,“ segir
ingibjörg og Dýrfinna tekur und-
ir það. innan nýju stjórnarinnar er
fjölbreyttur hópur kvenna af ýms-
um sviðum atvinnulífsins. Þar eru
konur sem selja bílavarahluti, vinna
kollagen, hanna skartgripi, starfa
innan ferðaþjónustunnar, reka
barnafataverslun og fleira. „kon-
ur eru ekki alltaf nógu ákveðnar að
sækja fram og svona félagsskapur
getur styrkt þær í því,“ segir Dýr-
finna.
Voru fyrst lítið
virkar í félaginu
Spurðar hvernig það vildi til að
þær sitji nú í stjórn félagsins brosa
þær og svara að það sé í raun til-
viljun. ingibjörg var lítið virk inn-
an félagsins þar til árið 2019 þeg-
ar Atvinnurekendadeildin fór í ár-
lega vorferð og ferðinni var heitið
á Vesturland. Hún var beðin um að
taka móti hópnum og kynna sína
starfsemi. „Þær komu fyrst hingað
á Akranes og ég kynnti fyrir þeim
það sem ég er að gera en svo ákvað
ég bara að fara upp í rútu og fara
með þeim út á Snæfellsnes,“ segir
ingibjörg og bætir við að hún hafi
aðeins þekkt eina konu í ferðinni
þegar hún ákvað að fara með hópn-
um. „Það var meira að segja svo að
ég var að fara að gista á hóteli í her-
bergi með konu sem ég vissi ekkert
hver var,“ segir hún og hlær. Ferð-
ina segir hún hafa kveikt áhuga á að
vera meira virk í félaginu. „Þarna
kom ég inn, alveg ný og þekkti
enga konu þarna og þær bara tóku
allar utan um mig og buðu mig vel-
komna. Ég varð strax bara partur
af hópnum. Þetta er alveg þannig
hópur, þar sem við leggjum áherslu
á að styðja hver aðra,“ segir ingi-
björg.
Bætum hver aðra upp
Það var svo ingibjörg sem hafði
samband við Dýrfinnu og fékk
hana með sér í stjórn deildarinnar.
Dýrfinna hafði verið skráð í FkA í
nokkurn tíma og farið stundum á
morgunverðafundi og slíkt en ekki
verið mjög virk innan félagsins.
„Það hitti bara vel á hjá mér á þess-
um tíma í lífinu. Ég hef verið í eigin
rekstri í fjóra áratugi núna og lært
margt. Ég var bara komin á þann
stað að ég vildi fara að hjálpa öðr-
um og gefa meira af mér og fannst
þetta góð leið til þess,“ segir Dýr-
finna. Þá segist hún sjálf hafa fund-
ið það snemma hversu mikilvægt
það sé að mynda gott tengslanet og
nýta þau tengsl sem maður hefur.
„Ég leitaði einmitt til ingibjargar
þegar mig vantaði aðstoð með sam-
félagsmiðla, að læra hvernig ég gæti
notað Facebook og slíkt. ingibjörg
hjálpaði mér af stað og kenndi mér
að nota miðlana sjálf. Við eigum að
nýta okkur þau tengsl sem við höf-
um, við nefnilega bætum hver aðra
upp.“ segir Dýrfinna og brosir.
arg
Knapi Fjórðungsmóts
Vesturlands sem haldið
var í Borgarnesi 2017 var
Skapti Steinbjörnsson.
Ljósm. úr safni
Fjórðungsmót framundan
í Borgarnesi
Vestlendingar í stjórn Atvinnurekendadeildar
Félags kvenna í atvinnulífinu
Samsett mynd af nýrri stjórn Atvinnurekendadeildar Félags kvenna í atvinnu-
lífinu. Ljósm. aðsend.
Ingibjörg Valdimarsdóttir og Dýrfinna Torfadóttir sitja nú í stjórn Atvinnurekendadeildar Félags kvenna í atvinnulífinu.