Skessuhorn - 30.06.2021, Blaðsíða 15
MiðVikuDAGur 30. júní 2021 15
Det Danske Drengekor heldur tón-
leika í Akraneskirkju fimmtudaginn
1. júlí klukkan 19:30. Stjórnandi
kórsins er Benazir Braae. kórinn
er nú á söngferðalagi um ísland og
verða tónleikarnir á Akranesi þeir
fyrstu í röð tónleika kórsins.
-fréttatilkynning
Það má með sanni segja að þeir hafi
verið á fleygiferð hjólreiðakapparn-
ir sem blaðamaður mætti á Akra-
fjalli á mánudagskvöldið. Þeir voru
þá nýkomnir af toppnum á Háa-
hnjúki og á hraðri niðurleið á ný-
bónuðu rafmagnshjólunum sínum.
Þá var dróni með í för sem tók upp
ferðalagið upp og niður fjallið.
vaks
Sagt er frá því á fésbókarsíðu
hópsins kassabílasmíði á Akra-
nesi að í ágúst verði keppt í kassa-
bílarallýi á Akranesi í fyrsta skipti.
Þessi dagur verður tileinkað-
ur kassabílum og kassabílasmíði
þar sem keppt verður í nokkr-
um þrautum og verða veitt verð-
laun fyrir frumlegasta og flottasta
kassabílinn. Akraneskaupstaður
styrkir framtakið og er ætlunin
að þetta verði ógleymanleg fjöl-
skylduskemmtun. Staðsetning og
tímasetningar verða nánar kynnt-
ar síðar.
Ole jakob Volden, einn af for-
sprökkum hópsins, segir að allir
séu velkomnir hvaðan af landinu
sem er og það kosti ekkert að taka
þátt og því geta allir tekið þátt
sem vilja. Þegar nær dregur verð-
ur boðið upp á námskeið í kassa-
bílasmíði í áhaldahúsi Akranes-
kaupstaðar við Laugarbraut. Þar
verður heitt á könnunni og for-
eldrar og forráðamenn geta kom-
ið með börnin sín og fengið að-
stoð við að saga niður og skrúfa
saman og við alla aðra tæknilega
aðstoð.
Þeir sem eru áhugasamir um að
taka þátt eða hafa einhvern áhuga
á að aðstoða eða taka þátt í þessu
framtaki eru vinsamlegast beðn-
ir um að senda línu á kassabil-
arally@gmail.com vaks
Það má með sanni segja að íbú-
ar við Asparskóga 22 á Akranesi
séu pollrólegir flesta daga. Blaða-
maður Skessuhorn átti nýverið leið
fram hjá þessu fallega fjölbýlishúsi
og þessum myndarlega polli sem
speglaðist svona skemmtilega við
húsið.
Að sögn eins íbúa hússins hefur
þetta verið svona frá því húsið var
byggt eða í níu ár. Pollurinn tek-
ur fjögur til fimm bílastæði og í
samræmi við það er hann fjórar til
fimm vikur að þorna upp. Það er
vonandi að íbúar hússins þurfi ekki
að bíða í önnur níu ár áður en þetta
verður lagað. Þangað til geta börn-
in í hverfinu glaðst og þurfa ekki að
fara langt til að „Hoppípolla“ og
finnst eflaust rigningin góð.
vaks
í dag er síðasti dagur sem opið verð-
ur hjá Bifreiðaþjónustu Harðar við
Borgarbraut 55 í Borgarnesi. Fyrir-
tækið hefur frá stofnun boðið upp á
almenna dekkjaþjónustu auk smur-
þjónustu. nú lýkur 57 ára sögu fyr-
irtækisins en það stofnaði Hörður
jóhannsson árið 1964 og rak á eigin
kennitölu til 2005. núverandi eig-
endur keyptu reksturinn af börnum
Harðar eftir fráfall hans árið 2013.
Að sögn Davíðs Sigurðssonar, ann-
ars eiganda fyrirtækisins og rekstr-
araðila, keypti Borgarbyggð húsið
á síðasta ári í kjölfar þess að starf-
semin rúmaðist ekki á þessum stað
lengur vegna breytinga á skipulagi
svæðisins. Davíð segir í samtali við
Skessuhorn að um tíma hafi staðið
til að koma starfsemi Bifreiðaþjón-
ustu Harðar í annað húsnæði og
jafnvel í nýbyggingu, en frá því hafi
nú verið horfið. Starfseminni verð-
ur því hætt. Að sögn Davíðs eru
að minnsta kosti tveir aðrir verk-
stæðiseigendur í Borgarnesi sem
hyggjast auka þjónustu sína á sviði
dekkja- og smurþjónustu. Davíð
vill að endingu þakka viðskiptavin-
um Bifreiðaþjónustu Harðar fyr-
ir traust og góð viðskipti á liðnum
árum og áratugum. mm
Rekstri
Bifreiðaþjónustu
Harðar hætt
Spegill Spegill herm þú mér…
Pollrólegir íbúar
við Asparskóga
Danskur
drengjakór á
Akranesi
Fjör á
Akrafjalli
Það verður fjör
hjá þessum í ágúst
á Akranesi.
Kassabílarallý skipulagt
á Akranesi í ágúst