Skessuhorn


Skessuhorn - 30.06.2021, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 30.06.2021, Blaðsíða 19
MiðVikuDAGur 30. júní 2021 19 Þar var á vaktinni Birgir Bjarnason sem segir ferðaþjónustuna haldast í hendur við veðurfarið. „Hún fer af stað. Svolítið mikið eftir veðrinu, ef veðrið er óspennandi er rólegt í ferðaþjónustunni,“ segir Birgir. „Miðað við síðasta ár þá er traffíkin hins vegar allt önnur. Ég er ekkert endilega að segja að hún sé mikið betri, heldur af öðrum toga. Veðrið var miklu betra í fyrra á þessum árs- tíma. Maí var hins vegar mjög góð- ur en þá var líka gott veður. íslend- ingar eru svolítið á ferðinni. Svo kemur þetta kuldakast í júní og þá í raun stoppaði allt. En það eru fleiri útlendingar á móti. Tilfinningin er að þegar allt fer af stað þá fer það af stað en það er veðrið sem ræður. Ef góða veðrið er fyrir austan þá fer túristinn þangað,“ bætir Birgir við. Maímánuður frábær í Kraumu rétt fyrir ofan kleppjárnsreyki er krauma, náttúrulaugar við Deild- artunguhver. Þar mátti sjá fólk baða sig og njóta lífsins í fallegu veðri. jónas Friðrik Hjartarson, fram- kvæmdarstjóri kraumu, segir sum- arið fara vel af stað. „Maímánuð- ur var stærsti maímánuður frá upp- hafi í okkar rekstri. júnímánuður kemur líka rosalega vel út,“ bætir hann við. „Við erum stutt frá höf- uðborgarsvæðinu og krauma er góður staður til að koma á. Það eru að auki mörg önnur flott fyrirtæki í kringum krauma hér í Borgarfirði og fólk er að koma hingað,“ bætir hann við léttur í lund. krauma hóf starfsemi í nóvember 2017 og var mikil viðbót hvað varð- ar afþreyingu í Borgarfirði. „Tjald- stæðin í kringum okkur eru öll full. rekstraraðilar þessara tjaldstæða eru að tengja það við kraumu,“ segir jónas. Laugarnar í kraumu eru sex tals- ins, fimm heitar og ein köld. Eng- um sótthreinsandi efnum er bætt í vatnið heldur er hreinleiki þess tryggður með mjög miklu vatns- rennsli í laugarnar. Vatnið er þess vegna steinefnaríkt og segir jónas að fólki með exem líði til dæmis rosalega vel í pottunum hjá þeim. „Það gengur bara rosalega vel hjá okkur og það virðist ekki skipta máli hvort það er gott veður. út- lendingarnir eru að koma mikið á virkum dögum og íslendingarnir koma um helgar svo þetta jafnast út. Það gengur rosalega vel hjá okk- ur og við erum mjög ánægð,“ segir hann að endingu. glhBrugghús Steðja í Borgarfirði. Þar er hægt að koma í bjórsmökkun og gistingu. Sölukofinn við Sólbyrgi á Kleppjárnsreykjum er vinsæll stoppustaður en þar er meðal annars hægt að kaupa í sjálfsafgreiðslu íslensk jarðarber og ýmsar krydd- jurtir. Staldrið sem staðsett er við Deildartunguhver. Matarvagn þar sem í boði eru fjórir réttir auk drykkjarfanga. Þá er auk þess selt nýtt grænmeti á pallinum en það er allt ræktað í gróðurhúsunum í Víðigerði. Hvítá við Hraunfossa í Borgarfirði. BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS Vinnum fyrir öll tryggingafélög Lokað frá og með 12. júlí til og með 6. ágúst, mætum aftur 9. ágúst vegna sumarleyfi starfsmanna. Gleðilegt sumar! ER EKKI EINHVER SEM ER ÁREIÐANLEGUR OG DUGLEGUR SEM VILL KAUPA ÞVOTTAHÚS? Til sölu þvottahúsið Hótelþvottur ehf. Sólbakka 6 Borgarnesi, tækjabúnaðurinn er góður og miklir möguleikar eru fyrir hendi. Endilega hafið samband í síma 852-0066 fyrir frekari upplýsingar.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.