Skessuhorn - 30.06.2021, Side 8
MiðVikuDAGur 30. júní 20218
Umfangsmikil leit
REYKJANES: Erlendur karl-
maður varð viðskila við eigin-
konu sína um miðjan dag á föstu-
dag þar sem þau höfðu verið að
skoða eldgosið í Geldingadölum.
Óskaði konan í framhaldinu eft-
ir aðstoð lögreglu og björgunar-
sveita við leit. ræst var út um-
fangsmikil leit sem fjölmargar
björgunarsveitir tóku þátt í, með-
al annars sveitir héðan af Vest-
urlandi. Maðurinn fannst síð-
an heill á húfi rúmum sólarhring
eftir að hann varð viðskila við
samferðafólk sitt. Þoka hafði ver-
ið á svæðinu og gekk maðurinn í
ranga átt. Hann fannst um fjóra
kílómetra norðvestan við Geld-
ingadali. Flogið var með mann-
inn á sjúkrahús til aðhlynningar,
en hann reyndist heill á húfi, þó
svangur og lerkaður. Maðurinn
var án farsíma og gat því ekki lát-
ið vita um ferðir sínar. -mm
ÍA fær
nýjan leikmann
AKRANES: Skagamenn hafa
samið við hollenska varnarmann-
inn Wout Droste út tímabilið
2022. Wout er 32 ára reynslu-
mikill leikmaður sem spilað hef-
ur 350 leiki í Hollandi og alls
122 leiki í efstu deild. Einnig á
hann sjö leiki fyrir hollenska u19
ára landsliðið. Droste var samn-
ingslaus en hann hefur verið hjá
Go Ahead Eagles undanfarin ár.
-vaks
Úr peysunni
BORGARFJ: Bíll valt í norður-
árdal að morgni fimmtudagsins 24.
júní. Tveir voru í bílnum og var öku-
maður að aðstoða farþega að fara úr
peysu á sama tíma og hann ók á 90
km hraða. Missti hann þá sjónar af
veginum í augnablik og lenti fyrir
utan veg með fyrrgreindum afleið-
ingum. Farþegi fékk högg á höfuðið
en annars sluppu báðir sem í bílnum
voru með skrámur. Bíllinn var óöku-
hæfur og því fjarlægður með krana-
bíl. -arg
Rákust á
í hringtorgi
BORGARNES: Árekstur var í
hringtorginu ofan við Borgar-
nes rétt eftir hádegi föstudaginn
25. júní. Þá hafði ökumaður farið
of snemma inn í hringtorg með
þeim afleiðingum að hann lenti
utan í öðrum bíl. -arg
Fullur og rásandi
HVLAFJ.SV: um klukkan hálf
ellefu á mánudagskvöldið var
ökumaður stöðvaður á Vestur-
landsvegi við Hvalfjarðargöng
eftir að tilkynnt var um rásandi
aksturslag og að ökumaður hafi
farið yfir á öfugan vegarhelming
þegar hann ók upp úr göngunum
norðan megin. Var ökumaðurinn
handtekinn og færður á lögreglu-
stöð þar sem tók við hefðbundin
málsmeðferð.
-arg
Hraðferðin kostar
BORGARFJ: Alltaf er nokkuð
um hraðakstur í umdæmi Lög-
reglunnar á Vesturlandi, og var
engin breyting þar á í liðinni
viku. Tveir voru teknir á Vest-
urlandsvegi við rjúpnaás á held-
ur mikilli hraðferð. Annar ók á
130 km/klst og fær fyrir það sekt
upp á 120 þúsund og tvo punkta
að auki í ökuferilsskrána. Hinn
ók á 136 km/klst og kostar það
hann 150 þúsund krónur og þrjá
punkta. Þá var einnig stoppaður
ökumaður á Vesturlandsvegi við
Eskiholt á 139 km/klst og fékk
hann fyrir það 150 þúsund króna
sekt og þrjá punkta. -arg
Akstur undir
áhrifum
HVALFJ.SV: Lögreglan á Vest-
urlandi stöðvaði nokkra öku-
menn í almennu umferðareftir-
liti í liðinni viku. Einn sem var
stöðvaður við slíkt eftirlit heim-
ilaði leit í bifreið og fundust þar
kannabisefni. Ökumaðurinn var
þó ekki talinn undir áhrifum. Fær
viðkomandi sekt fyrir þetta brot.
um klukkan sjö að kvöldi mánu-
dagsins 28. júní var ökumað-
ur stöðvaður í umferðareftirliti
við Hvalfjarðargöng. Var hann
grunaður um að vera undir áhrif-
um ávana- og fíkniefna. Farið var
með manninn á lögreglustöðina
þar sem við tók hefðbundin máls-
meðferð
Aflatölur fyrir
Vesturland
19. til 25. júní
Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu
Akranes: 21 bátur.
Heildarlöndun: 25.821 kg.
Mestur afli: Arnar Ár 55: 2575
kg í þremur löndunum
Arnarstapi: 8 bátar.
Heildarlöndun: 4662 kg.
Mestur afli: Hrólfur Ak 29:
1.037 kg í einni löndun
Grundarfjörður: 20 bátar.
Heildarlöndun: 443.584 kg.
Mestur afli: Harðbakur EA 3:
77.836 kg í einni löndun
Ólafsvík: 34 bátar.
Heildarlöndun: 108.937 kg.
Mestur afli: Egill SH 195:
24.358 kg í tveimur löndunum
Rif: 21 bátur.
Heildarlöndun: 115.790 kg.
Mestur afli: rifsnes SH
44:42.689 í einni löndun
Stykkishólmur: 17 bátar.
Heildarlöndun: 174.202
Mestur afli: Þórsnes SH 109:
130.801 í einni löndun
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Þórsnes SH 109 STY:
130.801 kg. 25. júní.
2. Harðbakur EA 3 GRU:
77.836 kg. 19. júní
3. Bylgja VE 75 GRU: 72.125
kg. 24. júní
4. Hringur SH 153 GRU:
71.835 kg. 23. júní
5. Farsæll SH 30 GRU: 65.967
kg. 21. júní.
-vaks
Byggðarráð Borgarbyggðar sam-
þykkti á fundi sínum síðastlið-
inn fimmtudag að gengið verði
frá ráðningu Sigfríðar Björnsdótt-
ur í starf skólastjóra Tónlistarskóla
Borgarfjarðar. Eins og kunnugt er
sagði Theodóra Þorsteinsdóttir
upp starfi sínu við skólastjórn í vor.
Alls bárust 15 umsóknir um stöðu
skólastjóra. Sigfríður mun hefja
störf 1. ágúst.
Á vef Borgarbyggðar er sagt frá
því að Sigfríður útskrifaðist sem
grunnskóla- og tónmenntakenn-
ari frá kennaraháskóla íslands árið
1986 og með meistarapróf í sagn-
fræði á sviði tónlistar frá Yale há-
skóla í Bandaríkjunum árið 1989.
Auk þess er hún að ljúka meistara-
gráðu frá Háskólanum á Bifröst í
mennta- og menningarstjórnun.
Sigfríður hefur í tæpan áratug
starfað á skóla- og frístundasviði
reykjavíkurborgar og gegnt þar
starfi deildarstjóra listfræðslu. Þar
hefur hún meðal annars séð um
samninga og samskipti við tónlist-
arskóla í borginni og verið yfirmað-
ur skólahljómsveita í reykjavík. Þar
á undan var hún framkvæmdastjóri
íslenskrar Tónverkamiðstöðvar í
ríflega áratug auk starfa sinna sem
tónlistargagnrýnandi. Sigfríður
hefur samhliða kennt tónlistarsögu
og kenndi áður kennslufræði tón-
menntar á Menntavísindasviði Hí
og við Listaháskóla íslands.
mm
Byggðarráð Borgarbyggðar fjallaði
á fundi sínum síðastliðinn fimmtu-
dag um tillögu að vinnslutillögu
á Aðalskipulagi Borgarbyggðar
2010-2022, sem snertir Húsafell.
Lögð var fram vinnslutillaga sem
dagsett er 7. júní 2021 og unnin
af Alta. í tillögunni er landnotkun
skilgreind fyrir verslun, þjónustu,
íbúða- og frístundabyggð sunn-
an þjóðvegar í Húsafelli. „Mark-
mið breytingartillögunnar er að
skilgreina landnotkun svæðisins og
samgöngukerfi þannig að menn-
ingarstarfsemi, búseta, ferðaþjón-
usta, auðlindanýting og frístunda-
byggð geti lifað í sátt og samlyndi
með áherslu á menningarlega reisn
og einstakt náttúrufar Húsafells,“
eins og segir í bókun byggðarráðs.
Byggðarráð, fyrir hönd sveit-
arstjórnar, samþykkti framlagða
vinnslutillögu og fól skipulags-
fulltrúa að kynna hana í samræmi
við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga
nr. 123/2010 fyrir íbúum og hags-
munaaðilum og leita umsagna lög-
bundinna umsagnaraðila. „um
fullnaðarákvörðun innan sveitar-
félagsins er að ræða,“ segir í bókun
byggðarráðs.
Hægt er að kynna sér vinnslutil-
löguna á vef Borgarbyggðar. mm
Sigfríður Björnsdóttir tekur við starfi
skólastjóra 1. ágúst.
Ráðin skólastjóri Tónlistar-
skóla Borgarfjarðar
Innan þess svæðis sem skipulagslýsingin nær til er m.a. starfsemi listasafns,
gistiþjónusta og fleira.
Samþykktu til kynningar vinnslutillögu
að breytingu aðalskipulags í Húsafelli
Heilsugæslan hefur tekið í notk-
un hraðapróf til greiningar á kór-
ónuveirunni sem veldur Covid-19.
Hraðaprófin eru ekki notuð við
einkennasýnatöku, heldur eru þau
eingöngu ætluð þeim sem þurfa á
þeim að halda, t.d. vegna ferðalaga,
þar sem krafist er neikvæðrar nið-
urstöðu úr sýnatöku á landamærum
og niðurstaða úr hraðaprófi er tek-
in gild. Gjald fyrir sýnatöku með
hraðaprófi er 4.000 krónur, hvort
sem hlutaðeigandi einstaklingur
er sjúkratryggður hér á landi eða
ekki.
Hér á landi hafa fram að þessu
eingöngu verið notuð PCr-próf
til að greina kórónuveiru í fólki og
á landamærum íslands eru aðeins
teknar gildar niðurstöður úr PCr-
prófum. Heilsugæslan býður einn-
ig upp á töku PCr-prófa úr ein-
kennalausum einstaklingum þurfi
þeir á því að halda og er gjald fyr-
ir sýnatökuna 7.000 krónur, jafnt
fyrir sjúkratryggða sem ósjúkra-
tryggða. Heilbrigðisráðherra hef-
ur sett reglugerð sem kveður á um
gjaldtökuna.
Mörg lönd taka gildar niður-
stöður hraðaprófa á landamærum.
Því má gera ráð fyrir því að tölu-
verð eftirspurn sé eftir hraðapróf-
um hjá erlendum ferðamönnum og
íslendingum sem hyggja á ferða-
lög út fyrir landsteinanna. niður-
staða úr hraðaprófi liggur fyrir á
um klukkustund en það getur tekið
allt að sólarhring að fá niðurstöðu
úr PCr-prófi.
Hraðapróf veita ekki jafnöruggar
niðurstöður og PCr-próf og gildir
sú regla hér á landi að ef einstak-
lingur greinist með kórónuveiruna
í hraðaprófi þarf hann jafnframt að
undirgangast PCr-próf.
mm
Hraðapróf til sýnatöku tekið í
notkun á heilsugæslustöðvum