Náttúrufræðingurinn - 2020, Page 67
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
287
Ritrýnd grein / Peer reviewed
um víðerni best var gefin tölugildið +2,
en sú sem hann taldi lýsa hugmyndum
sínum síst fékk tölugildið -2. Af þeim
þremur staðhæfingum sem eftir stóðu,
fékk sú sem þátttakandinn taldi lýsa
hugmyndum sínum best tölugildið +1
og sú sem honum þótti lýsa þeim síst
tölugildið -1. Sú sem eftir stóð fékk 0.
Víðernisskor var síðan reiknað út fyrir
hverja staðhæfingu með því að taka
meðaltal fyrir þær breytur sem til-
heyrðu hverri sviðsmynd.
Í síðari hluta spurningakönnunar-
innar var sjónum beint að mikilvægi víð-
erna á Íslandi. Í þessum hluta voru þátt-
takendur spurðir hversu mikilvæg þeir
teldu víðerni vera sem hluta af íslenskri
náttúru og hversu mikilvæga þeir teldu
ákveðna innviði vera þegar þeir ferð-
ast um íslensk víðerni. Svarmöguleikar
voru settir upp á 5 punkta Likert-
kvarða. Alls fékkst 641 svar, sem gerir
30% svarhlutfall. Gögnin voru vigtuð
eftir bakgrunnsbreytunum kyni, aldri,
búsetu og menntun til þess að niður-
stöður gæfu sem réttasta mynd af þýð-
inu, sem eru allir einstaklingar, 18 ára og
eldri með íslenskan ríkisborgararétt.
6. mynd. Sýnishorn af nokkrum myndaspjöldum sem notuð voru til að lýsa sviðsmyndunum 25.
– An example of photo-cardboards used to describe the 25 scenarios.