Mosfellingur - 22.04.2021, Page 10

Mosfellingur - 22.04.2021, Page 10
 - Frítt, frjálst og óháð bæjarblað10 Út er komin Meltúnsbók, Sumardvöl í Mosfellssveit 1962-1963 eftir Kristbjörn Egilsson. Um er að ræða endurminningar drengs sem galvaskur réð sig sem kaupamann á bæinn Meltún í Mosfellssveit sumrin 1962 og 1963. Í bókinni er fágæt lýsing á lífi og starfi á nýbýli í hreppi sem var í örum vexti á sjöunda áratug 20. aldar. Horfinn heimur. Í ritinu er fjöldi ljósmynda sem ekki hafa birst áður. Einnig er að finna í bókinni minning- arbrot húsmóðurinnar í Meltúni, Sigríðar Þórmundsdóttur, sem hún skráði þegar hún var 85 ára. Þar fjallar hún m.a. um tímann þegar þau hjón staðfestust í Mos- fellssveitinni og stofnuðu nýbýlið Meltún rétt eftir seinni heimstyrjöldina í skugga berklaveikinnar. Meðfylgjandi er kafli úr bókinni en hana er hægt að nálgast í Héraðsskjalasafni Mos- fellsbæjar eða í gegnum síma 8622728. Meltúnshjónin Ég var tvö sumur í Meltúni og dvaldi þar í bæði skiptin frá miðjum júní til ágústloka. Í Meltúni bjuggu Sigríður Þor- móðsdóttir (55 ára) og Eiríkur E. F. Guðmundsson (55 ára) ásamt uppeldissyninum Sigmari Péturssyni (11 ára). Sigríður var Borgfirðingur, fædd í Langholti, en alin upp á hinni fornu klausturjörð Bæ sem foreldrar hennar keyptu og bjuggu á mestan sinn búskap. Systkinin í Bæ urðu fjór- tán og ellefu náðu fullorðinsaldri. Eiríkur var Vestfirðingur, fæddur í Botni í Súgandafirði og ólst þar upp. Systkinin urðu tíu. Eiríkur fór í Alþýðuskólann á Hvítárbakka þegar hann stóð á tvítugu og þar kynntist hann Sigríði, einni af heimasætunum í Bæ. Berklarnir gera vart við sig Þau giftust árið 1932 fyrir vestan. Hinn mikli vágestur berklarnir sem tröllreið íslensku samfélagi á þessum árum tróð sér inn í líf ungu hjónanna, bæði veiktust af berklum og lágu á sjúkrahúsinu á Ísafirði. Veikindin voru langvinn og meðan Eiríkur lá á Vífilsstöðum fór Sigríður til móð- ursystur sinnar, Ingunnar Guðbrandsdóttur og Helga Finnbogasonar á Reykjahvoli. Þar með má segja að örlög þeirra væru ráðin hvað varðaði búsetu. Mosfellssveit varð þeirra sveit. Þegar Eiríkur náði betri heilsu hóf hann vinnu hjá ullar- verksmiðjunni á Álafossi og vann einnig á stórbýlunum Korpúlfsstöðum og Lágafelli, og svo í lausamennsku. Á þessum árum eignuðust Sigríður og Eiríkur lítið hús í landi Reykjahvols sem þau kölluðu Hverabakka og bjuggu þar í átta ár. Húsið reist á mel sem áður hýsti braggabyggð Eftir stríðið gekkst hreppsnefnd Mosfellshrepps fyrir því að stofna til nýbýla á hreppsjörðum, einkum í landi Lága- fells og Varmár. Eiríkur og Sigríður fengu land á Jónsteigi sem er á austurmörkum Varmárlandsins, nánar tiltekið á melnum sunnan við Álafossverksmiðjuna. Árið 1947 stofna þau nýbýlið Meltún, flytja Hverabakkahúsið með sér, stækka það og endurbæta, byggja útihús og rækta upp melana sem bærinn heitir eftir. Samkvæmt leigusamningi við Mosfellshrepp frá árinu 1950 var Mel- túnslandið 5,1 ha. Árið 1957 bættust við 2,2 ha. Jörðin var því alls 7,3 ha. Sigríður og Eiríkur höfðu búið í Melt- úni í 38 ár þegar Eiríkur lést árið 1985. Eftir það bjó Sigríður þar ein uns hún fluttist á Hlaðhamra í Mosfellsbæ árið 1988. Meltún var reist á mel sem hafði verið nýttur fyrir braggabyggð hernámsliðs. Ábúendur græddu upp melinn og breyttu í gjöful tún og beitiland. Nú hafa bæjarhúsin verið rifin og túnin byggð nýrri kynslóð húsa. Kristbjörn Egilsson og Fluga raka saman heyi á Varmártúni. Handan trjáræktar er Varmá með stíflu og litlu lóni þar sem vatnsinntakið í Álafossverksmiðjuna var. Meltúnsbærinn í fyrstu snjóum í október 1964. Meltúnshlaðið. Kýrnar á leið í fjósið til mjalta. Brúsapallurinn er til hægri við túnhliðið. Bragginn á melnum handan við Álafossveginn var í eigu Reykjalundar. Ljósmynd: Kristbjörn Egilsson, ágúst 1969. Fróðleg bók um Meltún í Mosfellssveit • Kristbjörn Egilsson segir frá sumardvöl í sveit Endurminningar drengs sem réð sig sem kaupamann á Meltún Meltúnsbók Sumardvöl í Mosfellssveit K r i s t b j ö r n E g i l s s o n Kristbjorn_Meltun_kapa.indd 3 11.2.2021 11:43:18 hjónin sigríður og eiríkur KR. 12.900,- KR. 8.900,- STILKUR.IS 20% kynningarafslá�ur út maí Afslá�arkóði - MOS21 Þurrkaðir blómvendir í mörgum stærðum og gerðum KR. 3.900,- Blandaðir vendir LÓA RJÚPA Stóri plokkdagurinn er á laugardaginn Mosfellsbær tekur þátt í Stóra plokkdeginum laugardaginn 24. apríl. Með þátttökunni vill Mos- fellsbær taka virkan þátt í þessu metnaðarfulla umhverfisátaki sem fer fram undir merkjum félagsskap- arins Plokk á Íslandi. Mosfellsbær hvetur íbúa og starfsfólk fyrirtækja í Mosfellsbæ til að taka virkan þátt í deginum og plokka rusl í sínum hverfum og á opnum svæðum. Íbúar geta nálgast ruslapoka fyrir plokkið á Upplýsingatorgi Mos- fellsbæjar í Kjarna, fyrir framan bókasafnið, á laugardaginn. Á grenndargámastöðvum við Dælu- stöðvarveg, Langatanga, Bogatanga og Skeiðholt er að finna gáma fyrir flokkað rusl, plast og gler, auk þess sem endurvinnslustöð Sorpu við Blíðubakka er opin alla helgina.

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.